Morgunblaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 51
50 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2005
MORGUNBLAÐIÐ
Blaðið
SÍml 46S*3SÓ0
TOM CRUISE
MYND EFTIRSTEVEN SPIELBERG
bemleiíuaiísi |ashtcii&@Qsffi*S(?
Miðasala opnar kl. 13.30
MYND EFTIR STEVEN SPI ELBERG
KVIKMYNDIR.IS
ÍKTA STO RS LYSAMYN D'
Ó.Ö.H. DV
„ÍNNRÁSIN ERGIRNILEG
SUMARSKEMMTUN,
POPPKORNSMYND
AF BESTU GERÐ!"
-S.V, MBL
Bænakallinu svarað
TÓNLIST_______ .................. .....
Egilshöll
Duran Duran
★★★★☆
Tónleikar með Duran Duran í Egilshöll 30. Júní
2005. Leaves hitaði upp.
GUÐI sé lof! Það hafðist. Duran Duran eru
búnir að halda tónleika á Islandi. Eitthvað
sem við langflest eitísbörnin þráðum heitar
en nokkuð annað um miðbik 9. áratugar
síðustu aldar, fengum aldrei og þurftum að
sætta okkur við Europe. Ókei, sveitin kem-
ur kannski heldur seinna en maður hafði
vonað, einum tuttugu árum of seint, en
þeim mun meiri varð léttirinn. Léttirinn yf-
ir því að þessar helstu hetjur heillar kyn-
slóðar skuli hafa staðið undir öllum þeim
gríðarlegu væntingum sem til hennar voru
gerðar - og vel það. Sem er meira en að
segja það, ef út í er hugsað. Þeir hefðu svo
auðveldlega getað verið glataðir, meiri
háttar vonbrigði. Slík var eftirvæntingin;
trúlega meiri en út af nokkrum öðrum tón-
leikum sem haldnir hafa verið hér á landi.
Hálfgerð histería. Uppsöfnuð spenna.
Gamlir aðdáendur með bældar og gjör-
samlega útbelgdar vonir, sem svo ósjaldan
höfðu lagst á bæn, eða sent Mogganum les-
endabréf og grátbeðið Guð og Listahátíð
um að halda tónleika í Höllinni með sveit-
inni sinni heittelskuðu.
Það var reyndar ekki eins og verið væri
að renna blint í sjóinn. Við höfðum fengið
veður af því að þeir væru algjörlega að
gera sig drengirnir, eftir að hafa tekið sam-
an höndum á nýjan leik, allir fímm. En að
þeir væru í svona glimrandi góðu formi, að
skemmta sér og sínum svona vel. Það hafði
hreint ekki hvarflað að manni. Reyndar er
það nú svo, ef út í er hugsað, að einn helsti
styrkur Duran Duran-liða hefur ávallt ver-
ið sá að þeir vita upp á hár hvers væri
vænst af þeim, hafa aldrei gert sér neinar
grillur um hlutverk sitt og sess. Þeir eru
fyrst og fremst kyntákn, popphljómsveit
fram í fingurgóma. Það var líka það sem
boðið var upp á, stórskemmtilega popp-
tónleika með goðum sem voru laglega með-
vituð um eigið ágæti og kynþokka. Ná-
kvæmlega eins og við vildum líka hafa það.
Þá vissu þeir vel að liðlega ellefu þúsund
áhorfendur voru langflestir komnir til að
heyra gömlu góðu lögin. Og það var það
sem var í boði. Næstum allir helstu smell-
irnir, á færibandi, fluttir af krafti og áhuga
allra fimm krókanna, sem klárlega eru að
fíla það vel að vera á ný komnir í gamla
formið. Ein fimm lög fengu að fljóta með af
hinni mjög svo misjöfnu nýju plötu Astro-
naut, blessunarlega bestu lögin þó. En þeir
eru það klókir, svo miklir skemmtikraftai',
að á eftir hverju nýju lagi, sem þeir reyndu
á okkur, þá fylgdi gömul perla - eða jafnvel
vel valið tökulag á borð við „I Feel Love“
sem fellur að tónlist Duran eins og flís við
rass enda voru þeir alltaf undir sterkum
áhrifum frá snillingnum Giorgio Moroders
- sem kom mannskapnum rækilega til,
þannig að svo gott sem engan dauðan
punkt var að finna á nær tveggja tíma
löngu og stífu prógramminu.
