Úrval - 01.12.1966, Page 107
LEYNILÖGREGLUMAÐURINN ÓDAUÐLEGI
105
því aS sýna honum heila hrúgu af
blaðaúrklippum, sem snertu mann
nokkurn, George Edjali að nafni,
sem hafði verið dæmdur fyrir að
senda fólki hótunarbréf og fyrir
misþyrmingu á dýrum. Dómurinn
hafði hljóðað upp á 7 ára fangelsi,
en honum hafði verið sleppt að
þrem árum liðnum, vegna þess að
það lék nokkur vafi á því, að hann
væri sekur. En ríkisstj órnin hafði
samt enn neitað að náða hann form-
lega og veita honum fulla sakar-
uppgjöf, og hann hafði glatað leyfi
sínu til þess að starfa sem lögfræð-
ingur.
Conan Doyle yfirheyrði nú Edjali
og athugaði öll málsatvik. Að því
loknu gerðist hann sannfærður um,
að Edjali hafði verið saklaus af
glæpum þessum, en einhver hefði
vísvitandi komið sökinni á hann,
rtann sagði að lögreglan ætti a£
íeita aö manni, sem hefði verið i
siglingum. Nafnlausu hótunarbréí-
in höfðu borizt með vissu, allöngu
millibili, sem benti til langra sjó-
ferða, enda var vikið að sjómanna-
lífi í sjálfum bréfunum. Dýrin
höfðu verið særð með hníf eða
einhverju slíku áhaldi, og bentu
sárin til þess, að þessi óþekkti
glæpamaður, hafði einhvern tíma
starfað sem slátrari.
Og hið furðulega gerðist. Sér-
hver af þessum tilgátum reyndist
vera rétt. Tekið var að leita manns-
ins, og hann fannst. Hann reynd-
ist hafa starfað sem slátrara-
sveinn um tíma, og.hann hafði einn-
ig verið í siglingum á gripaflutn-
ingaskipi. Ríkisstjórnin náðaði
Edjali skilyrðislaust og veitti hon-
um fuila uppreisn æru. Og það var
að miklu leyti vegna þessa máls,
að Sakamálaáfrýjunarrétturinn var
stofnaður í Bretlandi.
Sir Arthur Conan Doyle dó árið
1930 og var þá 71 árs að aldri. Það
gerðist þrem árum eftir að hann
skrifaði síðustu Sherlock Holmes-
söguna sína. Rúm 40 ár voru liðin,
síðan þeir Holmes og Watson höfðu
byrjað starf sitt við sakamálarann-
sóknir, en í síðustu sögum Doyles
gat samt enn að líta Lundúni á
hinum glæsta 9. áratug síðustu ald-
ar þrátt fyrir allar breytingarnar.
Menn óku enn um í vögnum, dreng-
um að hestum, og stungu enn
skammbyssum niður í vasann á
slagkápum. Holmes sagði enn við
Watson með rafmagnaðri röddu
sinni: „Jæja, þá er leikurinn haf-
inn.“ Og enn kváðu við skipanir til
ekilsins: „Á Charing Crossstöðina
og gullpundspening skaltu fá, ef
þú kemst þangað á styttri tíma en
10 mínútum."
Töfrarnir eru enn fyrir hendi í
sögum þessum. Og svo mun verða
enn um langa hríð.
Eftirfarandi setning er höfð eftir leikaranum Eli Wallach: „Þegar
gagnrýnendur hrósa manni, má einna helzt líkja því við, að böðull-
inn færi að hafa orð á því, að maður hefði skrambi snotran háls.“