Morgunblaðið - 02.07.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2005 27
DAGLEGT LÍF
Hringurinn fyrir einhleypa er fyrir bæði kyn-
in og er framleiddur í fjórum stærðum.
Hringur
fyrir
einhleypa
■ KYNIN
NÚ HEFUR einhleypt fólk loksins mögu-
leika á því að tilkynna ókunnugum hjúskap-
arstöðu sína. Með einum bláum hring, sem
nefnist „singelringen“ er hægt að gefa verð-
andi vonbiðlum merki um að viðkomandi sé
móttækilegur fyrir nánari kynnum.
Hugmyndin kviknaði hjá þeim Johan
Wahibáck og Ása
Revland í Svíþjóð
á síðasta ári en
þær voru báð-
ar einhleypar
og kynntust í
matarboði.
Þar sem
hringar hafa
alltaf gefið vís-
bendingu um hjú-
skaparstöðu fólks
fannst þeim und-
arlegt að engum hefði
dottið í hug að hanna hring
fyrir einhleypa. Nú hefur sá hringur verið
búinn til af stakri sænskri snilld. Hann er
blár að utan, silfraður að innan og með
litlum hálfmána inn af bláa hlutanum sem
táknar að eigandi þess sé opinn gagnvart
nýjum samræðum, vináttuböndum og jafnvel
ástarsamböndum. Sérstakt raðnúmer fylgir.
hveijum hring og hægt er því að áætla
hversu margir tilheyri samfélagi einhleypra.
Gripurinn hefur vakið athygli úti í heimi og
fjallað hefur verið um hann í erlendum
tískublöðum.
Hringurinn er fyrir bæði kynin og kemur
í fjórum stærðum. Hægt er að panta hann á
Netinu á www.singelringen.com og kostar
hann tæpar 3.500 krónur. Vert er að velta
því fyrir sér hvort einn litur nægi flóru ein-
hleypra og hvort misskilningur geti ekki
enn átt sér stað, til dæmis ef kynhneigð
manna er ekki sú sama.
www.singelrinqen.com
■ FRAMTAK : Sveitastelpan Unnur Þorsteinsdóttir kann að bjarga sér
Broddur borgar ferðalagið
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þær eru framtakssamar og ráðagóðar stelpurnar í
sveitinni, í það minnsta á það við um hana Unni
Þorsteinsdóttur sem býr á Fróðastöðum í Hvít-
ársíðu í Borgarfirði. Unnur er 14 ára og var að
ljúka áttunda bekk í Varmalandsskóla í vor sem
leið, en þar er venja að krakkarnir fari í veglegt ferðalag til
útlanda þegar þau ljúka tíunda bekk. Þó Unnur eigi enn eftir
að sitja tvo vetur í skólanum áður en að ferðalagi þessu kem-
ur, þá hefur hún enga þolinmæði tfi að bíða eftir því að farið
verði af stað til að safna fé til fyrrnefnds ferðalags og því hef-
ur hún verið að bjóða bráðhollan brodd til sölu.
Agnes kúabóndi lumaði á 130 lítrum af broddi
„Venjulega safna krakkarnir fyrir þessari ferð í níunda ■
bekk, en það er engum bannað
að fara fyrr af stað og systir
mín byrjaði til dæmis að safna
þegar hún var í sjöunda bekk,“
segir Unnur og bætir við að
ýmist geri krakkarnir eitthvað
saman til að safna í sameig-
inlegan sjóð eða hver og einn
safni fyrir sig og ágóðinn af
broddsölunni rennur því
óskiptur í hennar vasa., Jlnn-
ars er þetta eiginlega alit
henni Agnesi að þakka, en hún
er kennari við skólann minn og
býr hérna í nágrenninu. Hún
er með stórt kúabú og hún gaf
mér hundrað og þrjátíu lítra af
broddmjólk sem hún átti í
frystinum hjá sér, svo ég gæti
selt hana og byrjað að safna í ferðasjóð."
