Morgunblaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2005 37
Live 8 og
UNICEF á íslandi
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið Kringlunni 1103 Reykjavík • Bréf tO blaðsins | mbl.is
Heimkoman
Hólmfríður Anna Baldursdóttir
fjallar um aðstoð við þurfandi
ÁR HVERT deyja 11 miHjónir
bama áður en þau ná fimm ára aldri -
um 30 þúsund böm á dag - eitt bam á
þriggja sekúndna fresti. Þetta er slá-
andi staðreynd, en kannski mest slá-
andi er sú staðreynd að
hægt er að koma í veg
fyrir dauða þessara
bama með einfóldum
hætti.
Með útsendingu
Live 8-tónleikanna í
dag munu augu heims-
ins beinast að þeim
sem minna mega sín.
Meginmarkmið tón-
leikanna er að koma í
veg fyrir fátækt og
draga úr afleiðingum
hennar. Hin unga sjón-
varpsstöð Sirkus mun
sjá um útsendingu þessa stærsta tón-
listarviðburðar allra tíma frá tólf á há-
degi í dag til tólf á miðnætti.
Bamahjálp Sameinuðu þjóðamra á
íslandi, UNICEF, vill hvetja alla ís-
lendinga til að láta sig boðskap tón-
leikanna varða um leið og við viljum
gefa fólki tækifæri til að leggja sitt af
mörkum með því að gerast heimsfor-
eldrar. Opnað hefur verið fyrir söfn-
unarsímann, 5 62 62 62, og verður
minnt á símanúmerið í útsendingunni á
Sirkus í allan dag. Sem heimsforeldri
getur þú haft afgerandi áhrif á líf
barna sem hafa ekki sama aðgang að
lífsgæðum og við hér á Islandi.
Stór hluti þeirra sem lifa í fátækt em
böm og þau eiga ekki að þurfa að kom-
ast sjálf upp úr fátæktinni. Fátækt get-
ur leitt tfl vannæringar, sjúkdóma og
dregið úr andlegum og líkamlegum
þroska barna. Hún hefur áhrif á tæki-
færi barna til menntunar og heilsu-
gæslu og getur leitt til þess að böm séu
misnotuð í vinnuþrælkun og stríðum.
Sem stærstu bamahjálparsamtök í
heimi hefur UNICEF unnið að því
markmiði að draga úr fátækt og afieið-
ingum hennar í nær 60 ár.
UNICEF bólusetur 100
milljónir bama ár hvert
og talið er að það bjargi
um 2,5 milljónum manns-
lífa. Mænusótt hefur
næstum verið útrýmt og á
síðustu 15 árum hefur
tíðni ungbamadauða
lækkað um 15% og dauðs-
fóllum vegna mislinga hef-
ur fækkað um 50%. Aldrei
hafa fleiri böm gengið í
skóla eða haft aðgang að
hreinu vatni. Þetta sýnir
okkur að við getum haft
áhrif og það er kannski sú staðreynd
sem við verðum að einbeita okkur að.
En við þurfum þína hjálp. Ef okkur
tekst að draga verulega úr fátækt í
heiminum mun tíðni ungbamadauða
lækka enn frekar, hægt verður að
koma í veg fyrir meiri skaða af völdum
HIV/alnæmis og veita bömum mennt-
un, mat og grunnheilsugæslu. Þetta
eiga að vera mikilvægustu markmið
okkar allra í þágu þeirra sem munu
erfa heiminn.
Við hvetjum Islendinga til saínast að
sjónvarpstækjunum og leiða hugann
að þeim sem minna mega sín í heim-
inum um leið og góðra tónleika er not-
ið.
Höfundur er upplýsingafulltrúi
UNICEF á íslandi.
Frá Hreggviði Davíðssyni:
LANDIÐ reis úr sjónum i hægum
takti meðan hjartsláttur undirritaðs
jókst þeim mun meira. Eftirvænt-
ingin var stór fyrir fundinn með
fósturjörðinni eftir öll þessi ár í út-
legð. „Allir á bíldekk" hljómaði í
kallkerfi ferjunnar og með það sama
hafnaði undirritaður mitt í hópi geð-
sjúks fólks sem tróðst og ruddist,
næstum slóst, til að ná sem fyrst
hurð bíldekksins. Vel í bílnum hófst
biðin, einn klukkutími - tveir
klukkutímar - spenntar taugar -
öskureið andlit. Á snigilshraða
drögnuðust bflarnir út á yfirfulla
bryggjuna þar sem tollarar sinntu
skyldum sínum, allt of fáir og inn-
bundnir í ofurvald kerfisins. Lemj-
andi ísköld rigningin gerði að verk-
um að þessir veslings tollarar þurftu
þá og þá hlýju í kroppana og hurfu
þar af leiðandi stöku sinnum inní
skúrana sína. - Slapp með skrekk-
inn og Axlarheiðin framundan.
