Morgunblaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2005
MESSUR/KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIí)
i.
4 ;
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Guðspjall dagsins:
Réttlæti faríseanna.
(Matt. 5.)
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta veröur ekki í
kirkjunni vegna sumarferðar Safnaðar-
féiags Áskirkju. Lagt veröur af stað í ferðina
sunnudaginn 3. júlf kl. 9.30fráÁskirkju. Ek-
ið verður um Suðurland að Skógum. Þar
veröur haldin helgistund, snæddur hádeg-
isveröur og byggðasafnið skoðaö undir leið-
sögn Þórðar Tómassonar safnvarðar. Áætl-
uö heimkoma um kvöldmatarleytið.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Organisti Jónas Þórir. Molasopi eftir
messu. Sr. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Guðsþjónusta kl. 11.00.
Sr. Hjálmar Jónsson þrédikar. Sönghóþur
úr Dómkórnum syngur. Organisti Marteinn
H. Friðriksson. Prestsvígsla kl. 20.00. Bisk-
up íslands vígir cand theol Stefán Már
Gunnlaugsson, til Hofsprestakalls, cand
theol Svanhildi Blöndal, til prestsþjónustu
á Hrafnistu í Reykjavík ogcand theol Vigfús
Bjarna Alþertsson til prestsþjónustu á
Landsþítala. Séra Hjálmar Jónsson, dóm-
kirkjuprestur, þjónarfyrir altari. Vígsluvottar
séra Gunnlaugur Stefánsson, sóknarprest-
ur, séra Sjöfn Jóhannesdóttir, sóknarprest-
ur, séra Jón Dalbú Hróbjartsson, prófastur,
séra Gunnþór Ingason, sóknarprestur, séra
Halldór Reynisson, verkefnisstjóri. Séra Jó-
hanna Sigmarsdóttir, prófastur, lýsir vfgslu.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Altaris-
ganga. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Org-
anisti Árni
Arinbjarnarson. Samskot til ABC-barna-
hjálpar. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimill: Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Organisti Kjartan Ólafs-
son. Sr. Hjálmar Jónsson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Sr.
Kristján Valur Ingólfsson prédikarog þjónar
fyrir altari. Hópur úr Mótettukór Hallgríms-
kirkju leiðir almennan messusöng undir
stjórn Mattias Wager, sem einnig verður
organisti. Elverum Damekor frá Noregi og
syngur í messunni og heldur stutta tónleika
eftir messu. Stjórnandi kórsins er Arne Mo-
seng og undirleikari Trond Waage. Kaffisopi
eftir messu. Sumarkvöld við orgelið kl.
20.00. Mattias Wager, organisti Hedvig
Eleonora kirkjunnarí Stokkhólmi, leikur.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Organ-
isti Douglas A. Brotchie. Sr. Tómas Sveins-
son.
LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS:
Landakot: Guðsþjónusta kl. 11.30. Sr.
Bragi Skúlason, organisti Birgir Ás Guð-
mundsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guöbrands
biskups. Vegna sumarleyfa verður ekki
messað í Langholtskirkju í júlímánuði. Sr
Pálmi Matthíasson þjónar Langholtspresta-
kalli á meðan. Sóknarbörnum er bent á að
sækja helgihald í Bústaöakirkju eða öðrum
nágrannakirkjum.
LAUGARNESKIRKJA: Vegna sumarleyfa
starfsfólks er bent á guðsþjónustur í ná-
grannakirkjunum.
NESKIRKJA: Messa kl. 11.00. Félagar úr
Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organ-
isti Reynir Jónasson. Sr. Bára Friðriksdóttir
prédikar og þjónar fyrir altari.
SELTJARNARNESKIRKJA: Helgistund kl.
11. Ritningarlestur, hugleiðing, bæn og alt-
arisganga. Sr. Arna Grétarsdóttir. Verið
hjartanlega velkomin.
ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta
kl.11.00. EsterÓlafsdóttirorganisti. Krikju-
kórinn leiðir safnaöarsöng. Kaffi og með-
læti á eftir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir. Organisti
Bjartur Logi Guönason. Síöasta messa fyrir
sumarlokun.
DIGRANESKIRKJA: Kvöldmessa í kapellu
kl. 20.00. Prestur sr. Guðmundur Karl
Brynjarsson. Organisti Hannes Baldursson.
