Póllinn - apr. 2024, Side 34
Politica, félag stjórnmálafræðinema varð 30 ára á liðnu ári… líklegast.
Í raun er erfitt að varðveita sögu félagsins þar sem meðlimir endurnýjast svo hratt. Við höldum að
Politica hafi verið stofnuð árið 1993 þar sem að kennitala félagsins var stofnuð þá, en það er í raun
bara ágiskun. Hvað vitum við um félagið og síðustu 30 ár þess? Var til eitthvað á undan því?
Saga stjórnmálafræðideildar
Ólafur Þ. Harðarson skrifaði um sögu stjórnmálafræða innan HÍ í Íslensku leiðinni árið 2001.
Námsleiðin Almenn þjóðfélagsfræði var stofnuð árið 1970 og með því var í fyrsta sinn á Íslandi
hægt að fá BA gráðu í stjórnmálafræði eða félagsfræði með aukagrein í mannfræði. Þar var Ólafur
Ragnar Grímsson, fyrrum forseti og stjórnmálafræðingur, einn af fyrstu kennurunum. Sex árum
seinna, árið 1976, var félagsvísindadeild loks stofnuð með margar nýjar námsgreinar í boði en þar
var stjórnmálafræðin sett inn. Það var síðan árið 1996 sem stjórnmálafræðin fékk sína eigin „skor“
in félagsvísindadeildar. Seinna meir var öllu kerfinu breytt í HÍ, deildir urðu svið og skorir urðu
deildir og þess vegna heitir námsleiðin okkar stjórnmálafræðideild í dag. Ef þér finnst þetta örlítið
ruglandi kæri lesandi þá er það eðlilegt, ég skil þetta ekki alveg sjálf.
POLITICA 30 ÁRA!?
ÞAÐ SEM VIÐ VITUM
UM SÖGU FÉLAGSINS
Embla Rún Hall
33
Punkturinn minn er að stjórnmálafræði hefur verið námsgrein í lengri tíma
en Politica hefur verið til. Það hefur legið viss dulúð yfir hvað kom á undan
Politicu, en með hjálp ferilskrá þingmanna á alþingi.is gátum við púslað
þessu saman. Áður en stjórnmálafræðinemar stofnuðu sitt eigið félag var
nemendafélag fyrir nema í stjórnmála-, félags- og mannfræði í HÍ sem hét
Samfélagið.
Hvað getum við staðfest um Politica?
Við vitum fyrir víst að félag stjórnmálafræðinema hafi verið til árið 1995 vegna greinar sem birt var
í Stúdentablaðinu í febrúar ‘95 (67. árgangur, 2. tölublað). Í greininni var þáverandi formaður Vöku
og stjórnmálafræðinemi, hann Gísli Marteinn (já, sá Gísli Marteinn), að gagnrýna formann Politicu
sem var þá Einar Skúlason, fyrir að vera í framboði fyrir Röskvu. Gísla fannst Einar vera að binda
félag stjórnmálafræðinema við pólitíska hreyfingu með framboði sínu og eyðileggja hlutleysi
Politicu. Við teljum líklegt að Einar Skúlason hafi verið formaður veturinn ‘94-’95 og hafi því verið
annar formaður í sögu Politicu. Veturinn 2021 til 2022 lagði Sindri Freyr Ágústsson, þáverandi
forseti Politicu, mikla vinnu í að safna í skjal lista af öllum formönnum/forsetum félagsins sem
hægt var að finna. Listinn er því miður ókláraður þar sem eitthvað af sögunni hefur ekki varðveist.