Morgunblaðið - 02.07.2005, Qupperneq 22
Ur
bæjarlífinu
ÞÓRSHÖFN
EFTIR LÍNEYJU SIGURÐARDÓTTUR
Sumarbragur er kominn á baejarlífið á
Þórshöfn og íbúar smám saman að taka
gleði sína á ný eftir risastóru rafmagns-
reikningana sem komu með vorinu. Það er
þó geymt en ekki gleymt meðal íbúanna og
heitar umræður enn í gangi varðandi heild-
arstefnu í orkumálum þjóðarinnar almennt.
• • •
Kátir dagar eru í brennidepli núna og und-
irbúningur stendur sem hæst en þessir
menningar- og gleðidagar eru helgina 15.
til 17. júlí. Margt verður til gamans gert og
dagskrá hefst formlega með hinu sívinsæla
kassabílarallíi áföstudeginum. Hagyrð-
ingamót verður svo síðar um kvöldið í Þórs-
veri en þar mætir Steingrímur J. Sigfússon
ásamt þremur valinkunnum hagyrðingum.
Að því loknu verður kvöldvaka fyrir krakk-
ana en þeir eldri geta brugðið sér á ball á
Eyrinni.
Á laugardagskvöld verður stórdans-
leikur þar sem hinir einu og sönnu Papar
leika fyrir dansi en dagurinn hefst með
dorgveiðikeppni á bryggjunni. Utimark-
aðurinn verður opnaður en þar verður á
boðstólum „allt á milli himins og jarðar“.
Fótboltamótið er á sínum stað, hestar koma
í heimsókn og margt verður að gerast.
Brenna og brekkusöngur verður einnig um
kvöldið og „strætó" á brennusvæðið verður
í líki dráttarvélar með heyvagn en það hef-
ur reynst prýðilegur farkostur síðustu árin.
Dagskránni lýkur á sunnudag en þá liggur
leiðin út í Skála á Langanesi þar sem rat-
leikur er fyrirhugaður. Fólki gefst síðan
kostur á að fara í bíó á heimaslóðum en
kvikmyndasýningar verða á veitingastaðn-
um Eyrinni. Mikil vinna og undirbúningur
liggur að baki þessarar hátíðar, að sögn for-
ráðamanna, og allir búast við að góða veðrið
komi með gestunum.
• • •
l*að styttist í að kúfiskvinnsla hefjist aft-
ur eftir gagngerar breytingar á húsnæði og
vinnslubúnaði. Miklar endurbætur hafa
verið gerðar og framkvæmdum að mestu
lokið; sérstök sandhreinsiskilja var sett
upp ogbættvið öðrum sjóðara, einnig ýms-
ar endurbætur til hagsbóta fyrir starfsfólk
og allt vinnsluferli. Að sögn Magnúsar
Helgasonar, framkvæmdastjóra, er stefnt
að því að Fossáin fari á veiðar um helgina
en skipið hefur verið í slipp og vélarviðgerð.
Fjölveiðiskipið Þorsteinn er á síldveiðum á
Svalbarðasvæðinu og er aflinn fullunninn
um borð en Júpíter er kominn í land eftir að
hafa veitt allan kolmunnakvóta Hraðfrysti-
stöðvarinnar og beðið er eftir ákvörðun
ráðherra um hvort kvótinn verður aukinn.
PtajgmiHjifrife
Minnstaður
Akureyri | Sudurnes | Árborg | Landid
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Umhverfið fegrað á Garðskaga
Garður | Mikil vinna hefur
verið lögð í að snyrta um-
hverfið á Garðskaga að und-
anförnu, vegna opnunar nýs
Byggðasafns og veitingastaðar
í dag. Krakkarnir úr vinnu-
skólanum voru að plokka ill-
gresið úr gangstígnum heim
að vitanum.
Vinnuskóli
Morgunblaðíð/Sigurður Jónsson
Samið Ingibjörg Valdimarsdóttir og Gísli
Páll Pálsson ganga frá samningnum.
Tíu til tólf
störf í nýju
þvottahúsi Ass
Hveragerði | Dvalarheimilið Ás í Hvera-
gerði mun nú í haust byggja þvottahús í
Hveragerði fyrir starfsemi sína og
Grundar, dvalar- og hjúkrunarheimilisins
í Reykjavík. Þar verða tíu til tólf störf.
Samningur til 15 ára um kaup á gufu frá
Orkuveitu Reykjavíkur til þvottahússins
hefur verið undirritaður.
