Úrval - 01.12.1966, Blaðsíða 7
RÁÐGÁTAN UM HIÐ HEILAGA LÍKKLÆÐI
5
kórónu. Einnig er holund á hægri
síðu, sem spjót gæti orsakað. Og
sár eftir stóran nagla, sem gekk
gegnum báða fætur samtímis. Vér
vitum samkvæmt guðspjöllunum,
að þannig var farið með Krist vegna
dæmafárra kringumstæðna, og það
er mjög vafasamt, að sama röð af
ofbeldisverkum og geigvænlegum
misþyrmingum hafi verið látin bitna
á nokkrum öðrum manni.
Það er ekki erfitt að skýra hvern-
ig líkklæði getur hafa varðveitzt í
nítján aldir. Til eru 2000 ára gömul
egypsk líkklæði, sem ennþá eru
eins og ný. En vér höfum engin
söguleg skilríki, sem rekja sögu
líkklæðis þessa til Krists. En það er
ekki fjarstæða að ætla, að sökum
varúðar og af trúarlegum ástæðum
hafi ekki verið á líkklæði þetta
minnzt fyrstu aldirnar eftir Krist.
Hins vegar fara sagnir um slíkt
klæði að koma fram þegar á fimmtu
og sjöttu öld, og svo úr því með
svipuðum millibilum allt fram til
ársins 1355, en þá segir af því í
Lirey á Frakklandi, og þangað var
það flutt af krossferðarriddaranum
George I de Charney lávarði. Upp
frá því er saga þess óslitin og
greinileg.
En þótt hinar sögulegu sannanir
séu ekki fullnægjandi, benda sterk-
ar líkur til þess, að hér sé um lík-
klæði það að ræða, sem Kristur var
sveipaður, er hann var lagður í
gröfina.
Meðlimum beggja nefndanna kom
saman um það, eftir efnagreiningu
á blóðblettunum, að úr sárinu hafi
runnið bæði blóð og vatn (serum),
og að þetta sé ábyggilegur vottur
þess, að maðurinn hafi verið andað-
ur þegar hermaðurinn rak spjótið
í síðu hans.
Það var einnig alveg sérstök und-
antekning, hvernig líkaminn var
sveipaður líkklæðinu. Menn höfðu
þann sið til forna að þvo og smyrja
lík og vefja um það línrenningum,
auk þess sem það var sveipað lík-
klæði. f þessu tilfelli, sem hér um
ræðir, var líkið blátt áfram sveip-
að þessu langa línklæði einu sam-
an, sem ilmdufti hafði verið stráð
á, blandað alói, og enda þótt líkið
væri alþakið svita og blóði, var það
ekki þvegið eða á annan hátt búið
undir greftrun.
En það var einmitt þetta, sem átti
sér stað með líkama Krists. Hann
var lagður í gröfina sveipaður að-
eins „hreinu línklæði", alveg eins
og hann var tekinn niður af kross-
inum. En ástæðan var sú, að sabb-
atsdagur Gyðinga var að byrja, svo
nauðsynlegt var að fresta greftr-
unarathöfninni.
Og svo að síðustu gat líkaminn
ekki legið í líkklæðinu það lengi,
að rotnunin næði að komast á ann-
að stig, að öðrum kosti mundi
myndin hafa eyðilagzt. Guðspjöllin
segja að þessu hafi verið þannig
farið.
Enda þótt nokkur vísindaleg við-
fangsefni- þessu viðkomandi séu
ennþá óleyst, er ég sannfærður um,
að niðurstöður rannsókna vorra
með aðstoð guðspj allanna fái stað-
fest hina aldagömlu trú manna á
myndunum í líkklæðinu, sem sé,
að það hafi verið Kfristur, sem
skildi förin eftir í línklæði þessu,