Ferðir - 01.06.1993, Blaðsíða 7
F E R Ð I R
7
Framleiðsluvörur sögunarmyllunnar. (Ljósm. Magnús Guðmundsson)
Sögin sjálf er knúin dísilhreyfli en búnaður til að færa til drumbana og
lyfta þeim er enginn og fylgir því þessu starfi ærið erfiði. Hráefnið er á
hinn bóginn óþrotlegt, enda vekja hvað mesta undrun og athygli ferða-
mannsins hrannir þær af rekaviði sem liggja um allar strendur, víkur og
voga, jafnvel stundum spölkom uppi á þurrlendi. Augljóst var að Reykja-
fjarðarbændur höfðu aðeins sótt á fjörur hið næsta sér og notuðu litla
jarðýtu til að draga drumbana og mun ýtan sú einnig hafa gert flugbraut-
ina sem áður er um getið. Að loknum kvöldverð i safnaðist fólk saman í
fjöru rétt við tjöldin, gerði bálköst af rekaviðarkeflum, netadræsum og
plastrusli, sem nóg var af, og undi við söng og ylinn af bálinu uns gengið
var til náða.
Sunnudagur 12. júlí.
Seinnihluta gærdagsins hafði mátt merkja veðurbreytingu, að heldur væri
að létta til, enda mætti mönnum glampandi sólskin og heiður himinn
þennan sunnudagsmorgun. Hló fólki því hugur í brjósti, þegar lagt var af
stað í gönguferð dagsins og stefnan tekin á Sigluvíkumúp við syðra fjarð-