Póllinn - apr. 2024, Side 36
,,Óréttlæti hvarvetna er ógn við réttlæti alls staðar“ – Dr.Martin Luther King, leiðtogi svartra í
Bandaríkjunum.
,,Þú getur aðeins varið frelsið í þessum heimi með því að verja frelsi annarra, þú getur einungis
verið frjáls ef ég er frjáls.“ Clarence Darrow, amerískur lögfræðingur og andstæðingur
dauðarefsingar.
,,Að neita fólki um mannréttindi er í raun að skora mennsku þeirra á hólm.“ Nelson Mandela,
fyrrum samviskufangi og forseti S-Afríku.
Þessar tilvitnanir hér að ofan fann höfundur þessa greinarstúfs á hinu alltumlykjandi og frábæra
interneti, en segja má að rétturinn til internets sé kannski sjálfsögð mannréttindi nú til dags.
Í lýðræðissamfélögum má klárlega skilgreina réttinn til upplýsinga sem sjálfsögð mannréttindi og
hér á landi og í flestum vestrænum lýðræðisríkjum á almenningur rétt á upplýsingum frá
stjórnvöldum. En hvar byrjað þetta allt saman, þetta með mannréttindin?
Amerísk og frönsk bylting
Ef til vill eru það tvær byltingar, sú ameríska árið 1776 og sú franska árið 1789 og allt það blóðbað
sem þeim fylgdu, sem skilgreina mætti sem upphafið á nútíma mannréttindum eins og við þekkjum
þau í dag.
Fram að þessum tímapunkti hafði helstu ríkjum Evrópu verið stjórnað af konungum sem töldu sig
hafa fengið völd sín af himnum ofan, frá Guði sjálfum. Það reyndist vera ranghugmynd.
Í ,,Nýlendunum 13,“ sem síðar urðu að Bandaríkjunum, höfðu íbúarnir verið að berjast fyrir eigin
sjálfstæði gegn breskum konungi, Georgi þriðja, sem vildi hafa allt að segja um þeirra eigin málefni.
Þessum deilum lauk með sjálfstæðisyfirlýsing nýlendubúanna frá árinu 1776.
Hún er því mjög mikilvægur áfangi í sögu nútíma mannréttinda en ef til vill er einn frægasti hluti
hennar þau orð sem kveða á um frelsi mannsins og einstaklinganna til leitar að lífshamingju (e.
,,pursuit of happiness“). Gengið er út frá því að ,,allir séu fæddir jafnir“ og hafi ákveðinn náttúrurétt
sem ekki sé hægt að taka frá þeim.
Þessi hugsun endurómaði síðan í frönsku byltingunni, tæpum tveimur áratugum síðar, en
einkunnarorð hennar voru ,,Frelsi, jafnrétti og bræðralag (,,Liberté, egalité, fraternité“). Henni
fylgdi mannréttindayfirlýsing, sem er í 17 liðum.
ÓGNIN VIÐ FRELSIÐ - HUGLEIÐING UM
MANNRÉTTINDI Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
35