Morgunblaðið - 02.07.2005, Page 4
4 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2005
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umferðarstraumur úr höfuðborginni þegar ein mesta ferðahelgi ársins gekk í garð
Morgunblaðið/ÞÖK
Lögreglan í Borgarnesi fylgdist grannt með ökumönnum við Borgarfjarðarbrú í gærkvöldi.
Okumenn almennt
til fyrirmyndar
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
MIKIL umferð var úr höfuðborginni í gær en fyrsta
helgin í júlí er ein mesta ferðahelgi ársins og hugsa
sér þá margir til hreyfings. Lá umferðarstraumurinn
bæði um Suðurlandsveg og Vesturlandsveg og jókst
hann þegar leið á daginn. Þannig var bíLl við bíl allt
frá Mosfellsbæ og niður að Ártúnsbrekku um klukk-
an hálf sjö í gærkvöldi.
Lögi'egluyfirvöld hafa skorið upp herör gegn
hraðakstri en nýlega var undirritaðui- samningur
milli Umferðarstofú og ríkislögreglustjóra sem felur
í sér að lögreglueftirlit á vegum verður aukið um
100% fram til 1. október. Um helgina mim Ríkislög-
reglustjóri halda úti öflugri löggæslu til aðstoðar lög-
reglustjórum en fjórar lögreglubifreiðar á vegum
ríkislögreglustjóra verða á ferðinni vegna umferð-
areftirlits og almenns eftirlits. Efitirlltið verður að-
allega á vegum á Suðurlandi, Suðausturlandi, Vesfr
urlandi og Norðurlandi. Við umferðareftirlitið verða
notaðar merktar lögreglubifreiðar sem búnar eru
hraðamyndavélum. Þá verður lögreglan sem fyrr
með umferðareftirlit á þjóðvegum og almennt efitdrlit
í lögsagnarumdæmunum og munu lögregluliðin
einnig nota ómerkta bíla við þetta eftirlit.
Þeir lögreglumenn sem Morgunblaðið ræddi við í
gærkvöldi sögðu ökumenn að mestu leyti til íyr-
irmyndar og að Ktið væri um hraðakstur en víða voru
aukabifreiðar lögregluembætta við umferðareftirlit.
Morgunblaðið/ÞÖK
Það var bíll við bfl frá Mosfellsbæ að Ártúns-
brekku. Ekki var mikil umferð til borgarinnar.
Umferðarþunginn í umdæmi lögreglunnar í Borg-
amesi var svipaður og á sama tíma undanfarin ár að
sögn Ómars Jónssonar varðstjóra. „Umferðin hefur
gengið vel fyrir sig og verið nokkuð stöðug síðan á
hádegi en það er ekki miMð um hraðakstur.“
Svipaða sögu var að segja af lögreglunni á Selfossi
en þar var mikil umferð og jókst hún þegar leið á
kvöldið. Hins vegar var Ktið um hraðakstur.
Diplómatískt
samband
skiptir máli
EKKI er nauðsynlegt fyrir stjórn-
völd að taka á móti háttsettum
embættismönnum, sem koma
hingað til lands í óopinbera heim-
sókn, með formlegum hætti. „Ef
það er ekki diplómatískt sam-
band, og ef þeir láta ekki vita, þá
fara þeir og koma eins og þeim
hentar,“ segir Helgi Gíslason,
prótókollsstjóri hjá utanríkis-
ráðuneytinu. Hann segir þó venj-
una vera þá að ef um diplómatísk
samband sé að ræða milli Islands
og viðkomandi þjóðar þá myndi
utanríkisráðuneytið hafa sam-
band við viðkomandi aðila og at-
huga hvort hann þyrfti á ein-
hverri aðstoð að halda o.fl. Ef svo
væri ekki þá yrði ekki meira að-
hafst.
Vildu ekki tjá sig
ÚTFLUTNINGSRÁÐ íslands
fundaði í gærmorgun með gestum
frá Taívan í gærmorgun sem voru
hér í viðskiptaerindum. Þegar haft
var samband við Utflutningsráð í
gær þá fengust þær upplýsingar að
ráðið myndi hvorki tjá sig um efni
fundarins né hverjir voru við-
staddir.
