Ferðir - 01.06.1993, Síða 21
F E R Ð I R
21
INGVAR TEITSSON:
/
Könnunarferð í Odáðahrauni
14.-16. ágúst 1992
Dagana 14.-16. ágúst 1992 fór hópur frá FFA að kanna gönguleiðir og
skálastæði í Odáðahrauni. í hópunum voru: Þór Þorvaldsson. Jakob Kára-
son, Herborg Herbjörnsdóttir, Friðrik Vagn Guðjónsson og undirritaður.
Fyrsta kvöldið var ekið inn í Dreka og gist þar. Þaðan fóru svo Þór, Friðr-
ik Vagn og undirritaður að morgni hins 15. ágúst gangandi norðvestur yf-
ir Dyngjufjöll til að kanna gönguleiðina úr Dreka í Dyngjufjalladal.
Lagt var upp frá Dreka kl. 10 að morgni í suðvestan golu og léttskýj-
uðu veðri. Gengið var upp á fjöllin rétt norðan skálans og haldið þvert
vestur fjöllin nokkuð norðan Drekagils til að sleppa við gildrag sem
gengur út úr Drekagili norður í fjöllin. Eftir 45 mín. göngu vorum við
komnir í um 1040 m hæð við norðurenda þessa gildrags (Dreki er í um
760 m hæð y. sjó). Þaðan var gengið vest-suðvestur fyrir endann á gili
sem kemur upp frá skála vísindamanna við Öskjuop. Um 1 km þar fyrir
vestan var komið fram á barm Öskju, í ca. 1300 m hæð eftir um 2ja klst.
göngu frá Dreka. A leiðinni upp fjöllin að austan var hið besta útsýni yfir
öræfin austan Dyngjufjalla, allt til Snæfells og Eyjabakkajökuls. Á
þessari leið er víða hægt að fylgja götuslóða. Er þetta mjög þokkalegt
gönguland, lengst af á grófa, ljósa vikrinum frá Dyngjufjallagosinu 1875.
Utsýnið af austurbarmi Öskju er mjög tilkomumikið, yfir Öskjuvatn,
Þorvaldsfjall og eyjuna í vatninu. Velja má um tvær leiðir þaðan niður að
Víti: I fyrsla lagi má þræða barm Öskju norðvestur á hnjúk (1353 m)
beint austur af Víti og fara þaðan niður í Öskju, annað hvort beint niður
að Víti eða suður og niður hlíðina að upptökum Bátshrauns og svo niður
með hrauninu og eftir götuslóða að Víti. Við völdum hins vegar að ganga
skáhallt niður hlíðina norður með austurhlið Öskjuvatns. Er það þokkaleg
leið og brennisteinshverir í gili einu á þeirri leið sem fróðlegt er að skoða.
Ekki skal fara of nærri vatninu, heldur vera uppi á hjalla í hlíðinni, ca.
100-150 m yfir Öskjuvatninu. Þegar komið er nærri Víti, er gengið yfir
Eldána sem myndaði Bátshraunið, rétt sunnan Vítis. Greinilega sést
hvernig þessi eldá kemur úr gíg, dálítið hæn-a uppi í hlíðinni, við
norðausturhom Öskjuvatns. Eldáin fellur fram af mjög bröttum stalli