Úrval - 01.12.1963, Síða 154
166
U lí V A L
áfram um ævi sína þar vestra
og' minntist hlýlega á Joe Good-
man, eiganda Virginia City
Enterprice.
„Nú hann virðist vera vinur
þinn! Er hann það?“ spurði
Langdon.
„Vissulega er hann það; sá
bezti, sem ég hef nokkurn tíma
átt.“
„Nú, og hvers vegna bentirðu
mér ekki á hann?“
„Sökum þess að hann liefði
skrökvað jafn óhikað á hinn
bóginn. Hinir eignuðu mér alla
gallana, Goodman hefði eignað
mér allar dyggðirnar. Þú vildir
fá óhlutdrægan vitnisburð. Ég
vissi, að hann fengist ekki frá
Goodman. Ég hélt að þú mundir
fá hann frá þessum, sem ég
nefndi, og ef til vill hefurðu
fengið það. En vissulega bjóst
ég við að hann yrði ofurlitið
lofsamlegri en þetta.“
Jervis Langdon leit á Sam,
ýtti frá sér þessum dómhörðu
bréfum og' tók ákvörðun sina
á eigin spýtur.
„Ég ætla að vera vinur þinn
sjálfur. Taktu stúlkuna. Ég
þekki þig betur en þeir.“
Jervis Langdon, sem hafði
verið svo harður andstæðingur
reyndist nú sterkur bandamað-
ur. Hann útvegaði Sam ritstjóra-
stöðu við Buffaio Express. Elm-
ira var 145 mílur frá Buffalo
og Sam fór vikulega á milli í
nokkra mánuði. En „The Inno-
cents Abroad“ leystu brátt úr
fjárhagsáhyggjum Sams. Fljót
lega eftir útkomuna varð hún
metsölubók. Á einum mánuði —
des. 1869 — seldust 12000 ein-
tök. Þar sem Sam var nú nægi-
lega fjáður til þess að stofna
heimili, var brúðkaupsdagurinn
ákveðinn 2. febrúar, 1870. Og
Sam var ofsaglaður.
Marlc Twain var 34 ára er
hann kvæntist Oliviu i húsi
föður hennar. 15 manna fylgdar-
lið fylgdi þeim í brúðkaups-
ferðina til Buffaio: Foreldrar
Livyar, Pamela systir Sams, 17
ára dóttir hennar Annie, prest-
arnir tveir, sem framkvæmdu
hjónavígsluna og' konur þeirra
og svo skari af frændum og
vinum fylgdu þeim Sam og
Livy í einkalest.
Enda þótt fyrsta bók Sams
gæfi góðar tekjur, var það skyn-
samleg krafa, að Sam léti sér
nægja sin litlu ritstjóralaun til
að lifa af. Hann hafði inigsað
sér að koma brúði sinni fyrir
i matsöluhúsi og beðið vin sinn
að tryggja sér slikan stað. Það
sauð því niðri í honum þegar
áætlanirnar fóru út í veður og
vind.
„Þegar til Buffalo kom, vor-
um við sett á nokkra sleða
og ekið um þvera og endi-