Söngur, félagar úr kór Lindakirkju.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðsþjónustur
falla niðurvegna sumarleyfa.
GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11.00. Séra Elínborg Gísladóttir prédikar
og þjónar fyrir altari. Kór Grafan/ogskirkju
syngur. Organisti: HörðurBragason.
HJALLAKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. íris Krist-
jánsdóttir þjónar. Fermdur verður Snorri
Halldórsson. Félagar úr kór kirkjunnar
syngja og leiöa safnaðarsöng. Organisti
Jón Ólafur Sigurðsson. Viö minnum á
bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18
(sjá einnig á www.hjallakirkja.is).
KÓPAVOGSKIRKJA: Vegna sumarleyfa
verður ekki guðsþjónusta á sunnudag.
Næsta guösþjónusta verður að loknu sum-
arleyfi sunnudaginn 7. ágúst. Kirkjan erop-
in á messutímum og frá þriðjudegi til föstu-
dags kl. 11 til 14. Á þeim tímum er
kirkjuvörðurvið oggeturveitt upplýsingar.
LINDASÓKN í Kópavogi: Sameiginlega
guðsþjónusta Linda- og Digranessafnaða í
Digraneskirkju kl. 20.
SEUAKIRKJA: Kvöldguösþjónusta er kl.
20. Aitarisganga. Sr. Bolli Pétur Bollason
prédikar. Organisti er Jón Bjarnason.
BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp:
Samkomur alla laugardaga kl. 11.00.
Bænastund alla miðvikudaga kl. 20.00.
Biblíufræðsla allan sólarhringinn á Útvarp
Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnudagur: Sam-
koma kl. 20. Umsjón Fanney Sigurðardóttir
og Guðmundur Guðjónsson.
FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a:
Sunnudaginn 3. júlí er samkoma kl. 20.00.
Helga R. Ármannsdóttir taiar. Lofgjörð og
fyrirbænir. Kaffi og samfélag eftir sam-
komu. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Þriðjudaginn 5. júlí er brauðsbrotning og
bænastund kl. 20.30. Allir eru hjartanlega
velkomnir.
KFUM og KFUK v/Holtaveg: Samkoma
sunnudaginn 3. júlt kl. 20 í húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg. Kveðjusamkoma fyrir
kristniboðana Kristínu Bjarnadóttir, Kjellr-
unu Langdal og Skúla Svavarsson sem
halda til Kenýu og Helgu Vilborgu Sigurjóns-
dóttur og Kristján Þór Sverrisson sem halda
til Eþíópíu. Stutt kveðjuávörp. Hugleiðing:
Skúli Svavarsson Kanga-kvartettinn syngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
FÍLADELFÍA: Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræöumaður Jón Þór Eyjólfsson. Skírn og
barnablessun. Sameinumst og minnumst
fórnardauða Frelsarans. Almenn samkoma
kl. 16.30. Ræðum. VörðurLevíTraustason.
Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Allir eru
hjartanlega velkomnir. Bænastundir mið-
vikudagskvöldum kl. 20.00. Morgunbæna-
stundir falla niöur í júlt, hefjast aftur 4.
ágúst. filadelfia@gospel.is www.gospel.is
Hægt er að hlusta á beina útsendingu á út-
varp Lindina fm 102.9
KROSSINN: Almenn samkoma að Hlíöa-
smára 5 kl. 16.30.
BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11
sunnudaga. Einnig samkomur ki. 19.30 á
föstudögum.
KIRKJA JESÚ KRISTS Hinna síðari daga
heilógu, Mormónar, Ásabraut2, Garðabæ:
Föstu- og vitnisburöarguösþjónusta sunnu-
dag kl. 9 árdegis á ensku og kl. 12 á ís-
lensku.
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dóm-
kirkja og basiltka: Sunnudaga: Messa kl.
10.30. Messa á ensku kl. 18.00. Alla virka
daga: Messa kl. 18.00. „Ár altarissakra-
mentisins": Tilbeiðslustund er haldin í
Kristskirkju á hverju fimmtudagskvöldi að
messu lokinni, þ.e. frá kl. 18.30 til 19.15.
