Úrval - 01.06.1967, Side 39
TVÆR SKOÐANIR — TVEIR KYNÞÆTTIR
37
Eitt er víst, og það er, að þjóð
Zimþabwe mun ekki una sér hvíld-
ar, fyrr en oki hins fámenna erlenda
minnihluta er létt af landinu og við
höfum tryggt okkur rétt til sjálfs-
stj órnar.
Tónskáldið Deems Taylor kom eitt sinn jafnvel sínum beztu vinum
skemmtilega á óvart, er hann opinberaði fyrir þeim hæfileika, sem þeir
höfðu ekki haft hugmynd um, að hann byggi yfir. Hann hafði verið
kallaður fram á sviðið að loknum tónleikum og hélt þar alveg stórkost-
lega „leiksviðsræðu" fyrir nokkur þúsund áheyrendur Metropolitanóper-
unnar.
Tjaldið var fallið eftir heimsfrumsýninguna á „The King's Henchman".
Söngvararnir og hljómsveitarstjórinn höfðu komið fram á sviðið hvað
eftir annað til þess að þakka lófaklappið. Sífellt fleiri áheyrendur tóku
nú að heimta tónskáldið fram á sviðið, en allt kom fyrir ekki, þangað
til hróp þeirra voru orðin að einu samfelldu öskri. Þá loks birtist Deems.
Hann lyfti upp hendinni og bað um þögn. Áheyrendur biðu þess í
ofvæni, að hann tæki til máls. E'n þeir furðuðu sig á framkomu hans.
Fyrst sneri hann höfði sínu til hægri og svo rétt á eftir hægt til vinstri
svo að allir gætu séð vangasvip hans greinilega, og skælbrosti. Hann
sneri sér síðan beint fram til áheyrenda, brosti enn og sagði: „Jæja, nú
vil ég, að þið farið heim með minningu, sem mun endast ykkur allt lífið.
Þið eruð nýbúin að sjá sannarlega hamingjusaman mann.“
Marc Connelly
Hinn mikli töframaður Harry Houdini var fremur sparsamur mað-
ur og rauk ekki upp til handa og fóta til þess að borga reikninginn
þegar hann snæddi á veitingahúsum með einhverjum. En sjónhverfinga-
manni og gamanleikara einum í Fíladelfíu tókst eitt sinn að koma
fram grimmilegum hefndum. Maður þessi, sem hét Meyenberg, var
eitt sinn að snæða með Houdini í veitingasal Fjöllistamannaklúbbsins
ásamt tveim öðrum kunningjum þeirra.
„Houdini", sagði Meyenberg að máltið lokinni, „langar þig til þess
að sjá nýtt bragð? Legðu lófana flata á borðið."
Síðan setti Meyenberg tvö glös, barmafull af vatni, ofan á handar-
bök Houdini. Að svo búnu risu þeir Meyenberg og kunningjar hans
tveir í skyndi upp frá borðum og flýðu. „Reyndu að losna úr þessari
klípu án þess að borga reikninginn," hrópaði gamanleikarinn á hlaupun-
um.
Fulton Oursler
Auglýsingaspjald í karlmannafátaverzlun: „Látið honum finnast sem
hann sé geimfari.... kaupið handa honum síð nærföt í jólagjöf!"