Morgunblaðið - 02.07.2005, Side 53
4-
52 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2005
STÆRSTA KVIKMYNDAHÚS LANDSINS • HAGATORGI • S. 530 1919 • www.haskolabio.is
War of the Worlds
Batman Begins
Inside Deep Throat
Voksne Mennesker
Crash
3.30-6-8.30 - 11 b.i. 14
5 - 7 - 9 og 11 b.i. 12
10,15 Stranglega b.i. 16 ára
5.45 og 8
5.45 - 8 og 10.15 b.i. 16
MYNDEFTIR STEVEN SPIELBERG
KVIKMYNDIR.IS 'Ó.H.T, RÁS 2
Nýr 09 miklu betri
leáurblökumoöur.
„IhíNRÁSiN
ER
GIRNILEG
SUMAR
SKEMMTUN.
POPPKORNS
MYND
AF BESTU
GERÐ!"
-S.V. MBL
„ E KTA
STORSLYSAMYND'
-Ó.Ö.H. DV
BATMAN EINS OG ÞU HEFUR
ALDREI SÉÐ HANN ÁÐUR !
MORGUNBLAÐIÐ
M0RGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 2005 53
400 KR. MiÐAVERÐ A fLLAR MYNDIR KL. 12 SUNNUDAG í SAMBÍÓNUM KRINGLUNNI
THE WAR 0F THE W0RLDS kl. 2 - 3.20 - 5.40 - 8 - 10.30 B.i. 14 óra.
THE WAR 0F THE WORLDS VIP kl. 3.20 - 5.40 - 8 - 10.30
BATMAN BEGINS kl. 2 -3.30 -4.30 -5 - 6.30 -7.30 -8 -9.30 -10.30 -10.50 b.i. 12 ára.
ALOTLIKELOVE kl. 6 - 8.15 -10.30
SVAMPUR SVEINSSON m/isl.tali. kl. 2 - 4
BATMAN BEGINS
kl. 3.30 - 5.10 - 6.30 - 8.10 - 10
HOUSEOFWAX kl. 10
THE WEDDING DATE kl.8
BATMAN BEGINS kl. 2 - 5 - 8 -10.30
KICKING AND SCREAMING kl. 4 - 6 - 8 fótboltatilboð 500 kr.
CRASHkl. 10
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.ta!i. kl. 2
THE ICE PRINCESS kl. 4
HITCHHIKER'S GUIDE... kl.5.50
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl.3.30
WAR OF THE WORLDS kl. 3 - 5.30 - 8 og 10.30
BATMAN BEGINS kl. 3 - 5.30 - 8 og 10.30
HÁDEGISBÍÓ
FRABÆR SKEMJVl
„INNRASIN ERGIRNILEG SUMARSKEMMTUN
POPPKORNSMYND AF BESTU GERÐ!"
CHRISTIAN
BALE
GARY WIORGAN
OLDMAN ““ FREEMAN
MICHAEL
CAINE
EKTA STORSLYSAMYND'
Ó.Ö.H, DV
Gleymid öllum hinum
Batman myndunum.
Þessi er málid
tmyndir.ís
Þórarinn Þ / FBL
M.B. / SIRKUS
KV1KMYNDIR.IS
D.Ö.J. I Kvikmyndir.com
Einn af stærstu
sinellum árslns.
N N RA S 1 JSI ER HAFIN!
POWERSÝNING í ÁLFABAKKA KL. 10.30
BATMAN EINS OG ÞU HEFUR ALDREI
www.sambioin.is
ÁLFABAKKI C 587 8900
KEFLAVÍK ( 421 1170
KRINGLAN { 588 0800
Hróarskelda 2005 | Fyrsti dagur
Grænn dreki og
léttleikandi stemning
Hróarskelduhátíðin hófst formlega á fimmtudaginn og
stendur til sunnudags. Arnar Eggert Thoroddsen er á
staðnum og mun skýra frá herlegheitunum.
ÞAÐ er á Appelsínugula sviðinu, stærsta sviði
hátíðaiinnar, sem formleg opnun hátíðarinnar
fer fram, alltaf klukkan 18. Sviðið heitir eftir
appelsínugula tjaldinu sem sveipar það og í dag
er það notað sem tákn hátíðarinnar. A því leika
öll stærstu nöfn hátíðarinnar en svo eru fimm
önnur svið í gangi sem þjóna mismunandi til-
gangi. Arena-sviðið er hið næststærsta, ætlað
þokkalega þekktum nöfnum, í Ballroom má
heyra alls kyns heimstónlist, í Metropol er það
raftónlistm o.s.frv. Allt skarast þetta þó enda
ómögulegt að stika nákvæmlega niður öllum
þeim listamönnum sem fram koma á hátíðinni,
eins óhkir og þeir eru.