Ákærður fyrir
árás sem leiddi
til dauða
Sjötta vélin bætist í flota
Landsflugs og City Star
FORSVARSMENN Landsflugs og City Star
kynntu í gær nýja Dornier 328 flugvél í flugskýli
sínu við Reykjavíkurflugvöll. Er þetta önnur
Dornier 328 vélin sem bætist í flugflota Lands-
flugs, en vélin bætist við fimm aðrar vélar sem
félagið á og notar í bæði áætlunarflugi og leigu-
flugi innanlands og erlendis. Nýja vélin er smíð-
uð í Þýskalandi, tekur 32 í sæti og þykir afar
tæknivædd. Til marks um tæknina benti Atli
Georg Arnason, starfandi stjórnarformaður
Landsflugs, á að flugstjórnarklefinn væri nánast
eins og í nýju Airbus 380 vélunum, sem er
stærsta farþegaflugvél í heimi. „Þessi nýja vél
virkar á svipaðan hátt og góð þota,“ sagði Rúnar
Fossádal Arnason, framkvæmdastjóri Lands-
flugs, og benti m.a. á að Dornier 328 vélin gæti
flogið í 31 þúsund feta hæð líkt og þotur og hefði
auk þess mikinn flughraða. I máli Átla kom fram
að í vélinni væri góð farþegahæð, auk þess sem
rúmgott væri milli sæta. „Við erum svo heppin
að vélin kemur í sömu litum og einkennislitir
okkar eru, þ.e. í bláu, hvítu og silfurlit, þannig að
við þurfum lítið annað að gera en að setja auð-
kenni okkar á vélina. Auk þess er þessi vél, líkt
Morgunblaðið/Jim Smart
Rúnar Fossádal Árnason og Atli Georg Árnason
fyrir framan nýja Dornier 328-vél Landsflugs.
og hin vélin okkar, útbúin með bláum leðursæt-
um sem hönnuð eru af sömu aðilum og hanna
fynr Jagúar,“ sagði Atli.
I máli Atla kom fram að nýja vélin kæmi til
með að þjóna bæði á íslenskum markaði og í
flugi frá Aberdeen í Skotlandi. Um ástæður þess
að félagið beindi í rekstri sínum erlendis athygl-
inni að Bretlandsmarkaði, með Aberdeen sem
heimaflugvöll, sagði Atli vaxandi eftirspurn í
Bretlandi, en allar spár bendi til þess að flugeft-
irspurn muni aukast um 6% í Bretlandi frarn til
ársins 2020, miðað við aðeins 4% í heiminum öll-
um. ,A-uk þess er svæðið í kringum Aberdeen,
sem er þriðja stærsta borg í Skotlandi, vanrækt-
ur markaður af flugfélögum, sem við munum
nýta okkur, enda er markmið okkar að fara nýj-
ar flugleiðir þar sem við erum ekki í beinni sam-
keppni við aðra sökum þess hve dýr hún er,“
sagði Atli. Benti hann á að markmið félagsins
væri að þjóna viðskiptafarþegum sem væri hóp-
ur sem orðið hefði nokkuð út undan í lággjalda-
flugssamkeppninni að undanfórnu. „Við einbeit-
um okkur þannig að þjónustu, þægindum og
sveigjanleika,“ sagði Atli, og benti á að sífellt
vinsælla væri hjá Norðmönnum að skreppa til
Aberdeen í þeim tilgangi að leika golf, auk þess
sem sífellt væri að verða algengara hjá Islend-
ingum að skreppa í dagsferð með vél félagsins til
meginlandsins til að fylgjast með fótboltaleik.
RÍKISSAKSÓKNARI hefur ákært
karlmann á þrítugsaldri fyrir
stórfellda líkamsárás sem leiddi
til dauða eins gesta á veit-
ingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæ
í desember síðastliðnum. Ákært
er fyrir brot á 2. mgr. 218. grein-
ar almennra hegningarlaga sem
kveður á um allt að 16 ára fang-
eisi.
