Póllinn - Apr 2024, Page 29
Forsetakosningarnar í Taívan stóðu núna yfir 13. janúar og luku þær með sigri Lai Ching-Te, sem
bauð sig fram fyrir hönd Lýðræðislega umbóta flokksins (e. Democratic Progressive Party). Aðal
málefni kosninganna voru samskipti við Kína og hvernig ætti að bregðast við auknum
hernaðarlegum tilburðum kínverskra stjórnvalda í þeirra garð. Þrátt fyrir það að frambjóðendurnir
væru allir með svipaðar lausnir hvað varðar samskipti við Kína, þá var sigur Lai Ching-Te talin vera
versta útkoman í augum Kína þar sem að þetta var flokkurinn sem lagði mesta áherslu á hugmyndir
um sjálfstæði landsins. Áhugavert er að sjá að kínverski kommúnistaflokkurinn var hlynntari því að
Kuomingtang (flokkur þjóðernissinnanna og flokkur Chiang Kai Shek), og frambjóðandi þess Hou Yu
Ih kæmist frekar til valda heldur en Lai. Einnig hafa verið ásakanir um að Kína hafi reynt að hafa
áhrif á kosningarnar með nethernaði, hvort sem að það hafi verið með að dreifa
samsæriskenningum eða deep fakes á netinu.
Erfitt er að meta hvert framhaldið verður í milliríkja samskiptum þessara tveggja ríkja þar sem að
aukin togstreyta og landfræðileg spenna í Suður-Kínahafi gerir það að verkum að ólíklegt sé að
samskiptin batni. Auknar hreinsanir og efnahagsleg stöðnun í Kína gerir það mögulega að verkum að
einn daginn sé það metið hagsmunalega betri kosturinn að gera innrás í Taívan frekar en að Xi glati
völdum eða glati stöðu sinni í alþjóðlega samfélaginu. Hins vegar er það ólíklegt að innrás sé metin
góður kostur þar sem að harkaleg viðbrögð alþjóðasamfélagsins og vesturlanda við innrás Rússa í
Úkraínu hefur haft þau áhrif að Kína hugsar sig tvisvar um hvað varðar innrás í Taívan. Einnig er vert
að nefna að aukin viðskiptaleg tengsl og samtvinnaður iðnaður Kína og Vesturlanda gerir það að
verkum að efnahagslegt hrun fyrir landvinninga er ekki fýsilegur kostur fyrir kommúnistaflokkinn.
28