Rapp
Loft var spennu blandið að vanda í kringum
Appelsínugula sviðið ogfólk flykktist að. Gleði
og æsingur í fasinu. Hefð hefur veríð fyrir því að
dönsk sveit heiji hátíðina og í þetta skiptið vai-
það rappsveitin Ikscheltaschel sem um það sá.
Oftar en ekki hafa þessar opnunarsveitir verið
skelfilegar, Danir að tefla fram einhverjum
„nýjum“ og „heitum" sveitum sem hafa síðan
verið hálfgerður farsi, sjá t.a.m Mnemic í fyrra
sem var fremur sorgleg nýþungarokksveit. Því
kom Ikscheltaschel skemmtilega á óvart. Danir
eru kunnir fyrir ágætlega líflega og grósku-
mikla rappsenu og þessu ættu þeir að hampa í
meiri mæli. Ikscheltaschel er þó langt í frá dæmi
um framsækið og jaðarkennt rapp. Hér voru
ringjar á ferð, tónhstin mitt á milli grúvkennds
stuðrapps og Spaugstofunnar. Forvígismenn-
imir voru tvefr, nett hallærislegir gaurar en til
stuðnings voru dansarar, kór og strengjasveit
og grænn dreki sem þvældist um sviðið. Ætli
um fimmtíu manns hafi ekki verið á sviðinu! Og
þetta var að virka, glettilegt nokk. Þetta var
skemmtilegt, flörugt og því mjög svo hæfandi
opnunaratriði. Það væri óskandi að Danir tækju
meiri svona „ligeglad" stefnu í þessum málum á
næstu hátíðum. Og hvenær opnar Kim Larsen?
Eg hét mér því á síðustu hátíð að gerast tíðari
gestur í Ballroom-tjaldinu, þar sem heimstón-
listin (ókei, ömurleg lýsing á allri þeirri tóniist
sem ekki er vestræn) ræður ríkjum. Þau áform
mistókust gjörsamlega. Til að bæta úr því í ár
brá ég mér þangað er Ikscheltaschel voru hálfn-
aðir en þar hafði sveitin Dwi Mekar hafið leik á
sama tíma og hátíðin var sett. Dwi Mekar er
tuttugu og tveggja manna gamelan-sveit frá eyj-
unni Bali í Indónesíu. Tónlistin einkennist af
flóknum áslætti þar sem sílófónar, gong og alls
kyns trumbur og jámplötur eru notaðar. Tón-
listarmennirnir sátu á sviðinu, inni í fagurleg
skreyttu og gullbrydduðu smáhýsi á meðan fjór-
ir dansarar voru fremst á sviðinu. Tónlistin ansi
mögnuð og minnti á stundum á „industrial“ tón-
list, en einnig var eins og manngerð spiladós
hefði verið sett í gang.
Kóngar
Næst voru það kóngamir sjálfir (og drottn-
ingin). Sonic Youth, magnaðasta neðanjarðar-
rokksveit allra tíma, átti að hefja leik klukkan
20.30 í Arena-tjaldinu. Hálftíma áður hafði Velv-
et Revolver, sú sem skrópaði í Islandsfórina,
sett í gang á Appelsínugula sviðinu.
Sonic Youth vai1 fín, en ekki stórkostleg. Mað-
ur notar líklega svona orðalag þegar maður
kemur fullur af væntingum og þær standast svo
ekki. Sveitin spilaði í rétt rúman klukkutíma,
eitthvað sem manni fannst grátlega stutt. En vá,
ég fer ekki ofan af því að þetta er svalasta hljóm-
sveit i heimi. Þetta fólk er flest allt komið yffr
fimmtugt en er svo langt frá því að vera komið
yfir síðasta söludag, að það er eiginlega fyndið.
