Úrval - 01.12.1966, Síða 80
78
URVAL
WOLF RUDIGER HESS
„Hann vill ekki að við eig-
um um hann slœmar
minningar.“
Það var árið 1946, sem Wolf
Rudiger Hess var hleypt inn í hið
rammgerða fangelsi í Nurnberg og
hann bað um að fá að sjá hinn um-
dfeilda nazistaforingja Rudolf Hess,
sem var faðir hans. Honum var
svarað kuldalega:
— Fanginn Hess neitar að tala við
nokkurn mann.
Þetta svar hefur hinn ungi Hess
fengið mánaðarlega um tuttugu ára
skeið.
Þó að æviferill flestra í hinni
furðulegu nazistaklíku sé með fá-
dæmum, þá er æviferill og saga
Hess, máski furðulegasta fyrirbær-
ið. Hess er einn af þeim sem fyrst-
ir studdu Hitler og hann fór með
honum í fangelsi og var í sama klefa
eftir Bj órkj allarauppreisnina frægu
í Munchen 1923. Og það var Hess,
sem Hitler las fyrir hið fræga hand-
rit sitt af Mein Kampf. Hess var
síðar leiddur fyrir rétt í Nurnberg
og dæmdur til lífstíðar fangelsis-
vistar.
Nú er hann 71 árs og dvelur í
Spandau fangelsinu í Berlín. Þeir
eru margir, sem vilja að Hess sé
látinn laus á þeim forsendum, að
hann sé geggjaður, en það eru aðr-
ir sem segja að það sé uppgerð allt
saman sömuleiðis sé gleymska hans
uppgerð.
Rudolf Hess er annar tveggja af
hinum æðstu nazistaforingjum, sem
hefur sloppið við dauðarefsingu.
Hinn er Baldur von Schirach, sem
einnig var geymdur í Spandau.
Samt er Hess aðeins lifandi graf-
inn maður fyrir son sinn, sem seg-
ist skilja, að faðir sinn vilji ekki
láta hann sjá sig.
— Hann vill ekki að ég eigi slæm-
ar enrurminningar um hann. Hann
vill ekki að ég sjái hann lokaðan
bak við fangelsisgrindurnar.
Wolf Hess trúir því, að faðir
hans sé hvorki glæpamaður né vit-
firringur, en hann játar að hann