Málið var þingfest í héraðsdómi
í gær og fer aðalmeðferð þess
fram í haust. Afstaða ákærða til
sakarefnisins liggur ekki fyrir.
Hrapaði 12 metra
niður á stétt
VINNUSLYS varð í Sjálandi í
Garðabæ í gær þegar 17 ára piltur
féll niður á steyptan flöt af
fimmtu hæð nýbyggingar. Hann
var fluttur talsvert slasaður á
slysadeild en þó ekki eins mikið
og talið var í fyrstu. Fallið var um
12 metrar og segir lögreglan að
hann hafi sloppið ótrúlega vel
þrátt fyrir allt. Vinnueftirlit rík-
isins var kvatt á staðinn til að
meta aðstæður.
Þá var ekið á barn á reiðhjóli
við Álfaskeið í gær. Var það flutt
á slysadeild með minniháttar
meiðsli.
Gönguskór
- mikið úrvai
Meindl Colorado Lady
TUboðsverð
\/erð áður 17.990 kr
UTILIF
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 O GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 O KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
Hótuðu að slíta viðskipta-
sambandi við Island
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
HEIMSÓKN Tan Sun Chen er
ekki fyrsta heimsókn háttsetts
embættismanns frá Taívan hingað
til lands. Árið 1997 kom Lien Chen,
þáverandi varaforseti Taívans, til
Islands í óopinbera heimsókn. Kín-
versk stjórnvöld mómæltu þeirri
heimsókn kröftuglega. Fram kom í
fréttum að kínversk stjórnvöld
sögðu að það gæti haft alvarlegar
afleiðingar fyrir Island að leyfa
vai'aforsetanum að koma til lands-
ins. T.d. var tveimur viðskiptafund-
um, sem halda átti í Peking, aflýst
vegna heimsóknarinnar. Davíð
Oddsson, þáverandi forsætisráð-
herra, snæddi með Chen þrátt fyrir
mótmæli Kínverja en sagðist telja
ástæðu til að óttast að Kínverska
alþýðulýðveldið stæði við yfirlýsing-
ar sínar, en þeir hótuðu að slíta við-
skiptasambandi við ísland.
Lien Chen lét hafa eftir sér að
viðbrögð Kínverja væru á misskiln-
ingi byggð.
I lok nóvember 1997 sendi utan-
ríkisráðuneytið frá sér fréttatil-
kynningu þar sem fram kom að Is-
land myndi engin opinber afskipti
hafa af Kina. Ríkin urðu sammála
eftir viðræður um að byggja sam-
skipti sín á sameiginlegri yfirlýs-
ingu um stjómmálatengsl frá árinu
1971. Fram kom í tilkynningunni að
ísland viðurkenndi eitt og óskipt
Kína og að ríkisstjórnin í Peking
væri eina löglega ríkisstjórn lands-
ins. Auk þess sagði, eins og segir að
ofan, að af þessu leiði að Island
muni ekki eiga opinber samskipti
við Taívan. í tilkynningunni kom þó
einnig fram að Kínverjar hefðu
ítrekað þá stefnu sína að þeir hefðu
ekkert á móti samskiptum einka-
aðila á Islandi og Taívan á sviði
ferðamála og viðskipta.
Árið 1998 heimsóttu þingmenn
frá Taívan landið og funduðu m.a.
með Tómasi Inga Olrich, þáverandi
formanni utanríkismálanefndar, og
Össuri Skarphéðinssyni, þáverandi
varaformanni nefndarinnar.
Haft var eftir Tómasi Inga Olrich
árið 1998, þegar taívönsku þing-
mennirnir heimsóttu landið, að
hann teldi að kínversk stjómvöld
gætu ekki talað máli þeirra 20
milljóna sem byggju í Taívan, jafn-
vel þótt það væri ekki viðurkennt
sem sjálfstætt ríki.