Póllinn - apr. 2024, Side 37

Póllinn - apr. 2024, Side 37
Upplýsingin Bæði þær hugmyndir sem birtust vestanhafs og í Evrópu um eðli mannsins og samskipti valdhafa við þegna má síðan rekja til þess sem kallað er ,,Upplýsingin“. Gróflega má segja að það tímabil standi í um 200 ár, frá um 1600 til 1800. Í sem stystu máli má segja að Upplýsingin feli það í sér að skynsemi (e. ,,reason“) taki yfir hugsun mannsins og það sem kallast ,,veraldarhyggja“ ryðji sér til rúms. Í henni felst til dæmi að draga úr vægi trúar og trúarbragða á stjórnun samfélagsins. Með Upplýsingunni komu fram nýjar hugmyndir um réttindi fólks og almennings og áðurnefnd samskipti valdhafa og þegna. Á þessu tímabili komu fram hugsuðir sem höfðu gríðarleg áhrif á hugmyndir um réttindi almennings, um stjórnskipun og stýringu á samfélaginu. Nægir að nefna menn á borð við John Locke, Jeremy Bentham, Charles Montesquieu, Voltaire, Jean-Jacques Rousseau og Thomas Jefferson. Mikið af því sem birtist í skrifum þessara manna og annarra fulltrúa Upplýsingarinnar sneru að almennum réttindum almennings, til dæmis til þess að tjá sig og hafa skoðanir og að spyrna gegn allskyns kúgun og valdníðslu. Kúgun og valdníðsla Enda var það svo að bæði bandarísk byltingin og sú franska voru til komnar vegna kúgunar, valdníðslu og yfirgangs ríkjandi yfirvalda þess tíma. Til að mynda ríkti mikið hungur vegna uppskerubrests í Frakklandi í undanfara byltingarinnar þar, sem sumir segja að rekja megi til loftslagsbreytinga vegna Skaftárelda (sem leiddu til Móðuharðindanna) á árunum 1783-1785. Þetta er að minnsta kosti tilgáta. Þessi tvö umræddu skjöl, Sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkjanna og Mannréttindayfirlýsing frönsku byltingarinnar eru því (að öðrum skrifum ólöstuðum) sennilega mikilvægustu skjölin í sögu mannréttinda. Ekki er um að ræða löng, eða ítarleg skjöl, hið fyrra er um 1450 orð með undirskriftum þeirra 56 sem skrifuðu undir hana. Reyndar var ein kona í þessum hópi, Mary Katherine Goddard, sem vann sem prentari á þeim tíma fyrir þing íbúa nýlendanna (e. Continental Congress). Franska skjalið, sem hægt er að lesa í enskri þýðingu á vefsvæði franska forsetaembættisins, er aðeins um 650 orð. Samanlagt er því um að ræða um 2000 orð, eða um fimm A4 blöð ef við myndum skella þessu upp á tölvum samtímans. Í þeim 17 greinum sem mannréttindayfirlýsingin franska inniheldur er farið í ýmsa þætti eins einstaklingsfrelsi, tjáningarfrelsi, lög, eignarrétt, rétt til andspyrnu gegn kúgun, ólögmætar handtökur, aðgreiningu ríkisvalds fleira slíkt. Allt í raun hlutir sem eiga við enn í dag og skipta lykilmáli í því sem við köllum vestrænt lýðræði og vestrænt réttarfar. En hvernig er staða mannréttindamála í dag í heiminum, sem telur á áttunda milljarð manna. Eru mannréttindi, frelsi og lýðræði þau leiðarstef sem ráða för? Það er leitt frá því að segja að nú er staðan sú, þegar þessi orð eru skrifuð, að um helmingur þjóðríkja heimsins teljast ekki vera lýðræðisríki, heldu ríki þar sem ríkir einræði, valdboðshyggja og þá því miður ríki þar sem mannréttindi eru fótum troðin, í mismiklum mæli þó. 36

x

Póllinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.