Ferðir - 01.06.1993, Blaðsíða 14
14
F E R Ð I R
ViS yfirgefmn toifœmhíl á jökuleyrum i ReykjafirSi. (Ljósm Mayynis Guðnmndsson)
dagur ferðarinnar hingað til var á enda, tilkynnti Gísli leiðsögumaður að
seint skyldi risið úr rekkju næsta morgun, grautur ekki fyrr en kl. 10.
Þriðjudagur 14. júlí.
Fyrirmælum Gísla var hlýtt og tóku menn lífinu með ró um morguninn.
Um kl. eitt var þó harðsnúinn hópur, 8 saman, karlar og konur, enn á ný
búinn til ferðar með bakpoka og tjöld. Hugmyndin var að þreyta göngu
norður til Furufjarðar og gista þar næstu nótt. Sá sem þetta ritar var ekki
þarna í för og verða því ekki sögð tíðindi af ferð áttmenninga þennan
dag. Gísli leiðsögumaður varð eftir og nokkru síðar lagði hann af stað
nteð meirihluta eftirlegukindanna í létt labb inneftir undirlendinu í
Reykjafirði á átt að Drangajökli. Lötraði fólk þetta hið rólegasta, rabbaði
saman og stansaði oft. Skoðaðir voru jökulgarðar sem sýna legu Dranga-
jökuls fyrr á öldum og jeppi einn, er stóð einn og yfirgefinn á sléttum
eyrum um það bil miðja vegu á leið göngumanna. Hann varð þarna eftir
af leiðangri jeppamanna frá Hólmavík, sem á nýliðnum vetri höfðu
brugðið sér í Reykjafjörð af Steingrímsfjarðarheiði yfir Drangajökul. A