Sunndaginn 3. júlí: I dag er Péturspeningi
safnað í öllum kaþólskum kirkjum og kap-
ellum landsins. Á liðnum öldum hefur í ýms-
um Evrópulöndum verið safnaö einskonar
„skattpeningi" til þess að greiða kostnaö
við miðstjóm kirkjunnar. Frá árinu 1860 var
ekki lengur um „skattheimtu" að ræða,
heldur söfnun sjálfviljugra framlaga hinna
trúuðu. Hún fer nú fram í öllum biskups-
dæmum heims kringum Pétursmessu og
Páls. Páfanum berast stöðugt tilmæli um
Ögurkirkja í Ögurvík.
að hann láti eymd og neyð fátækra um all-
an heim til stn taka. Jóhannes Páll II páfi
ákvað fyrir nokkrum árum að nota allan Pét-
urspeninginn til hjálpar nauðstöddum og er-
um við þakklát hverjum gefanda fyrir fram-
lagið. Reykjavík, Maríukirkja við
Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11.00.
Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30.
Virka daga: Messa kl. 18.30. „Ar altaris-
sakramentisins": Tilbeiðslustund á mánu-
dögum frá kl. 19.00 til 20.00. Riftún í Ölf-
usi: Sunnudaga: Messa kl. 16.00.
Miðvikudaga kl. 20.00. Hafnarfjörður, Jós-
efskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30.
Alla virka daga: Messa kl. 18.30. „Ár alt-
arissakramentisins": Tilbeiðslustund á
hverjum degi kl. 17.15. Karmelklaustur:
Sunnudaga: Messa kl. 08.30. Virka daga:
Messa kl. 8.00. Keflavík, Barbörukapella:
Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl.
14.00. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla
virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga:
Messa kl. 10.00. isafjörður: Sunnudaga:
Messa kl. 11.00. Flateyri: Laugardaga:
Messa kl. 18.00. Bolungarvík: Sunnudaga
kl. 16.00. Suðureyri: Sunnudaga: Messa
kl. 19.00. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Pét-
urskirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga:
Messa kl. 18.00. Sunnudaga: Messa kl.
11.00. „Ár altarissakramentisins": Til-
beiðslustund á hverjum föstudegi kl. 17.00
og messa kl. 18.00.
LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Gos-
loka minnst með guðsþjónustu kl. 11. At-
höfnin hefst I Landakirkju með signingu og
bæn. Þaðan ergengið upp í gíg Eldfells þar
sem guðspjall veröur lesið ásamt hugleiö-
ingu. Leiðin liggur síðan niður í Stafkirkju
þar sem bænastund og blessun fer fram.
Sungið verður á hverjum stað og munu fé-
lagar úr Lúörasveit Vestmannaeyja leiða
sönginn. Rúta fer frá Landakirkju á áfanga-
staöina tvo, fyrir þá sem ekki ganga. Sókn-
arnefnd býður upp á Pollasúpu við Stafkirkj-
una að athöfn lokinni. Prestur sr. Þorvaldur
Víðisson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Morgunsöngur
sunnudag kl. 10.30. Barn borið til skírnar.
Prestur sr. Þórhallur Heimisson. Organisti
Antonia Hevesi.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Helgi
stund á sumarkvöldi sunnudag kl. 20. Allir
velkomnir.
BESSASTAÐASÓKN: Kvöldguðsþjónusta í
Bessastaðakirkju sunnudaginn 3. júlí, kl.
20.30. Félagar úr Álftaneskórnum, kór
kirkjunnar, leiöa almennan safnaðarsöng.
Organisti: Hörður Bragason. Við athöfnina
þjónar sr. Hans Markús Hafsteinsson.
Mætum vel ogfögnum fyrir Drottni, nú þeg-
ar sumarleyfin eru að hefjast fyrir alvöru.
Biðjum fyrir farsælum sumarleyfum og að
allir megi snúa heim að nýju endurnærð tii
líkama og sálar eftir gott frí. Prestarnir.
GARÐASOKN: Guðsþjónusta í Vfdalíns-
kirkju sunnudaginn 3. júlí, kl. 11.00. Fé-
lagar úr kór kirkjunnar leiða almennan safn-
aðarsöng. Organisti: Hrönn Helgadóttir. Við
athöfnina þjónar sr. Hans Markús Haf-
steinsson. Mætum vel og fögnum fyrir
Drottni, nú þegar sumarleyfin eru aö hefjast
fyrir alvöru. Biöjum fyrir farsælum sumar-
leyfum og að allir megi snúa heim að nýju,
endurnærð til líkama og sálar eftir gott frí.
