Úrval - 01.12.1966, Side 44

Úrval - 01.12.1966, Side 44
42 ÚRVAL gæzluaðferð. Ef óholt er að éta einhverja vissa dýrategund á viss- um tíma, lýsir „tohunga“ því bara yfir, að hún sé nú „tabu.“ Landamœri trúarfélaganna. Kaþólskur prestur kom nú til okkar og fór að tala við okkur. Þetta var fjörlegur, lágvaxinn maður. Það var eins og einn af fiör- legu álfunum í gömlu ævintýrun- um væri kominn á meðal vor. Þetta var Faðir Wanders, trúboðinn, sem hafði komið hingað til Nýja Sjá- lands frá Evrópu fyrir mörgum ár- um og var nú samrunninn lífi Ma- orianna líkt og dökku hæðirnar úti við sjóndeildarhringinn. „Þeir eru dásamlegir menn, Maoriarnir", sagði hann, „mjög greindir og mjög andlega sinnaðir. En öðru hverju gerist ýmislegt þeirra á meðal, sem vekur furðu manns. Eitt sinn hafði ég gert fjöl- skyldu gamallar Maorikonu greiða og hún gaf mér „tiki“ úr græna- steini, nokkurs konar hálsmen, sem Maoriarnir halda mikið upp á. Þetta var gamall ættargripur, eins og margir „tiki“ eru, og hafði geng- ið að erfðum kynslóð fram af kyn- slóð. Áður en gamla konan gaf mér gripinn, hélt hún langa ræðu um hann, líkt og hann væri persóna. Hún útskýrði, hver ég væri og hvað ég hefði gert fyrir fjölskylduna, svo að gripurinn skildi, hvers vegna hún væri að gefa mér hann. Hún lauk svo máli sínu með því að segja að hún mundi stöðugt biðja þess, að hann yrði hamingjusamur í sínu nýja lífi.“ Við flugum áfram til hverasvæð- isins í Rotorua, þar sem allt úir og grúir af heitum uppsprettum og gjósandi hverum. Þetta er nokkurs konar kjarni Maoribyggðanna. Maorikonur voru þar að þvo þvotta sína í lindum, sem voru fullar af sírennandi heitu vatni. í lítilli mót- mælendakirkju þar nálægt tóku klukkurnar að hringja. Fylgdarmaður okkar, virðulegur og glæsilega klæddur Maori, hlust- aði á klukkurnar. Svo sagði hann: „Við Maoriarnir erum líklega um- burðarlyndustu menn á jarðríki, hvað trúarbrögðin snertir. Hér eru til fjölskyldur, þar sem eitt barnið er mótmælandi, annað kaþólikki, enn annað mormóni og svo loks er annað Ringatu. Ringatu er sérstak- ur Maoritrúarflokkur, sem grund- vallar kenningar sínar að mestu leyti á gamla Testamentinu. Þegar trúboðar mótmælenda og kaþólikka komu hingað um alda- mótin, urðu Maoriarnir alveg ringl- aðir. Þeir gátu ekki séð neinn mun á þessum tveim trúarfélögum. Einn forfeðra minna var þá ættarhöfð- ingi, og hann fann mjög einfalda lausn á þessu vandamáli. Hann dró strik þvert yfir byggðina og sagði: „Þið, sem eruð hérna megin striks- ins, verðið mótmælendur, en þið hinum megin verðið kaþólikkar." Og þannig hefur þetta verið alla tíð síðan. Maorilöppin. Fylgdarmaður okkar ók okkur til þjóðgarðsins, sem líktist Gul- steinaþjóðgarðinum hér í Banda- ríkjunum,þar sem vall ogkraunaði í
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.