Úrval - 01.12.1966, Page 118

Úrval - 01.12.1966, Page 118
116 ÚRVAL um jafn fáránlegar og í hinum eldri, en skreytingarnar eru miklu lakari og ekki gerðar af nándar- nærri jafn miklu nostri og ná- kvæmni en í listaverki slíku sem Kellsbók. Enn betur má greina þessa hnignun keltneskrar bóklist- ar í Hjartarbókinni (Book of Deer), sem nú er í háskólabókasafninu í Cambridge (Deer var klaustur sem Columba stofnaði í Aberdennshire). Bókin er í litlu átta blaða broti og er hún afrit af guðspjöllunum á latínu, gerð eftir hinni eldri þýð- ingu af biblíunni, áður en sankti Jerome endurskoðaði biblíuþýð- ingu þessa. Að því er snilld snertir er þetta ekki annað en skuggi ein- tómur af keltneskri bókagerðarlist, eins og hún var þegar hún náði Úr Kellsbók. hæst, og öll virðist bókin hafa verið skrifuð af írskum skrifara á níundu öld. Þó að erlend áhrif flæddu stöðugt að, komu þó fram bæði á níundu og tíundu öld bækur, þar sem lítið eða ekki gætti áhrifa af byzanskri og ítalskri list. Og ein hin fegursta af bókum gerðum í gömlum írskum stíl er MacRegols guðspjöll, sem gerð var á níundu öld og nú er í Bodleian. Guðspjöll sankti Chads í dómkirkjunni í Lichfield er svip- að þessu, og er það ein af mörgum bókum sem nafn hlaut af nafni einhvers dýrlings, sem áður hafði lifað í klaustri þar sem handritið var skrifað. Guðspjall sankti Ágúst- ínusar, Cuthberts og Columba eru öll skrifuð löngu eftir daga þeirra dýrlinga, sem þau eru heitin eftir. Meðan keltnesk bókagerðarlist stóð hæst, var hún ekki eingöngu bundin við þá gerð lýsinga, sem kennd er við Norðymbraland, írskir uppdrættir voru teknir gildir af skrifurum í Canterbury, og einnig á meginlandi Evrópu, hvar sem „skozkir pílagrímar" höfðu haft við- dvöl, fór undir eins að bera á gormum og fléttum, og má nefna í þessu sambandi staðina Sankti Gall, Salzburg, Luzeuil og Bobbio, sem írskur lýsingastíll náði að þró- ast. Þegar írar fóru að sækjast eftir menntun meginlandsins, hnignaði allt hjá þeim og féll. Árásir norskra víkinga á landið á níundu öld, urðu þá svæsnari og víkingar fóru ráns- ferðir sínar lengra inn í landið en áður, hrukku þá munkarnir með bókiðnir sínar af landi burt og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.