Úrval - 01.08.1963, Qupperneq 61
ERFIÐLEIIÍAR EVRÓPSKRA FLUGFÉLAGA
73
t ins í borgum víðs vegar um
f beim, cn þjónusta sú er fólgin
í þvi að hjálpa farþegum að
verzla, litvega þeim tíma á hár-
j greiðslustofum, o. s. frv Swiss-
air býður farþegum á fyrsta far-
j rými á flugi milli Evrópu og
Ameríku að velja sér fyrir fram
hvern þann rétt, sem þeir óska
sér, og eru þeir réttir siðan
bornir farþegunum á leiðinni.
Það virðist ekki vera mikill
hundraðshluti farþega, sem læt-
ur tælast af þessum brellum né
lokkast af munaðinum. Árið
1901 breyttu meira en 50%
allra flugfarþega um og' völdu
sér nú hin ódýrari skemmti-
ferðamannafarrými í stað
þeirra.
Þeir, sem hlut eiga að máli,
gera sér nú grein fyrir því, að
flestir aðrir en farþegar, sem
ferðast reglulega á kostnað fyr-
irtækja, velja sér ekki flugvél
vegna matarins, framleiðslunn-
ar eða ilmvatnsins, sem flug-
freyjurnar nota. Flest fólk flýg-
ur til þess að komast frá einum
stað á annan með öryggi, hraða,
þægilegum hætti og á sann-
gjörnu verði, og það vill gjarn-
an fórna einhverju af munaðin-
um fyrir ódýrari miða. John
Mann, fyrrverandi forstjóri
flugfélags, sagði lesendum „The
Times“ þetta nýlega: „Ef far-
þeginn gerði sér grein fyrir
kostnaðarverði léttrar máltíðar
á 50 mínútna flugleið, myndi
honum sjálfsagt svelgjast á.
Flugfélagið þarf að sjá fyrir
fleira starfsfólki vegna fram-
leiðslunnai’, alls konar þungum
og fyrirferðarmiklum tækjum í
sambandi við geymslu og' fram-
reiðslu matarins, en slíkt þýðir,
að flugvélin getur ekki tekið
eins marga farþega eða annan
fiutning."
Ein lausnin væri alþjóðlegt
samkoinulag um að binda endi á
ókeypis máitíðir í stuttuin ferð-
um, en sum félög leggja geysi-
lega mikið upp úr orði því, sem
fer af góðri þjónustu þeirra.
Forsvarsmenn Swissair segja:
„Það er einmitt þessi aukaþjón-
usta, sem leggur áherzlu á þæg-
indi og munað, sem hefur hald-
ið flugfélagi i svo litlu landi
sem Sviss er samkeppnisfæru.
Við erum gestgjafaþjóð, og það
er gömul hefð hjá okkur að veita
alveg sérstaklega góða þjónustu.
Sú hefð hefur hjálpað Swissair,
og við viljum halda henni við.“
Framtíðarmöguleikar flug-
flutninga eru stórkostlegir þrátt
fyrir hina neiltvæðu þætti. Enn
ferðast aðeins einn Evrópumað-
ur af hverjum hundrað reglulega
flugleiðis. Sir William Hildred,
aðalframkvæmdastjóri IATA, lít-
ur á hina eftirtektarverðu
þenslu hins evrópska sameigin-