Ferðir - 01.06.1993, Qupperneq 39
F E R Ð I R
39
skilrúmin voru fjarlægð og nú sett á öðrum stöðum, svo var parket sett á gólf-
ið og frárennsli lagt undir húsið fyrir væntanlegan eldhúsvask. Byrjað var á að
skipta um húsgögn og komið var með tvö ný borð og 11 stóla. Inni í húsinu er
eldhúsbekkur og vaskur. Það skal tekið fram, að meirihlutinn af þessum fram-
kvæmdum var unninn af vélsleðamönnum í félagi við Laugafellsnefndina og
efnið var að miklu leyti komið frá þeim, félaginu að kostnaðarlausu.
Samantekin vinnustundafjöldi á árinu var 1040 stundir.
UlfarS. Hreiðarsson
Ársskýrsla Lambanefndar 1992
í framhaldi þess að stikuð var gönguleið á Súlur sumarið 1991, ákvað Lamba-
nefnd að stika gönguleiðina inn í Lamba á Glerárdal.
Fljótt upp úr áramótum var keypt efni í 130 stikur og þær málaðar. 15. apríl
var farið á vélsleðum með stikurnar og þeim dreift á leiðina. 8. ágúst var síðan
farið og stikurnar reistar. Þá voru og sett upp skilti rétt innan öskuhauga, sem
vísa á gönguleiðirnar á Súlur og Lamba.
Gönguleiðin (stikuleiðin) liggur fyrst inn gilbarm Glerár og síðan sveigir
hún upp á brúna á Fremri Lambá og þaðan í beina stefnu á, og yfir Grenishól-
ana og að Lamba. Alls um 10 km. Þetta var fjármagnað af Atvinnumálanefnd
Akureyrar með kr. 94.000. Að minnsta kosti fjórum sinnum hefur verið farið í
Lamba til eftirlits á árinu.
Þórveig Hallgrímsdóttir saumaði og gaf okkur ný ver utan um dýnurnar og
rölti sjálf með þau inneftir í ágúst og skipti um ver. Tveir hjólreiðamenn hjól-
uðu langleiðina inneftir í ágúst með teppi, einnig sópuðu þeir og tóku til.
Ingvar o.fl. tóku til og hirtu rusl, er þeir voru að athuga með brúarstæði þann
10. okt. Um áramót voru Ingvar og Jakob að mæla snjódýpt á brúarstæði og
tóku þá til í skálanum, settu olíu á kabyssuna og tóku rusl í bæinn. I Lamba
hafa verið skráðar 155 gestakomur á árinu og þar af 32 gistinætur. Tæpar 5000
kr. voru í bauknum og e.t.v. hafa komið inn einhverjir gíróseðlar. Núna í ár
verður stærsta verkefni Lambanefndar að starfa með gönguleiðanefnd að brú-
arsmíði yfir Glerá og ef til vill taka upp 15 ára gamalt starf við gönguleiðakort
á Glerárdal.
I Lambanefnd 1993 voru: Jakob Kárason, Vorsveinn Friðriksson, Anna
Torfadóttir, Gunnar Helgason og Ingvar Teitsson.
31. desember 1992
F.h. nefndarinnar
Jakob Kárason