Ferðir - 01.06.1993, Síða 37
F E R Ð I R
37
I Strýtu var settur upp klæðaskápur, rúmstæði og hillur sem Sigurður Ey-
vald hafði smíðað um vorið, einnig stikur á gönguleiðir.
Upplýsingatallan langþráða sem Magnús Tryggvason smíðaði var nú sett
upp á bílastæðinu og mæltist sú framkvæmd vel fyrir af gestum og gangandi.
Þrifadeildin vann sitt verk með miklum ágætum; öll hús á staðnum skrúbb-
uð í hólf og gólf. Því verki stjómaði Asdís Ivarsdóttir.
Vel var séð fyrir matföngum sem endranær en Asta Olsen stýrði matar-
gerðinni af röggsemi.
Helgina 13.-14. júlí fóru þeir Sigurður Jónsson og Jóhann Björgvinsson á
Isuzu pallbíl Ferðafélagsins upp í Lindir. Ætlunin var að mála Strýtu utan en
ekki viðraði til slíkra verka og sótti undirritaður þá upp að Grafarlandaá á
fólksbfl. Kári yfirlandvörður selflutti þá þangað á sínum fjallabíl.
Síðustu ferð sumarsins, lokunarferðina, fóru þau Tryggvi Hjaltason og
Fjóla Helgadóttir 30.-31. ágúst til að hjálpa Kára að ganga frá öllu fyrir vetur-
inn.
Samtals störfuðu á vegum nefndarinnar um 60 manns sem skiluöu um
1475 tímum í sjálfboðavinnu. Einnig fékk félagið gefið efni og áhöld sem
metin voru á um 150.000 kr.
Alúðarþakkir til allra sem studdu okkur og störfuðu á vegum félagsins síð-
astliðið ár.
F.h. nefndarinnar:
Huiiktir Ivarsson.
S
Arsskýrsla Drekanefndar 1992
Eins og undanfarin ár hófst undirbúningur að árlegri vinnu og opnunarferð í
Dreka snemnta í maí. Útvegað var ýmiss konar efni til viðhalds skálans og
annarra framkvæmda. Bar þar hæst smíði á tveimur nýjunt könirum því að
veturinn áður fuku tveir kamrar og brotnuðu í spón. Kamrarnir voru smíðaðir í
bænum en fluttir ósamansettir uppeftir.
Það var um hvftasunnuna, sem var snemma í júní, að opnunarferðin var
farin, 14 manns á 4 jeppum.
Það sem framkvæmt var var m.a. að kamrarnir voru reistir og gengið frá
þeim. Sett var upp annað reykrör í staðin fyrir það gamla sem hafði fokið um
veturinn en það var orðið lélegt vegna tæringar. Rörið sem sett var upp var
fengið í Þorsteinsskála en þar var sett nýtt reykrör.
Endurnýjaðir voru innstu 200 m af vatnsleiðslunni en hrunið hafði á hana á
mörgum stöðum innst í gilinu og var hún horfin víða. Einnig hafði hrunið á
leiðsluna framarlega í gilinu og þurfti þar að skipta um smábút. Að því loknu
komst vatn á. Settar voru upp sólarrafhlöður á varðhúsið fyrir Ijós og farsíma,
einnig var varðarhúsið málað að utan.