Póllinn - apr. 2024, Side 38

Póllinn - apr. 2024, Side 38
Úkraínustríðið Um þessar mundir eru um 100 milljónir manna á flótta víðs vegar um heiminn og það þýðir einfaldlega að þessi hópur nýtur ekki almennra mannréttinda. Mikið er um konur og börn. Mesta stríð sem geisað hefur í Evrópu frá lokum seinni heimsstyrjaldar er nú í gangi á milli Úkraínu og Rússlands, eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu í lok febrúar árið 2022, í þeim tilgangi að því er virðist að gereyða Úkraínu og öllu því sem úkraínskt er. Í þessum átökum hafa mögulega nokkur hundruð þúsund manns fallið og særst, bæði hermenn og almennir borgarar. Flóttamenn frá Úkraínu eru um sex milljónir eða rúmlega allir íbúar Danmerkur. Gaza logar Í Mið-Austurlöndum kom til skelfilegra átaka í byrjun október 2023 eftir að Hamas-samtökin, sem njóta stuðning Írana, gerðu hryðjuverkaárás frá Gaza (sem Hamas stjórnar) inn í Ísrael, drápu þar um 1200 manns og tóku fjölda í gíslingu. Svar Ísraels hefur verið á þá leið að láta sprengjum rigna yfir Gaza og þegar þetta er skrifað um miðjan janúar 2023, hafa Ísraelsmenn drepið um 25.000 manns í aðgerðum sínum, eða meira en tuttugufalt það sem Hamas-liðar drápu. Talið er að allt að meira en helmingur alls húsnæðis á Gaza sé ónýtt, en þar bjuggu um 2 milljónir manna. Mesta mannréttindabrotið Talið er að tugir átaka víðs vegar um heim séu nú í gangi og öll þessi átök þýða einfaldlega að mannréttindi eru brotin. Allt brýtur þetta í bága við Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna, sem samþykkt var árið 1948, þegar heimurinn var eitt flakandi sár eftir seinni heimsstyrjöldina, en í þeim hildarleik var jú eitt mesta mannréttindabrot, fyrr og sennilega síðar framkvæmt, sem kallast Helförin. Þá voru meðal annars sex milljónir Gyðinga myrtar með skipulegum hætti, sem og milljónir annarra, meðal annars sovéskir stríðsfangar, Rómafólk og einstaklingar úr fleiri jaðarhópum. Rauntala Helfararinnar er því hærri en oft hefur verið rætt um. Í fyrra voru 75 ár liðin frá tilurð samþykktarinnar, en þriðju grein hennar segir: ,,Allir eiga rétt til lífs, frelsis og mannhelgi.“ Ljóst er að einungis þessi grein er þverbrotin í þeim átökum sem eiga sér stað í dag um víða veröld. Það er einnig ljóst að það er stórt og mikið verkefni stjórnmálanna að reyna að koma í veg fyrir mannréttindabrot og efla virðingu fyrir mannréttindum. Þetta er áskorun sem sennilega mun fylgja ,,homo sapiens“ eins lengi og hann dvelur á þessari jörð. Hér þarf margt að koma til, meðal annars skólakerfi og lýðræðiskennsla. Hvað getum við gert? Og hvað geta einstaklingar gert? Jú, þeir geta til dæmis stutt baráttu samtaka á borð við Amnesty International og Human Rights Watch, en vitað er að starf þessara samtaka hefur skilað árangri og til dæmis frelsað samviskufanga víða um heim. Það er meðal annars gert með allskyns þrýstingi á stjórnvöld sem brjóta mannréttindi. Í ársskýrslu Amnesty fyrir árið 2023 segir að árið 2022 hafi verið ár umskipta í alþjóðamálum og þá er meðal annars verið að vísa í innrásina í Úkraínu. En samtökin taka það einnig fram að árið 2022 hafi ekki verið verið ár umskipta í mannréttindamálum og að frekar hafi hallað undan fæti. Það er sorgleg staðreynd og brýnt að taka á því vandamáli. Mannréttindi, ekki mannréttindabrot, eiga að ráða för. 37 Höfundur er M.A.í stjórnmálafræði frá Uppsalaháskóla, A-Evrópudeild.

x

Póllinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.