Samningurinn er grundvöllur þess að
Ás ræðst í það verkefni að byggja og
reka eitt þvottahús en til þessa hafa
stofnanirnar í Hveragerði og Reykjavík
rekið sitt hvort þvottahúsið auk þess sem
hluti af þvotti heimilanna hefur verið
þveginn af öðrum þvottaþjónustufyrir-
tækjum.
Jarðgufa mun hita þvottavélar, þurrk-
ara og strauvélar þvottahússins. Orku-
kostnaður vegna gufunotkunar er mun
lægri en væri rafmagn notað til sömu
vinnslu. Nýjasta tækni verður notuð í
þvottahúsinu og má nefna að einkafatn-
aður heimilisfólks verður merktur með
örtölvuflögum sem eru skannaðar í
þvottaferlinu. Það tryggir að afföll á
þvotti verður í lágmarki.
Gísli Páll Pálsson, framkvæmdastjóri
Áss í Hveragerði, sagði fyrirhugað að
taka þvottahúsið í notkun í febrúar eða
mars á næsta ári og þar yrðu 10 til 12
störf. Hann sagði einnig að hagstætt verð
á gufunni og gott vinnuafl í Hveragerði
ásamt því að Ás ætti lóð á góðum stað í
Hveragerði, gerði að verkum að þvotta-
húsið væri staðsett þar.
• • •
Byrjað á Grettisbóli | Framkvæmdir
eru hafnar við Grettisból á Laugarbakka í
Miðfirði en þar mun verða menningar- og
fræðslusetur sem byggist einkum á Grett-
issögu. I fyrsta áfanga verður unnið við
útisvæði, þar sem útbúinn verður garður
fyrir fjölskyldufólk, en einnig aðstaða til
samkomuhalds og annarra atburða. Stefiit
er að opnun fyrsta áfanga sumarið 2006.
Kemur þetta fram á vef Forsvars ehf. á
Hvammstanga. Stofnað hefur verið hluta-
félagið Grettisból ehf., sem annast mun
uppbyggingu og rekstur Grettisbóls.
Njlega bíettisl við enn einn Ijúffengnr réttur í kaffiteríu Perlunnar.
Bragðið á gómsœtum nýbökuðum belgískum vöffum í kaffteriunni
á 4. hæð. Næg ókeypis bílastœði!
Veitingahúsið Perlan - S: 562 0200 - perlan@perlan.is - www.perlan.Ls
Fréttir ítölvupósti mbl.ÍS
Mínstund fre.tt@mbl.is
Hornfirðingar til sýnis
Sigurður Mar Halldórsson opnaði í
gær ljósmyndasýningu í Pakkhús-
inu á Höfn í Hornafirði. Sýningin
nefnist Hornfirðingar og eins og nafnið
gefur til kynna, eru það bæjarbúar á
Höfn sem eru í aðalhlutverki á mynd-
unum. Myndirnar sýna fólk sem vinnur
ólík störf í samfólaginu, m.a. trillukarl,
kennara, fiskverkakonu, banka-
gjaldkera, meinatækni, lóðs og trésmið
en mynd af þeim síðastnefnda birtist
hér með.
Sýningin er á vegum Menningar-
miðstöðvar Hornafjarðar og í tengslum
við Humarhátíð á Höfn. Menningarráð
Austurlands styrkir sýninguna.
Þetta er fjórða einkasýning Sigurðar
Mar en hann hefur einnig tekið þátt í
nokkrum samsýningum, bæði hérlendis
og í Svíþjóð.
Sýningin í Pakkhúsinu verður opin
daglega til 9. júlí.
Höfuðborqarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, simi 898-5258. Austuriand SteinunnÁsmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborqarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Afbflategundum
Isleifur Gíslason hefur
ort afbragðsvísur um
eigindir bíla í Bfl-
vísnabókum súium. Þar er
þessi vísa:
Aksturinn var eintómt spðl,
olían afverstatagi,
engar bremsur, ónýt hjól
og allt t þessu fina lagi.
Jón Ingvar Jónsson yrkir:
Veðrið hefur loksins lægt,
leku skýin flýja.
Skúlagötu skrfður hægt
Skoda Oktavia.
Gerist margtvið Grafarvog,
glatt þar stiginn dans er.
Maka sig þar Moskwitch og
Mitsublshi Lancer.
Loks yrkir Guðbrandur
Guðbrandsson um Mosk-
owiteh sem hann átti, en
hann endaði sem brú.
Ennþá man ég Moskvítsinn
myglugráan fjanda.
Endaði frægan ferilinn
sem ferja milli stranda.
pebl@mbl.is