Úrval - 01.12.1966, Side 103
LEYNILÖGREGLUMAÐURINN ÓDAUÐLEGI
101
afmæli „Baskervillehundsins" með
leiðangri til Dartmoor, þar sem sag-
an er látin gerast. Á næsta ári munu
félagsmenn heimsækja nýopnað
Connan Doylesafn í Lucenkastala
nálægt Lausanne í Sviss. Þar getur
að líta hina frægu dagstofu þeirra
Holmes og Watsons í Bakarastræti.
Hefur hún verið endurskipulögð þar
og þess verið gætt, að hvert smá-
atriði sé í fyllsta samræmi við lýs-
ingu þá, sem kemur fram í bókum
Doyles.
Ýmisleg afbrigði af þeim vísinda-
legu sakamálarannsóknum, sem
Sherlock Holmes kynnti fyrir al-
menningi fyrir 80 árum, eru al-
mennt notuð af lögreglumönnum
enn þann dag í dag. Hann notaði
gipsmót til þess að vernda viðkvæm
sönnunargögn og ná hjólförum og
fótaförum. Hann rannsakaði ryk úr
fötum í smásjá til þess að komast að
starfi fórnardýrsins og staðfesta
fjarvistasönnun grunaðs manns eða
eyðileggja hana. Hann rannsakaði
af geysilegri nákvæmni stað þann,
sem glæpurinn var framinn á, og
allt næsta nágrenni í leit að sönn-
unargögnum eða vísbendingum,
sem tengt gætu hinn grunaða mann
við staðinn.
Verk Sherlock Holmes hafa m. a.
verið þýdd á arabisku og eru notuð
sem kennslubækur af egypzku lög-
reglunni. Franska ríkislögreglan
„Sureté" hefur heiðrað „skapara“
Sherlock Holmes með því að gefa
hinum miklu sakamálarannsóknar-
stofum sínum í Lyons nafn hans.
Arthur Conan Doyle fæddist í
Edinborg. Foreldrar hans voru ekki
efnuð. Hann hóf nám í læknaskóla
17 ára að aldri og vann fyrir skóla-
göngu sinni öll skólaárin. Dr.
Joseph Bell, hinn frægi skurðlækn-
ir og sjúkdómsgreingarfræðingur,
fékk áhuga á þessum efnilega, unga
manni og réð hann sem aðstoðar-
mann sinn. Bell bjó yfir háþróaðri
athyglisgáfu og rökvissri hugsun.
Nemendur hans voru stórhrifnir af
því, er honum heppnaðist að greina
sjúkdóma sjúklinganna, sem til
hans leituðu, og segja þar að auki
til um, af hvaða kynþætti og jafn-
vel þjóð þeir væru, og lýsa starfi
þeirra og umhverfi því, sem þeir
bjuggi í.
Við einn sjúklinginn sagði hann:
„Þér, herra minn, eruð nýkominn
heim frá eyjunni Barbados í Vest-
ur-Indíum, en þar voruð þér liðs-
foringi í hernum. Hermennskan er
þó ekki yðar ævistarf, enda hafið
þér alveg nýlega fengið lausn frá
herþjónustu. Þér þjáist af „fílasýk-
inni“ (elephantiasis).
Þegar sjúklingurinn og nemend-
urnir létu í Ijós ósvikna undrun,
veitti Bell þeim eftirfarandi skýr-
ingu: „Það má sjá það á limaburði
og göngulagi mannsins, að hann er
hermaður. Hann tók ekki ofan hatt-
inn, þegar hann kom inn í herberg-
ið, og bendir þetta til þess, að hann
hafi alveg nýlega fengið lausn frá
herþjónustu. Hann ber með sér
valdsmannssvip, einmitt þann svip,
sem einkennir liðsforingja, sem
hafa þó ekki hermennskuna að
ævistarfi. Og bæði hin sólbrúna
húð hans og sjúkdómurinn sýnir,
að hann kemur frá hitabeltislandi.
Og við það bæti ég, að hann muni
vera frá Barbados, vegna þess að