Ferðir - 01.06.1993, Page 6
Sngunarmylla ReykjafjarSarbœnda. (Ljósm. Guðmimclnr Gwmarsson)
til sjávar litu menn stóran fugl á flugi yfir firðinum. Kvað Gísli leiðsögu-
maður upp úr með það, að þar væri haföm á ferð. Hlíðin meðfram sjón-
um er fyrsta spölinn brött með miklum klettabeltum efst. A einum stað
gengur stórgrýtisurð í sjó fram, samansett af þeim risabjörgum að með
ólíkindum má virðast. Klöngruðust ferðalangarnir þó þar yfir án stór-
slysa. Þegar utar dregur lækkar hálsinn og nærri nestánni verður jafnvel
nokkurt undirlendi við sjó fram.Þar er ljós skeljasandur í fjöru og kvað
Gísli leiðsögumaður staðinn heita Hvítsanda. Þar stóð fyrrum býli sem
bar sama nafn ellegar nefndist Sæluvellir. Þar vissi Gísli að væri tófu-
greni í bæjarrústunum, en við nánari athugun virtist skolli ekki hafa
hreiðrað um sig þar á þessu vori.
Þegar fyrir nesið er komið og inn með Rcykjafirði er hlíðin aftur brött
með háu klettabelti efst. A einum stað er í klettunum hellir sem komast
má upp í séu menn ekki mjög þjáðir af lofthræðslu. Urðu enda nokkrir
ferðalanganna til þess að prófa það ferðalag. Þegar göngunni með sjónum
lýkur og komið er að nyrðra fjarðarhomi Reykjafjarðar, er örskammt yfir
á klettatanga þar sem stendur sögunarmylla þeirra Reykjafjarðarbænda. I
henni vinna þeir á sumrum rekavið í staura, planka og jafnvel borðvið.