Póllinn - apr. 2024, Síða 48

Póllinn - apr. 2024, Síða 48
Fyrir okkur á Íslandi þá getur það hljómað undarlega og jafnvel út í hött að þú gætir hlotið sekt, fangelsisvist eða jafnvel látið líf þitt vegna klæða þinna. Auðvitað gerist það að maður kalli fram undarleg svipbrigði hjá fólki ef því finnst fatnaðurinn þinn undarlegur á einhvern hátt. Fyrir okkur eru þetta sjálfsögð réttindi að fá að klæðast því sem við viljum og að fá að tjá okkur með fatastíl á þann máta sem okkur sýnist. Þetta er þó ekki raunin alls staðar og er fólki neitað um þessi réttindi víða. Eitt dæmi um þetta eru réttindin til þess að bera höfuðslæðu eða hijab, hér verður farið yfir tvo póla þessarar umræðu, annars vegar þann sem vill alfarið banna konum að klæðast hijab og hins vegar sá sem vill neyða konur til að klæðast hijab. Árið 1958 kom út ritgerð sem bar heitið Two Concepts of Liberty eftir Isaiah Berlin. Ritgerðin gerði grein fyrir því sem Berlin kallaði jákvætt og neikvætt frelsi en hann lýsti því sem frelsi til og frelsi frá. Jákvætt frelsi var í rauninni frelsi til athafna en neikvætt frelsi, frelsi frá einhverju. Hugmyndin um neikvætt frelsi var svolítið eins og ferskur andblær inn í stjórnmálaheimspeki þar sem að áður fyrr hafði alltaf verið fjallað um jákvætt frelsi. Það liggur þó í augum uppi að það sé takmarkað frelsi í því að lenda í því að það sé brotið á manni en því er það mikilvægt að einstaklingar hafi frelsi frá því að það sé brotið á þeim eða neikvætt frelsi. Í Frakklandi er mjög rík áhersla á aðskilnað ríkis og kirkju eða eins og það er kallað þar, laicité. Þann 15. mars 2004 samþykktu frönsk stjórnvöld frumvarp 228 sem kvað á um það að nemendur í opinberum grunn- og menntaskólum, væri óheimilað að bera klæði eða tákn sem á áberandi hátt væru trúartákn. Þetta mál fór síðan fyrir Conseil d'Etat (hæstiréttur Frakklands sem snýr að stjórnsýslu málum), 8. október 2004 sem staðfesti að þó að lögin brytu á bága við 6.grein hugsunar-, samvisku- og trúfrelsi þá vægi hagur almennings meira. Áður en úrskurður kom í málinu var sett saman rannsóknarnefnd sem kannaði þörfina fyrir lagasetninguna. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að sýnileg trúartákn hefðu truflandi áhrif í skólum. Það kom einnig fram að hijab væri tákn samfélagshyggju og væri því ógn við hugmyndir Frakka um einstaklingshyggju. Þetta bann hafði ekki sömu áhrif á öll kyn og trúarbrögð. Þetta hafði lang mest áhrif á konur sem eru múslimar. Dauði Mahsa Amini, 22 ára gamallar kúrdískrar konu, í varðhaldi siðgæðislögreglunnar í Teheran varð kveikjan að stórum mótmælum í Íran og samstöðumótmælum víða um heim. Hún var stöðvuð af lögreglunni fyrir að virða ekki reglur um klæðaburð, en hún bar ekki slæðu sem samkvæmt írönskum lögum er ólöglegt. Í mótmælaskyni hafa konur t.d. brennt höfuðklúta og klippt hár sitt. Samkvæmt skýrslu Amnesty International hefur löggæsla skotið á mótmælendur auk þess að berja og káfa á kvenkyns mótmælendum. En stuttu eftir írönsku byltinguna árið 1979 setti þáverandi æðsti leiðtogi Ruhollah Khomeini þau lög að hijab væri skylda. Umræðan á Vesturlöndum um hijab hefur einkennst af fordómum og er oft vísað í þá staðalímynd að múslimar séu að kúga konur til þess að réttlæta bannið á hijab ásamt því að vísa í staðalímyndina að múslimar séu hryðjuverkamenn og að það geti auðveldað fólki að fremja slíkan ógnað ef að það fær að hylja sig. Umræðan hefur einnig einkennst af hugleiðingum um kvenréttindi og í þeirri umræðu hefur hijab verið tengt við kúgun karla. Umræðan er vissulega um kvenréttindi í því samhengi að líkami kvenna og réttur þeirra til þess að taka sjálfstæðar ákvarðanrnir hafa verið tekin af þeim. Það er afar skrítið að stilla þessum tveimur dæmum hlið við hlið þar sem annað snýst um réttinn að þurfa að nota hijab og að fá ekki að hafa hann. Það sem Frakkland og Íran eru að gera eru í rauninni hið sama. Þar eru ríkin að skipta sér af ákvörðunar og sjálfstjórnarrétti kvenna og nota til þess föt. Umræðan og baráttan í kringum þetta í heild sinni snýst um það að raddir kvenna fái að heyrast og þær fái að taka ákvörðun um eigin fatnað, eigin líkama og eigin hagsmuni án þess að utanaðkomandi aðilar skipti sér af. Fyrir konurnar í Íran er þetta spurning um neikvætt frelsi, frelsi frá því að þurfa að klæðast hijab en fyrir konurnar í Frakklandi er þetta spurning um jákvætt frelsi, frelsi til þess að klæðast hijab. Þetta er eins og hefur komið fram tvær hliðar á sama pening. FATARÉTTINDI Íris Björk Ágústsdóttir Margrét B W Waage Reynisdóttir 47

x

Póllinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póllinn
https://timarit.is/publication/1851

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.