Gömlu perlurnar voni líka vel valdar. Og
það var merkilegt að heyra að því eldri sem
lögin voru því betur virkuðu þau. Þannig er
nefnilega að þær línur sem Duran lagði á
fyrstu plötunni, nýrómantískt og hrollkalt
diskópönkið, virðast höfða sérstaklega
sterkt til vinsælla poppsveita nú um mund-
ir á borð við The Killers, Scissor Sisters,
Hot Hot Heat og The Bravery. Mikil gleði
var t.d. að fá að heyra „Careless Memo-
ries“ og „Sound of Thunder" af fyrstu plöt-
unni, í kröftugum og hráum flutningi, en
þau hafa æði oft verið ansi afskipt í laga-
safni sveitarinnar. Sama gildir um „The
Chauffeur" af Rio, sem kallaði fram laglega
gæsahúð, næstum eins mikla og þegar sal-
urinn söng einum rómi, Save A Prayer".
Auðvitað saknar maður alltaf einhvers,
hjá því verður varla komist. „Is There
Something I Should Know?“ hefði að
ósekju mátt hljóma frekar en millispilið
máttlausa „Tiger Tiger“ og Simon LeBon
hefði alveg getað látið vera að kynda okkur
með „Make Me Smile“, bjóða okkur að
velja á milli þess og „Reflex"; bæði ósann-
gjarnt og vonlaust val því við vildum auð-
vitað heyra bæði! Maður gerír ekki upp á
milli barna sinna. Annars var prógrammið
næstum algjörlega skothelt. Meira að segja
nýju lögin hijómuðu þolanlega í góðum fé-
lagsskap hinna gömlu. Simon LeBon, sem
er klárlega mesti skemmtikraftur sveit-
arinnar, náði fínu sambandi við tónleika-
gesti, tók alla helstu frasana og fékk sér
líka sundsprett í örmum tónleikagesta;
sýndi af sér hreint ótrúlegan þokka með
kostulega eggjandi mjaðmahnykkjum og
öðrum limamjúkum og taktföstum líkams-
burðum - sem einhverjum þótti vera orðnir
full gamaldags, en áttu hvað sem tautar og
raular fullkomlega vel við. Simon lagði lín-
urnar í þessum efnum á 9. áratugnum og
hefur engu gleymt, eins og þeir segja
stundum. Þeir John eru klárlega stuðbolt-
arnir í bandinu, njóta hvað best athygl-
innar og kunna líka að rækta hana; eru
ótrúlega svalir náungar, poppstjörnur af
guðs náð.
Hér hefur lítið sem ekkert verið farið út í
spilamennskuna, sönginn og leikinn. Skýr-
ingin er einföld; það var aukaatriði. Ekki
það að þeir hafi ekki skilað sínu, sem þeir
gerðu. Léku og sungu Duran-lögin nær al-
gjörlega klakklaust og Simon sprakk ekki
einu sinni á limminu þótt hann á stundum
hafi verið á tæpasta vaði. Málið er nefni-
lega að þótt Duran Duran hafi sent frá sér
nokkur af frambærilegustu popplögum 9.
áratugarins, þá snýst sveitin og fyrirbærið
um svo margt annað og miklu meira en tón-
listina. Duran Duran hefur og verður aldrei
skipuð einhverjum tónlistarsnillingum -
sem sýndi sig t.d. á því að í upphit-
unarbandinu, hinir frábæru Leaves, eru
þegar öllu er á botninn hvolft trúlega fram-
bærilegri músíkantar, með innihaldsríkari
lög í farteskinu. En ég á bágt með að trúa
því að nokkur maður á staðnum hafi verið
að pæla í hljóðfæraleik og hinum mjög svo
köflótta hljómi í Egilshöllinni. Skítt með
slíka smámuni. Duran var á sviðinu! Og
enginn pælir í sándinu þegar góð partí-
tónlist er í græjunum.