Prestarnir.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11 árd. Kór kirkjunnar leiðir
söng undir stjórn Natalíu Chow Hewlett,
organista. Meðhjálpari, Ástríður Helga Sig-
urðardóttir. Sóknarprestur.
STRANDAKIRKJA: Messa sunnudag kl.
14. BaldurKristjánsson.
BORGARNESKIRKJA: Messa kl 20. Guðs-
þjónusta á Dvalarheimili aldraöra kl.
15.30. Sóknarprestur.
HOFSÓSS- og HÓLAPRESTAKALL: Bæna-
og helgistund að Gröf sunnudaginn 3. júlf
kl. 21. Allir velkomnirtil kyrrlátrar og helgrar
stundar í hinni fornu kirkju í kvöldsólinni.
Boðið verður upp á kaffisopa undir kirkju-
veggnum að athöfn lokinni. Sr. Gunnar Jó-
hannesson þjónar fyrir altari og flytur hug-
leiöingu. Anna Kristín Jónsdóttir leikur á
gítar. Heba Dögg Jónsdóttir leikur á þver-
flautu. Kirkjukór- Hofsóss syngur. Sóknar-
prestur.
ÖGURRKIRKJA: Messa og altarisganga kl.
14. Almennur söngur við orgelundirleik. Sr.
Magnús Erlingsson.
HÓLADÓMKIRKJA: Messa sunnudag kl.
11. Sr. gfsli Gunnarsson prédikar og þjónar
fyrir altari. KórGlaumPæjarprestakalls leið-
irsöng. Organisti Stefán Gíslason.
AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Félagarúr
Kór Akureyrarkirkju synga. Ásgeir Stein-
grímsson og Eirfkur Örn Pálsson leika á
trompet og Hörður Áskelsson á orgel. Org-
anisti: Björn SteinarSólbergsson.
GLERÁRKIRKJA: Kvölduðsþjónusta við
smáPátahöfnina í Sandgerðisbót kl.
20.30. Prestur sr. Arnaldur Bárðarson. Kór
Glerárkirkju syngur. Organisti er Hjörtur
Steinbergsson. Akureyingarfjölnmennið og
eigið með okkur góða stund í kvöldkyrrð-
inni.
EIRlKSSTAÐAKIRKJA: Messa sunnudag
kl. 14. Sóknarpresturinn, sr. Lára G. Odds-
dóttir, prédikar og þjónar fyrir altari. Org-
anisti er Kristján Gissurarson. Félagar úr
kór eldri borgara á Héraði syngur og leiða
almennan safnaðarsöng. Allirvelkomnir.
Aöalsafnaöarfundur Eirfksstaðasóknar
verður haldinn að Hákonarstööum eftir
messu.
ÓLAFSKIRKJA á Skeiöum: Messa sunnu-
dag kl. 14. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA á Rangárvöllum: Messa
sunnudag kl. 11. Organisti Nína María
Morávek. Sóknarprestur.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA: Messa sunnu-
dag kl. 17. í messunni verður flutt tónlist
frá sumartónleikum helgarinnar. Sóknar-
prestur.
SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11.00. Organ-
isti Jörg E. Sondermann vegna sumarleyfis
Glúms Gylfasonar. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimili á eftir. Þriðjudaga til föstu-
daga er sungin evangelísk-lúthersk morg-
untíð ásamt meö fyrirbæn kl. 10.00. Kaffi-
sopi og spjall á eftir. Pabba- og
mömmumorgunn á hverjum miövikudegi í
lofti safnaðarheimilis kl. 11. Sr. Gunnar
Björnsson.
ÞINGVALLAKIRKJA: Messa sunnudag kl.
14. Sóknarprestur.
Smáauqlýsinqar 5691100
Yamaha V-Star Til sölu Yamaha
V-Star 110Occ, árgerð 2002, ekið
9.500 mílur. Nánari uppiýsingar
í síma 696 8558.
Þjónusta
Móðuhreinsun glerja!
Er kominn móða eða raki milli
glerja?
Móðuhreinsun Ó.Þ.,
s. 897 9809 og 587 5232.
Úra- og klukkuviðgerðir. Allar
almennar úra- og klukkuviðg.
Rafhl. í úr og í bílasamlæsingar.
