Úrval - 01.12.1966, Blaðsíða 16
14
ÚRVAL
hefði svo horfið þegar ég kallaði
út.“
Næst síðasti eigandi hússins var
verzlunarmaður um fimmtugt,
sagði mér að hann og kona hans
hefðu búið aðeins eitt ár í húsinu.
Hann sagðist hafa selt það vegna
þess að kona hans hefði staðhæft
að draugur væri í því, og honum
hafði ekki tekizt að sannfæra hana
um, að svo gæti ekki verið.
Nú eru liðin tvö ár síðan við
heyrðum fyrst hljóðin í borðstof-
unni og síðan frú Dahlfeld „sá“
vofuna. Þrjátíu og sex skyggnir
menn og konur, miðlar og rann-
sóknarmenn hafa heimsótt okkur
og allir sameinazt um þá ályktun,
að það væri reimt í húsinu. Einnig
höfum við skýrslur frá vinum okk-
ar, sem styðja þetta álit.
Lögreglumenn og sérfræðingar
sem fengir hafa verið til að rann-
saka húsið, hafa engin leynigöng
fundið. Engir íkornar eru í þak-
skegginu, engar greinar slást í
glugga. Jarðfræðingur hefur stað-
fest að jarðvegur sé hér ekki breyti-
legur. Byggingaverkfræðingur
hefur einnig staðfest að húsið sé
fullkomlega traust.
Ef hér er reimt, hver er þá draug-
urinn? Við Elke höfum eytt tölu-
verðum tíma í að tengja þennan
draug við einhver skyldmenni okk-
ar, fjölskyldur, húsið sjálft eða
fyrrverandi eigendur þess. Allar
þær tilraunir hafa ekki leitt til
neinnar lausnar. Skýringar eins og
þessi um lækninn eru of óljósar til
að þær séu verulega sannfærandi.
En hver eða hvað sem þessi draug-
ur er, þá höfum við ekki í hyggju
að láta hræða okkur út úr húsinu
okkar.
En fyrir fáeinum kvöldum fór ég
í rúmið, eftir að hafa lokað og læst
öllum dyrum á neðri hæðinni og
litið eftir glugganum. Ég bjóst við
að nóttin yrði róleg. Rétt í því ég
var að sofna, hnippti Elke í mig
og sagði: „Hlustaðu". Ég settist upp
og hlustaði. Stólarnir í borðstof-
unni voru enn einu sinni komnir á
kreik.
Þegar Robertsson Davies ritstjóri ávarpaði fundarmenn læknafélags
Torontoborgar, sagðist hann verða að gefa þeim skýringu á því, hvers
vegna hann færi svona hjá sér: „Sko, ég er viss um, að þið skiljið
þetta. Ég er nefnilega ekki vanur að tala við lækna svona alklæddur.*'
Medical Tribune
Faðir, sem er alger fáviti, vill koupa notaðar trumbur handa ungum
syni sínum, sem er snillingur.
Úr Beacon-News í Aurora, Illinois.