Ferðir - 01.06.1993, Page 24
24
F E R Ð I R
A Jónsskaröi. Horfr noróur til Mývatnsfjalla. (Ljósni. Int>var Teitsson)
ganga niður með ánni að norðan, er áin þá á vinstri hönd. Um 4 km norð-
vestan Jónsskarðs fellur á þessi í þröngu gili vestur af 100 m hárri kletta-
hlíð serr: liggur í stefnu norður - suðui' norðvestan í Dyngjufjöllum, í
stefnu samsíða Dyngjufjalladal. Er þar ófært niður með ánni sjálfri en um
500 m norðan við gilið skagar nef eða hryggur vestur úr hlíðinni og er
það auðveld niðurgönguleið. Neðan við nefið er komið á flatan sand og
breiðir áin þar úr sér og hverfur fljótlega í sandinn. Svo virðist þó sem
eitthvert vatn renni stundum norður undir hlíðinni og jafnvel vestur í
Dyngjufjalladal sem liggur um 150 m lægra.
Við stikluðum yfir ána á flötum sandinum vestur af nefinu þar sem við
komum niður. Þaðan gengum við norðvestur á brún Dyngjufjalladals,
um 1.5 km norðvestur frá títtnefndu nefi. Þar er prýðileg gönguleið eftir
melhrygg til norðvesturs niður í Dyngjufjalladal. Vorum við komnir á
bílslóðina í dalnum kl. 17.50, eftir tæplega 8 klst. útivist. Þar af tók gang-
an frá suðurrótum Jónsskarðs niður í Dyngjufjalladal um 2 klst. 20 mín.
Þar sem við komum niður í Dyngjufjalladal, var enn töluvert vatn í
ánni sem rennur norður dalbotninn. Ana þraut þó alveg um 2-3 km norð-
ar. Þarna í dalnum mæltum við okkur mót við Jakob og Herborgu sem