Ferðir - 01.06.1993, Page 5
F E R Ð I R
5
i
A flugbrautinni í Reykjafirði 10. júlí 1992. Farangri hlaðið á vagn Ragnars bónda í
Reykjaflrði. (Ljósm. Guðmundur Gunnarsson)
sonar, er sérhæft hefur sig í leiðsögn um Homstrandir og aðrar eyði-
byggðir norðanverðra Vestfjarða undanfama tvo áratugi. Ferðinni var
heitið yfir Reykjafjarðarháls, norður í Þaralátursfjörð. Hálsinn er lágur og
rís aflíðandi með klettabeltum og mýrarsundum upp frá undirlendi
Reykjafjarðar en fellur mun brattar niður í Þaralátursfjörð. Rétt á móts
við þar sem komið er niður, rís upp af sléttlendinu klettahöfði sem nefnist
Ospakshöfði. Hann dregur nafn af óeirðamanninum Óspaki Kjallakssyni.
sem við er kennd Óspakseyri í Bitrufirði. Fomar sögur segja hann hafa
farið með ránskap og ófriði um Strandir og lauk svo að heimamenn sóttu
að honum og drápu hann þar á höfðanum.
Undirlendi er nokkurt í firðinum og sæmilega grasi gróið næst hlíðar-
rótum. Annars staðar er það snoðið og snögglent, gras gisið en víðiklær
inn á milli. Sérstaka athygli þess, sem þetta ritar, vöktu litlir brúskar af
vænum fjallagrösum sem breiddu úr sér í vætunni innan um grasið. Ekki
minnist hann þess að hafa áður séð fjallagrös á svæðum rétt yfir sjávar-
máli heldur hærra til fjalla og heiða. Stefnan var tekin út til sjávar og svo
meðfram sjónum fyrir Þaralátursnesið, en svo nefnist hálsinn eftir að
hann gengur í sjó fram milii fjarðanna. Ekki löngu eftir að náð var fram