Allir ættu að prófa brodd
Unnur hefur verið að selja brodd, rúgbrauð og kæfu á
Hyrnutorginu í Borgamesi og segir söluna hafa gengið
bærilega. „En það var mest svona eldra fólk sem keypti af
mér broddinn, kannski þekkir það betur brodd en þeir sem
yngri eru. En ég hvet alla til að prófa brodd, hann er mjög
góður með bragðmiklu útáláti," segir hin duglega sölukona
Unnur, sem ætlar að færa viðskiptin út fyrir hérað og býður
nú höfuðborgarbúum að hringja í sveitina til sín ogpanta
brodd hjá sér, sem hún selur í hálfslítra flöskum. „Eg kem
svo til Reykjavíkur í næstu viku eða hinni, til að afhenda
broddinn," segir Unnur sem hlakkar nú þegar til að fara til
Danmerkur eða hvert annað sem farið verður í lok tíunda
bekkjar, en hún hefur aðeins einu sinni áður farið til útlanda.
Góður með bragðmiklu útáláti
Broddmjólk er fýrsta mjólk úr kúm eftir burð. Hún er
þykk og svolítið gul, mjög próteinrík og stútfull af hollustu.
Broddmjólk inniheldur m.a albúmín og glóbúlín sem veldur
því að hún hleypur við upphitun og þá kallast hún ábrystur.
Ábrystur henta sérlega vel sem flottur rammíslenskur eft-
irréttur eða milliréttur og hægt er að leika sér með út-
færslur. Flestir kannast við að kanilsykri sé dreift yfir og
mjólk eða rjóma hellt út á, en ekki er síðra að nota bráðið
súkkulaði, berjasaft eða hvað annað sem fólki dettur í hug og
um að gera að skreyta með ferskum ávöxtum eða berjum og
gera tilraunir með krydd.
Ýmist er hægt er að láta broddmjólk hlaupa við hita í potti,
í heitu vatnsbaði eða í örbylgjuofni.
Hægt er að panta brodd hjá Unni f síma 435-1160 milli Kl. 9
og 11 og í síma 899-5249 milli kl. 17 og 19.
Flestir kannast vid
að kanilsykri sé
dreift yfir og mjólk
eða rjóma hellt út
á, en ekki er síðra
að nota bráðið
súkkuiaði, berja-
saft eða hvað ann-
að sem fólki dettur
í hug og um að gera
að skreyta með
ferskum ávöxtum
eða berjum og gera
tilraunir með krydd.
Unnur Þorsteinsdóttir alsæl í sveitinni með kálf í grænu túni.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Borgfirsku kýrnar gefa góðan og hollan brodd.
■ GRÓÐUR ] Illgresi í limgerði
Eitt laufblað getur ráðið úrslitum
Erfitt getur verið að komast að
snarrót og illgresi sem sætir
lagi og dafnar vel inn á milli
greinanna í limgerði og hvað er þá til
ráða? „Lífræna aðferðin byggist á að
henda öllu grasi sem kemur af
túninu yfir illgresið í beðinu og kæfa
það,“ segir Kristinn H. Þorsteinsson
formaður Garðyrkjufélags Islands.
„Þetta er ágæt aðferð en það verður
að gæta þess að hvergi standi grænt
strá upp úr heyinu. Ef eitt laufblað
af snarrót stendur upp úr þá er hún
búin að bjarga sér. Það verður að
hylja allt illgresi með grasi og öðru
sem kemur af túninu. Eini gallinn er
sá að það er súrheyslykt af grasinu
þegar það er að brotna niður en hún
líður hjá.“ Þessi aðferð er ekki end-
anleg og verður að endurtaka á
hverju ári eða svo lengi sem bólar á
illgresinu.
Dlgresi: Gras af túni getur nýst vel í baráttunni við illgresi.
VIÐ ERUM ALLTAF NALÆGT
16 HÓTEL
ALLAN
HRINGINN
Verð frá aðeins
3.400 kr.
nóttin á mann
Allar nánari upplýsingar:
www.hoteledda.is
Sími 444 4000