Bænum heillar kynslóðar var svarað í
Egilshöll á fimmtudag. Langþráður
draumur rættist. Og það fullkomlega. Við
ykkur hin sem sátuð heima og sáuð þeim
bregða fyrir í fréttunum, hristuð hausinn
enn og aftur yfir öllu tilstandinu og þessum
blessuðu Duran Duran, er aðeins eitt að
segja: Þið bara skiljið þetta ekki.
Skarphéðinn Guðmundsson
Morgunblaðið/Árni Torfason
John Taylor hafði greinilega gaman af því að spila.
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2005
51
★★★★
Frá leikstjóra Boume Id(
SBfittk , JÞrælgóð skemmtun“ f
f' y Ó.Ö.H - DV
Miðasala opnar kl. 14.
Lgft+linn eini rétti
| hefur aldrei verið
_eins rangur! i
Missið ekki af
svölustu mynd
sumarsins með
heitasta pari heims!
I Frábær
gamanmynd
iem fór beint á
toppinn í USffll
.issasí
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.2Q-PQWER
JENNIFER LOPEZ
JANEFONDA
KVIKMYNDIR.IS
EKTA STORSLYSAMYND"
-Ó.Ö.H. DV
kutcher
INNRASIN ERGIRNILEG
SUMARSKEMMTUN.
POPPKORNSMYND
AF BESTU GERÐ!"
| -S.V. MBL
jmk wakj. _
p p i S O n r
LAYERCAKE
TILBOÐ A FYRSTU SYNINGAR DAGSINS - ADEINS 4
ATH! SÝNINGAR SÉRMERKTAR MEÐ RAUÐU
Morgunblaðið/ÞÖK
Súperstjörnurnar Símon og lærisveinar hans birtust söfnuði sínum í höll-
inni og svöruðu loksins bænakallinu.
Bestu tón-
leikarnir
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarjn@mbl.is
MEÐLIMIR Duran Duran voru ekki
síður sáttir við tónleikana í Egilshöll
á fimmtudagskvöldið en gestirnir.
„Eins og Simon sagði - ég veit að
það hljómar fyrirsjáanlega en ég
verð að segja þér það af því það er
satt, þetta er langbestu tónleikarnir
okkar á túrnum,“ segir Kári Sturlu-
son tónleikahaldari af samtali sínu
og Simons LeBon, söngvara sveit-
arinnar, eftir túnleikana.
Duran-liðar sögðu jafnframt að
straumarnir milli meðlima hefðu-
ekki fyrr á ferðalaginu verið jafn-
rafmagnaðir og á sviðinu í fyrra-
kvöld. Þetta var vel greinanlegt úr
salnum, þarna small eitthvað saman
og ekki síst var samspil Johns Tayl-
or og Simon LeBon skemmtilegt.
Kári segir að hljómsveitar-
meðlimir hafi farið úr Egilshöll í
partý til Bödda klippara niðri í
miðbæ en hluti sveitarinnar hafði
LAUGARÁS
farið í klippingu til hans. „Þeir
skemmtu sér konunglega fram á
morgun. Siðan vöknuðu þeir þreytt-
ir og sælir rétt fyrir tíu og lögðu af
stað út í þotu sem flutti þá til Róm-
ar,“ sagði Kári.
Skipuleggjandi tónleikaferðar
Duran Duran hrúsaði jafhframt í há-
stert skipulagningu tónleikanna, að
sögn Kára. „Hann segist hafa átt af-
slappaðan dag því séð hafi verið fyr-
ir öllu.“ Kári er sæll með þessa góðu
byrjun á Reykjavík Rocks en hátíðin
heldur áfram með tónleikum Foo
Fighters, Queens of the Stone Age
og Mínus í EgilshöII á þriðjudaginn.
Duran Duran á tvenna tónleika
eftir áþessu tónleikaferðalagi en
sveitin spilar á Live 8 og Hróars-
keldu í dag.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Rafmagnaðir vinastraumar voru á milli Johns Taylor og Símons LeBon.
arsdóf+' ^ e,n8T,'mss°n. Dajrnr JfrgunbIa*<VÞÖK
“*■*“■*■ ^SSÍSÍS^
Morgunblaðið/Árni Torfason
Gítarhetjan Andy Taylor.