Varð fyrst að kaupa nýjan síma,
því engir samningar um símamál
voru í gildi milli þess lands ég var að
koma frá og Islands.
Lífinu bjargað með hreyfingum á
ljóshraða og góðum bremsum, þeg-
ar aurkviksyndi tók við af olíu-
slitlagi í grenjandi rigningu og
svarta þoku.
„Skyldi maður ná ferjunni ef mað-
ur snýr við?“
Nei, nei, það gildir að bíta saman
postulíns- og plasttönnum og halda
áfram. Sólin fór að skína við Hjör-
leifshöfða og ró fyllti þreytta sál og
lemstraðan líkama. Eftir lang-
þráðan nætursvefn hjá góðu fólki
fór heilinn að starfa á ný. Ekki það
að þessi ákveðni heili sé eitthvað til
að státa af, nei öðru nær en hann
kallast nú samt heili.
Það er kannske ekki svo vitlaust
þetta með móttökurnar, því hvað í
veröldinni hefur ísland að gera með
einhverja furðufugla utan úr heimi,
sem auk þess halda að þeir séu eitt-
hvað?
Island er gott eins og það er.
HREGGVIÐUR DAVÍÐSSON,
Eyrarvegi 27, 800 Selfossi.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Sturla Kristjánsson: Bráðger
böm í búrum eða á afgirtu svæði
munu naumast sýna getu sína í
verki; þeim er það fyrirmunað og
þau munu trúlega aldrei ná þeim
greindarþroska sem líffræðileg
hönnun þeirra gaf fyrirheit um.
Kristján Gudmundsson: Því
miður eru umræddar reglur nr.
122/2004 sundurtættar af óskýru
orðalagi og í sumum tilvikum
óskiljanlegar.
Sigurjón Bjarnason gerir grein
fyrir og metur stöðu og áhrif
þeirra opinberu stofnana, sem
heyra undir samkeppnislög,
hvern vanda þær eiga við að glíma
og leitar lausna á honum.
Þorsteinn H. Gunnarsson:
Nauðsynlegt er að ræða þessi mál
með heildaryfirsýn og dýpka um-
ræðuna og ná um þessi málefni
sátt og með hagsmuni allra að
leiðarljósi, bæði núverandi bænda
og fyrrverandi.
Dr. Sigríður Halldórsdóttir:
Skerum upp herör gegn heimilis-
ofbeldi, kortleggjum þennan falda
glæp og ræðum vandamálið í hel.
Svava Björnsdóttir: Til þess að
minnka kynferðisofbeldi þurfa
landsmenn að fyrirbyggja að það
eigi sér stað. Forvarnir gerast
með fræðslu almennings.
Jóhann J. Ólafsson: Lýðræð-
isþróun á Islandi hefur, þrátt fyr-
ir allt, verið til fyrirmyndar og á
að vera það áfram.
Pétur Steinn Guðmundsson:
Þær hömlur sem settar eru á bíla-
leigur eru ekki í neinu samræmi
við áður gefnar yfirlýsingar fram-
kvæmdavaldsins, um að skapa
betra umhverfi fyrir bflaleig-
urnar.
Hólmfríður Anna
Baldursdóttir
I júlí hefur Síminn uppfærslu á ADSL kerfi sínu sem mun gefa
viðskiptavinum kost á mun meiri hraða og fjölbreyttari þjónustu.
Eftir uppfærsluna verður Síminn kominn með svokallað ADSL2+ kerfi sem gefur möguleika á allt
að 24 Mb/s hraða á Netinu ásamt aukinni þjónustu. í kjölfar uppfærslunnar geta ADSL viðskiptavinir
sjónvarpsþjónustu Símans séð yfir 60 sjónvarpsrásir, auk þess að eiga kost á myndbandaleigu og
annarri gagnvirkri þjónustu í sjónvarpinu sínu. í fyrsta áfanga verða símstöðvar á Akureyri,
Húsavík og SV-horni landsins uppfærðar.
Allir viðskiptavinir með ADSL hjá Símanum geta nú pantað sjónvarpsþjónustuna á siminn.is/sjonvarp
og fá þá nýjan ADSL2+ búnað (e. router) og myndlykil uppsettan án aukakostnaðar.
Nánari upplýsingar um
þær símstöðvar sem
verða uppfærðar í júlí
fást á siminn.is/adsl2+
Meðan á uppfærslunni stendur er hugsanlegt að einhverjir viðskiptavinir
lendi í sambandstruflunum sem eiga að ganga fljótt yfir. Ef Netið dettur út
í einhvern tíma hjá viðskiptavinum á meðan á þessari uppfærslu stendur
biðjum við þá um að endurræsa endabúnaðinn sinn og hafi það engin áhrif
að hafa þá samband við Þjónustuver Símans í 800 7000. Þjónustufulltrúar
okkar munu greiða úr vandamálunum eins fljótt og auðið er.
Við vonum að viðskiptavinir okkar sýni hugsanlegum truflunum samfara
uppfærslunni skilning.
, siminn.is