Læknaneminn - 01.11.1969, Blaðsíða 65
LÆKN ANEMINN
57
18. ÞING IFM8A.
Dagana 18.-31. ágúst s.l. var háð 18. þing IFMSA. Að þessu sinni
var það haldið í ísrael, í hinni helgu borg Jerúsalem. 1 nýju glæsilegu
háskólahverfi Hebreska háskólans, þar sem stúdentar eru um 10.000,
glímdu 44 læknanemar frá 18 þjóðum við lausn þeirra viðfangsefna,
er fyrir þinginu lágu. Það, sem setti svip sinn á þetta þing, voru ann-
ars vegar harðar deilur um IFMSA, starf og stefnu, en hins vegar
f jarvera fulltrúa allmargra aðildarlanda. Nokkrum mánuðum fyrr höfðu
New Hadassah-Hebrew University Medical Centre, Jerúsalem.
læknanemafélög í Efnahagsbandalagslöndunum komið saman til fxmd-
ar og ákveðið að gerast aukameðlimir í IFMSA, en auka í þess stað
samskipti sín á milli. Voru því aðeins mættir fulltrúar frá Italíu og
Luxemburg á þessu þingi og það sem aukaaðilar, þ.e. höfðu ekki at-
kvæðisrétt. Einnig var eina Arabalandið, Líbanon, fjarverandi vegna
vals á fundarstað.
Fyrstu dagana var starfað í 4 nefndum, en þar eð fundir voru
samtímis í tveimur, valdi ég menntamálanefnd og stefnuskrárnefnd.
Varð ég fyrir nokkrum vonbrigðum með, hvað lítið hafði verið starfað
að menntamálum á síðasta ári, en þar er fjárskorti mest um að
kenna eins og svo víða. Meðal verkefna, sem ekki reyndist unnt að
ráðast í á síðasta starfsári, er könnun á inntöku í læknadeildir. 1
stefnuskrárnefnd var gengið frá uppkasti að nýrri stefnuskrá og stofn-
skrá IFMSA. Er þar m.a. gert ráð fyrir svæðaskiptingu eftir heims-
álfum.
Að nefndarstörfum loknum hófst þinghaldið. Kom brátt í ljós, að
djúpstæður ágreiningur er innan IFMSA. Fram til þessa hafa sam-
tökin nær eingöngu starfað að mennta- og hagsmunamálum, reyndar
einnig lítillega að mannúðarmálum, en aldrei blandað sér í pólitík. Á
síðari árum hefur í kjölfar andófs stúdenta víða um heim, komið fram