Ferðir - 01.06.1993, Qupperneq 36
36
F E R Ð I R
13. 10.-16. júlf: Hornstrandir. Reykjafjörður norður. Fararstjóri Jakob
Kárason. Leiðsögumaður Gísli Hjartarson. Kokkur Guðrún Friðriksdóttir.
Þátttakendur 22.
14. 18.-25. júlí: Sumarleyfisferð. Breiðdalur, Skaftafell, Lakagígar. Farar-
stjóri Karl Bragason. Kokkar Ásta Ólsen og Vildís Jónsdóttir. Þátttakendur 20.
15. 31. júlí-3. ágúst: Gæsavatnaleið, Askja, Herðubreiðarlindir. Fararstjóri
Karl Bragason. Kokkar Ásta Olsen og Guðrún Friðriksdóttir. Þátttakendur 24.
16. 8.-9. ágúst: Héðinsfjörður, gönguferð. Fararstjóri Óskar Finnsson. Þátt-
takendur 7.
17. 9. ágúst: Héðinsfjörður, bátsferð. Fararstjóri Leifur Brynjólfsson. Þátt-
takendur 16.
18. 22.-23. ágúst: Villingadalur, Nýjabæjarfjall, Austurdalur. Fararstjóri
Angantýr H. Hjálmarsson. Þátttakendur 6.
19. 23. ágúst: Austurdalur. Þátttakendur 4.
20. 25. sept.: Kambsskarð. Fararstjórar Þór Þorvaldsson og Ingvar Teits-
son. Þátttakendur 8.
F.h. Ferðanefndar:
Ragnhildur Bragadóttir.
Skýrsla Þorsteinsskála- og
Strýtunefndar 1992
Farnar voru þrjár vinnuferðir í Lindir á árinu.
Opnunarferðin var farin 5.-8. júní. Þátttakendur voru 24, þar af einn frá
Egilsstöðum og tveir frá Húsavík.
Skipt var um kyndingu í Þorsteinsskála og settur upp hitavatnskútur og nýtt
reykrör. Stjórnuðu þeir Karl Magnússon og Egill Geirsson þessurn endurbót-
um.
Brúin frá snyrtihúsinu að tjaldsvæðinu flaut upp og skemmdist nokkuð
seinnipart júlí sumarið áður en var nú endurbyggð á sama stað og sett á nýjar
og hærri undirstöður. Verkinu stjórnaði Tryggvi Hjaltason.
Settur var upp sturtusjálfsali í snyrtihúsinu. I skýrslu skálavarða er honum
lýst sem einhverri mestu tækninýjungu þar um slóðir og er sagður lýsa hugviti
sem ekki á sér samjöfnuö. Hönnuður þessa tækniundurs var Níls Gíslason hjá
DNG.
Smíðaður var nýr ruslabrennari sem staðsettur er við ármót Kreppu og Jök-
ulsár. Þeir bræður Reynir og Egill Geirssynir ásamt Jörundi Torfasyni smíð-
uðu hann.