Ferðir - 01.06.1993, Blaðsíða 23
F E R Ð I R
23
Horftyfir Bátshraun og Víti úr hlíðinni við norðausturhorn Öskjuvatns.
(Ljósm. Ingvar Teitsson)
er út að gígunum frá 1961. Þaðan er stutt (1 km) norðvestur yfir Öskjuop
og þar má trúlega finna sæmilega gönguleið á sandi eða snjó milli hrauns
og hlíða sunnan undir fjöllunum norðan Öskju vestur að Jónsskarði.
Gangan yfir hraunið frá vörðunni vestan Vítis að rótum Jónsskarðs tók
1 klst. 45 mín. Þaðan er greiðfært upp á Jónsskarð, hækkun um 200 m.
Jónsskarð sjálft er um 1280-1300 m y. sjó. Suður af skarðinu er glæsilegt
útsýni yfir Öskju. Meðal annars blasa Öskjuvatn, Þorvaldsfjall, Suður-
skörð, Vatnsfell og Trölladyngjuskarð við augum. I góðu skyggni sést
einnig vel til Kverkfjalla, vestan Þorvaldsfjalls. Við gengum svo norður
af Jónsskarði og opnast þá mikið útsýni til norðurs og norðvesturs. Mest
ber á Bláfjalli í hánorðri en einnig sjást Sellandafjall, Suðurárbotnar,
Svartárvatn og Mývatn. Fjær sjást m.a. Kinnarfjöll og fjöliin í kringum
Glerárdal.
Ur norðurenda Jónsskarðs gengum við til norðvesturs niður Dyngju-
fjöllin. Við stefndum niður í Dyngjufjalladal, norðanvert við miðjan dal-
inn. Er þetta greið leið framan af, um melöldur og vikurhryggi. Um 2-3
km norðvestan Jónsskarðs er komið að dálítilli á sem kemur þama ofan
úr fjöllunum og verður hún greinilega mikil í leysingum. Best er að