Úrval - 01.12.1966, Page 71

Úrval - 01.12.1966, Page 71
6y MAÐURINN, SEM RITAÐI SÍNA EIGIN ... mig, að verða mér úti um sígarett- ur. Ég gerði ýmis viðvik fyrir hina og aðra til að afla mér peninga fyr- ir sígarettunum, og ég reykti allar tegundir af þeim, sem á markaðn- um voru og jafnvel þær einkenni- legustu, eins og Melachrino Omar, English Ovals, og mér fannst ég mjög mikill heimsmaður, en ég get ekki sagt, að mér þætti gott að reykja þær. Skuggar kreppunnar miklu byrjuðu að falla á árið 1928 og þegar harðnaði í ári fór pabbi að telja sígaretturnar í pakkanum sínum, og ég tók til að tína vindi- ingastubba upp af götu minni. Við vorum tveir við þessa iðju, og við steiktum tóbakið í ofni og snerum síðan rís-pappír utan um það. Þetta voru hræðilegar sígarett- ur. Það var engin von um starf fyrir ungling um þessar mundir, svo að ég ákvað að ganga í flotann — þar með var einum munninum færra við borðið, og ég gæti jafnvel sent heim peninga. Nú varð enginn hörgull á sígarett- um. Þær kostuðu ekki nema 40 cent þúsund stykkin fyrir okkur úti á sjó. Ég reykti tvo pakka á dag, um þessar mundir, og reykt áfergju- lega ofan í mig. Þegar ég fór úr flotanum tæpra tuttugu ára, fór ég í háskólann í Norður-Karolina fylki og þegar ég útskrifaðist fékk ég starf við San Diego Union. Það var að næturlagi, þegar ég var að ganga til bílsins míns, að ég fékk aðkenningu af slagi, og reikaði til út á vinstri hlið. Ég hafði keðjureykt þessa nótt og ég fann, að það myndi vera orsök- in fyrir þessum krankleika. Við reyndum hjónin, Muriel og ég að hætta. Við komumst í átta daga. Nú var ekki einu sinni svo, að ég nyti nokkurn tíma verulega tó- baksins, nema fyrstu sígarettunnar á morgnanna með kaffinu mínu. Það var sífellt óbragð í munnin- um á mér. Reykingarnar drógu úr eðlilegri matarlys minni. Ég mædd- ist svo hræðlega, að ég stóð iðu- lega á öndinni. Fengi ég kvef, þá var ég sárþjáður. Árið 1956, reykti ég meira en nokkru sinni fyrr og það ár kom ég til Honolulu til að vinna fyrir Star-Bulletin. Árið 1965 fór ég að finna til kvala í maganum, og ég hélzt ekki við í rúminu á nóttum nema klukkustund eða svo í einu, þá varð ég að fara framúr og drekka mjólk og reykja sígarettu. í september þetta ár fékk ég hræðilegan hósta. Ég hafði hæsi og og þ^ð var mikill sársauki í vinstra lunganu. Ég fór til læknisins míns. Hann hlustaði mig og fyrirskipaði að ég færi í gegnumlýsingu. — Þú hefur lungnabólgu, sagði hann. Fjórum dögum seinna skar lungna- sérfræðingur í lungað. Ég var kominn til vinnu minnar mánuði seinna. Ég hafði ekki reykt síðan ég hafði verið lagður inn til aðgerðarinnar. Það reyndist ekki erfitt að hætta, og það var af því, að ég hafð nú gilda ástæðu til þess. Mér heilsaðist vel, og þyngdist um
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.