Úrval - 01.12.1966, Page 78
76
ÚRVAL
höfðu verið skotnir og mæður
þeirra fangelsaðar. Þeir fluttu
börnin í fangabúðir í Gneisenau.
William Shirer segir í hinni frægu
bók sinni Hnignun og fall þriðja
ríkisins, að börnin hafi verið 90 að
tölu, og af þessum hópi hafi loks
verið valin 7, sem nazistar töldu
nokkurn vegin „hrein,“ og þeim
komið í fóstur í Þýzkalandi. Öll
voru þau börn innan eins árs að
aldri og voru þau valin að ráði
hinna færustu kynþáttasérfræð-
inga.
Seinna fylgdu hin börnin á eftir
að sögn.
Þannig hefndu nazistarnir Heydi-
rich svo rækilega, að jafnvel hans
eigið grimmdaræði bliknaði hjá
þeim ósköpum.
f einkalífi sínu virðist Reinhard
Heydrich hafa verið siðaður og
elskulegur maður með listrænar
tilhneigingar.
— Ég kvæntist honum, af því að
hann spilaði svo guðdómlega á
fiðlu, játar ekkjan hans, Linda
Mathilda von Osten. Þau giftust
árið 1931 og Klaus, elzti sonur
þeirra fæddist 1933. Hann dó 1944
og af svipuðum orsökum og faðir
hans. Tékkneskur vörubíll ,,rakst“
á hann þar sem hann var á reið-
hjóli. Annar sonur Heydrich, Heid-
er, fæddist 1934, og Silke var fædd
1938 og því aðeins 3ja ára þegar
faðir hennar dó. í júlí 1942, mánuði
eftir að faðirinn dó, fæddist önnur
dóttir.
Fjölskyldan hélt áfram að búa í
hinu ríkmannlega húsi sínu eða
kastala í Paneske-Brezany í nánd
við Prag. Svo var það eitt kvöld
að Silke litla opnaði dyrnar fyrir
manni í dökkum einkennisbúningi.
Hann reyndist heita Heinrich
Himmler og vera mikið að flýta sér:
— Ég þarf að fá bað og eitthvað
að éta, sagði hann.
Himler var að forða sér undan
herjum Bandamanna, sem sóttu
ákaft fram.
Heydrichfjölskyldan var þá einn-
ig neydd til að flýja. Þó að undar-
legt megi heita komust þau klakk-
laust í gegnum skóga Bóhemíu og
yfir allt Þýzkaland án þess að hrófl-
að væri við þeim. Silke var hulin
undir heyi á kerru, sem þau höfðu
aftan í vagninum. Hinir fjölskyldu-
meðlimirnir þóttust vera flótta-
menn, sem hefðu týnt plöggum
sínum og skilríkjum. Loks komust
þau til foreldra frú Heidrich,
Fehrmann að nafni, sem bjuggu á
eyju í Norðursjónum. Bandamenn
létu þau afskiptalaus en Tékkarnir
dæmdu frú Heydrich til dauða og
heimtuðu hana framselda, en
Bandamenn hundsuðu þá kröfu.
Þegar þýzka stjórnin hirti það sem
eftir var af eignum Heydrichs
fjölskyldunnar gerðist frú Heydrich
fisksölukerling. Seinna tók hún til
að reka litla veitingastofu, með
hjálp dóttur sinnar Mörtu, og hef-
ur sá rekstur gengið vel.
Heider Heydrich lærði vélfræði.
A stúdentsárum sínum tók hann
þátt í eftirstríðsnazistahreyfingu og
var fangelsaður. En síðan hefur
hann spekzt og kvænzt, og vinnur
geysimikið og hefur ákveðið að tala
aldrei framar um stjórnmál, að
minnsta kosti ekki opinberlega.