Úrval - 01.12.1966, Side 72

Úrval - 01.12.1966, Side 72
70 ÚRVAL 10 pund og mér leið reglulega vel þessa daga, svo var það þann 3. janúar að ég hélt að ég hefði feng- ið slæmt kvef, og fór til læknis míns. Hann tappaði af mér tæpum lítra af rauðum vökva úr brjóstinu á mér og hann sagði: — Tíminn nálgast. Seinna sagði konan mér, að hann hefði sagt sér eftir skurðaðgerðina, að ég ætti ekki eftir nema ár ólif- að. Hún vildi ekki trúa þessu, og hún sagði mér það ekki. Mér finnst það ekki nema eðlilegt. Það eru þekktar fjórar tegundir af lungnakrabba, og vaxa þær mjög mismunandi ört. Læknirinn minn sagði mér þetta. Hann sagði mér líka, að af hverjum 20 sjúklingum, sem fengju lungnakrabba dæju 19. Þó að allt sé gert, sem hægt er til bjargar, þá lifir ekki nema einn af hverjum tuttugu. Þegar um aðrar tegundir krabba er að ræða, er hlut- fallið milli þeirra, sem læknast og hinna, sem deyja nokkurn veginn jafnt. Læknirnn minn er í heilögu stríði við sígarettureykingar. Hann segir að það leiki enginn vafi á sam- bandinu milli sígarettureykinga og lungnakrabba. Skýrslurnar ljúga ekki öllu. Það er talið að einn af hverjum átta, sem reykja sígarett- ur í miklum mæli, 20 á dag eða meira, um 20 ára skeið fái lugna- krabba. En þetta er svo sem ekki eini skaðinn, sem sígaretturnar valda líkamanum. Reykingar margfalda hættuna á æðakölkun, og jafnframt tólffalda þær hættuna á banvænni skemmd í lungnablöðrunum. Síðan er um að ræða krabba í munni af völdum reykinga, einnig í barkakýli og víðar. Ég hef grun um að læknum finn- ist þessi barátta stundum heldur vonlítil. Þeir aðvara fólk eins og mig, en við sinnum ekki aðvörunum þeirra. Það eru þessar sífelldu sígarettu- auglýsingar. Læknirinn minn sagði: — Það er eytt milljónum af dollur- um til að telja fólki trú um, að sígarettan geti bætt því hitt eða annað og létt því lífið. Á Ítalíu og í Stóra-Bretlandi hafa þeir bannað sígarettuauglýsingar í sjónvarpi. Ég held að þetta sé spor í rétta átt, því að eftir því sem lækn- irinn sagði, þá er höfuðatriðið að varna því að unglingurinn byrji. Hvort saga mín kann að valda því, að einhver hætti að reykja, veit ég ekki, ég efast um það. Ekki einn einasti af þeim, sem ég hefi talað um þetta og prédikað fyrir, hefur hætt — ekki ein einasta sála. Það hugsa allir: — Þetta kemur fyrir hann, ekki mig. En þegar þú færð lungnakrabb- ann, guð hjálpi þér þá. Þegar þú sérð á röntgenmyndaplötunni, veiztu hvað bíður þín og þú getur ekkert gert, nema beðið. Mér líður vel núna, hjúkrunar- konan er að enda við að sprauta mig. Ég á mjög erfitt með að ná andanum, ég get ekki gengð fimm skref án þess að verða að setjast niður. Krabbinn er kominn í lifr- ina og ég veit ekki hvar víðar. Ég á mér ekki lífsvon. Það er of seint fyrir mig. Það er kannski ekki of seint fyrir þig.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.