Ferðir


Ferðir - 01.06.1993, Page 19

Ferðir - 01.06.1993, Page 19
F E R Ð I R 19 SundUmt’in í Reykjafirði og húningsk/efar. (Ljósne Guðmundur Gunnarsson) var orðið meira eða minna slæpt eftir erfiði dagsins valdi hver sér það sem hann áleit auðveldustu og skemmstu leið yfir hálsinn. Dreifðist hóp- urinn því en um kl. 7 voru allir komnir í tjaldstað. Eftir kvöldmat var ællunin að hafa varðeld og kvöldvöku. Safnast var saman við stæði fyrri varðelds og bál tendrað. í kvöldkulinu hiýjaði fólk sér við eldinn og hóf söng. Ekki náðist þó verulega góð stemning, enda var aðkomufólk úr öðrum ferðahópum, frá Útivist og Ferðafélagi íslands, í meirihluta og einhvern veginn samlöguðust þessir þjóðflokkar ekki. Osjálfrátt dró fólk sig aftur heim í tjöld og tók upp sönginn þar. Entist sú skemmtun fram eftir kvöldi enda ekki örgrannt um að einhverjir lumuðu á söngvatni til liðka raddböndin og lyfta stemningunni. Þau sem þraut- seigust voru, héldu gleðinni uppi vel fram yfir miðnætti. Fimmtudagur ló. júlí. Ljóst varð um morguninn, þegar fólk kom á fætur, að undanfarandi sól- skinsdagar voru liðnir. Loft var skýjað og grámóskulegt en ekki úrkoma svo heitið gæti. Það kom sér líka betur, því aðalverkefni fólks að loknum

x

Ferðir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ferðir
https://timarit.is/publication/1888

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.