Ferðir - 01.06.1993, Blaðsíða 3
FERÐIR
BLAÐ FERÐAFÉLAGS AKUREYRAR
JÚNÍ 1993-52. ÁRGANGUR
GUÐMUNDUR GUNNARSSON:
Ferð Ferðafélags Akureyrar
í Reykjafjörð norður
10.- 16. júlí 1992
Ferðafélag Akureyrar hafði á áætlun sinni sumarið 1992 ferð í Reykja-
fjörð nyrðri á Ströndum. Fyrirkomulag var ineð þeim hætti, að flogið
skyldi í leiguflugi með Flugfélagi Norðurlands og lent á flugbraut, sem
heimamenn í Reykjafirði höfðu gert sumarið áður. Síðan átti að slá þar
tjöldum og fara í dagslangar gönguferðir út frá þeim 11,- 15. júlí og snúa
heim aftur 16. júlí. Þótt bújörðin Reykjafjörður sé komin á eyði eru enn á
lífi mörg systkini sem ólust þar upp og dvelja gjarnan á sumrum. Þrjú
fbúðarhús eru notuð til þessara sumardvala en auk þess standa enn tvö
eldri bæjarhús. Ekki má láta þess ógetið, að sundlaug er á staðnum,
byggð 1938 en endurbætt síðan og við hana nýlega byggð búningsað-
staða.
Vonast var til að þátttakendur yrðu um 30 manns og var sá fjöldi tal-
inn hæfilegur til að gera tvær ferðir í leiguflugi með fólk og farangur á 19
farþega Twin Otter vélum Þegar til kom urðu ferðalangamir alls 23 og
þótti þá í of mikið lagt að fara ferðirnar tvær. Brugðið var á það ráð að
biðja hluta af hópnum að taka sér far með áætlunarflugi til Isafjarðar um
morguninn, og átti vélin síðan að lenda í Reykjafirði á heimleiðinni og