Rúnar I. Hannah úrsmíðameistari.
Úr að ofan, Laugavegi 30, sími
517 6777. www.uradofan.is
Sendibílar
Gefðu bakinu frí - frábær í bíl-
skúrinn jafnt sem sendibílinn
Hjá Gylfa, Hólshraun 7,
Hafnarf., sími 555 1212.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Grafarkirkja, Höfðaströnd, Skagafjarðarsýslu.
Bæna- og
helgistund í Gröf
HIN árvissa helgistund í Bæn-
húsinu í Gröf á Höfðaströnd
verður að kvöldi sunnudagsins 3.
júlíkl. 21.
Allir, nær og fjær,eru boðnir
hjartanlega velkomnir til kyrr-
látrar og helgrar stundar í hinni
fornu kirkju í kvöldsólinni. Boðið
verður upp á kaffisopa undir
kirkjuveggnum að athöfn lok-
inni.
Sr. Gunnar Jóhannesson þjón-
ar fyrir altari og flytur hugleið-
ingu. Anna Kristín Jónsdóttir
leikur á gítar, Heba Dögg Jóns-
dóttir leikur á þverflautu.
Kirkjukór Hofsóss syngur.
Sóknarprestur.
Gosloka minnst
GUÐSÞJÓNUSTA sunnudag í
Landakirkju kl. 11. Athöfnin
hefst í Landakirkju með sign-
ingu og bæn. Þaðan er gengið
upp í gíg Eldfells þar sem guð-
spjall verður lesið ásamt hugleið-
ingu. Leiðin liggur síðan niður í
Stafkirkju þar sem bænastund
og blessun fer fram. Sungið
verður á hverjum stað og munu
félagar úr Lúðrasveit Vest-
mannaeyja leiða sönginn.
Rúta fer frá Landakirkju á
áfangastaðina tvo, fyrir þá sem
ekki ganga. Sóknarnefnd býður
upp á bollasúpu við Stafkirkjuna
að athöfn lokinni. Prestur sr.
Þorvaldur Víðisson.
Kristniboðar
kvaddir
SÉRSTÖK kveðjusamkoma fyrir
hóp kristniboða er heldur til Afr-
íku nú í ágústbyrjun, verður í
húsi KFUM og KFUK við Holta-
veg, sunnudaginn 3. júlí kl. 20.
Það eru þau Kristín Bjarnadótt-
ir, Kjellrun Langdal og Skúli
Svavarsson sem halda til Kenýu.
Kristín mun starfa við kennslu í
Nairobi og víðar í Kenýu og
Tansaníu, en Kjellrun og Skúli
munu stýra fræðslumiðstöð
kirkjunnar í Pókothéraði. Þá
verða einnig kvödd hjónin Helga
Vilborg Sigurjónsdóttir og Krist-
ján Þór Sverrisson. Þau munu
leggja stund á tungumálanám til
að byrja með en síðan sinna
kennslu, Helga Vilborg við
norska skólann í Addis Abebe og
Kristján Þór við leiðtoga- og
prestaskóla Mekane Yesu kirkj-
unnar. Þau voru vígð til kristni-
boða af biskupi Islands um síð-
ustu helgi.
A samkomunni munu kristni-
boðarnir flytja stutt kveðjuávörp
og Skúli Svavarsson hugleið-
ingu. Þá mun Kanga-kvartettinn
syngja en Helga Vilborg er ein
þeirra Ijögurra sem skipað hafa
kvartettinn. Samkoman er öllum
opin sem vilja koma og kveðja
kristniboðana eða kynnast nánar
starfi Kristniboðssambandsins.
Gestakór í
Hallgrímskirkju
SUNNUDAGINN 3. júlí verður
messa í Hallgrímskirkju kl.
11.00. Sr. Kristján Valur Ingólfs-
son prédikar og þjónar fýrir alt-
ari. Hópur úr Mótettukór Hall-
grímskirkju leiðir almennan
messusöng undir stjórn Mattias
Wager, sem einnig verður org-
anisti.
Þá kemur í heimsókn Elverum
Damekor frá Noregi og syngur í
messunni og heldur stutta tón-
leika eftir messu. Stjórnandi
kórsins er Arne Moseng og und-
irleikari Trond Waage. Eftir
messu er að venju boðið upp á
kaffisopa.