Sonic Youth er rokksveit en þó aðallega til-
raunasveit, í stöðugri leit að einhveiju nýju og
það er það sem gerir þau, ja... einhvem veginn
Ljósmynd/Arnar Eggert Thoroddsen
Sonic Youth-liðar, sem halda munu tónleika á íslandi í ágúst, eru „svo langt frá því að vera komn-
ir yfir síðasta söludag, að það er eiginlega fyndið". Myndin er tekin af skjá á tónleikunum.
tímalaus. Alltént fengu áhorfendur að sjálfsögðu
ekki það sem þeir vildu en settið var engu að síð-
ur orkumikið. Mikið um gítarendurgjafir („feed-
back“) og gaman var að fylgjast með snill-
ingnum Jim O’Rourke sem sat löngum yfir
bjögunartækjum og hafði á einum tíma stungið
hnífi undir strengina. Thurston Moore virtist í
góðu stuði, hoppaði mikið og ólmaðist. Aðeins
einn „slagaii" var spilaður, „Mote“ af Goo, sung-
ið glæsilega af Lee Ranaldo (besti söngvarinn í
Sonic Youth, verst hvað hann syngur sjaldan).
Uppklappslagið var svo „Teenage Riot“, í frem-
ur dempaðri útgáfu.
í álögnm
Ég þusti því næst í Odeon-tjaldið þai- sem
tríóið Le Tigre var að spila. Frábært band, leitt
af Kathleen Hanna sem var áður í Bikini Kill. Le
Tigre spilar æsilegt raíþönk með feminískum
textum og fór sveitin á kostum. Þær stöllur
sýndu m.a. víraðan dans undir einu laginu og
héldu áhorfendum vel við efiiið. Oreiðukennt, en
þó melódískt; pólitískt, en þó dansvænt. Þetta
var hressandi eftir gönguna frá Arena. Það tjald
er nokkuð langt frá hinum og ef menn ætla að
vera duglegir við að kanna sem flest umbreytast
þeii' sjálfkrafa i nokkurs konar gönguhrólfa,
flakkandi fram og til baka á milli tjalda. Mörg-
um reynist þó erfitt að fylgja tímaáætlunum þar
sem Tuborgtjöld á hveiju homi lokka gjarnan
til sín þyrst göngufólk.
Guineski tónlistai'maðurinn Mory Kanté átti
að spila klukkan 22.30 í Ballroom og ákvað ég að
kíkja þangað, minnugur heimstónlistarheit-
strenginganna. Kanté og félagar voru heillengi
að stilla, sem endaði með því að Kanté rauk út
baksviðs. Hélt ég um tima að hann væri hættur
við en loks kom kynnir á svið og kynnti til leiks
„hljómsveitina" Mory Kanté. Með Kanté var
sveit sem aðstoðaði hann við plötuna Sabou sem
út kom í fyrra, plata sem þykir hafa fært Kanté
aftur tíl rótanna og hefur fengið lofsamlega
dóma. Skemmst er frá því að segja að Kanté
náði fljótlega að fanga tjaldið með dásamlega
grúvandi tónlist. Hafði það verið hálffullt fram-
an af en fylltist á örskotsstund þar sem allir dill-
uðu sér í takt. Kanté sjálfur og hljómsveit hans
voru í miklu stuði, sérstaklega fór einn sílófón-
leikaiinn hamfórum, tók villt sóló reglulega við
gi-íðarleg fagnaðarlæti viðstaddra.
Ég hafði ætlað mér að enda kvöldið með því
að sjá Mastodon, hið snilldariega þungarokks-
band frá Atlanta (heimabær Manowar), sem
heimsótt hefur Island. Sú heimsókn er meira að
segja shjalfest á nýjustu plötu þeirra Leviathan
en hana prýðir lag sem heitir „Island“. í
Mastodon er þá líklega besti trommuleikari
heims i dag. Én allt kom fyrir ekki. Ég missti af
Mastodon. Alög Kanté voru það sterk að ég var
pikkfastur - og líkaði það dável.
Og svo eru það föstudagur, laugardagur og
sunnudagur. Meira um það eftir helgi...
armrt@mbl.is
T
Tónlist | Börkur Sigþórsson gerir það gott í Bretlandi
Leikstýrir tónlistarmynd-
bandi fyrir Supergrass
BÖRKUR Sigþórsson, ljósmyndari og leik-
stjóri, lauk nýverið við tökur á myndbandi
við nýjasta lag bresku hljómsveitarinnar
Supergrass. Börkur hefur áður getið sér
gott orð hér á landi fyrir myndbönd sín sem
hann hefur meðal annars gert við lögin „The
Long Face“, „Angel in Disguise“ og „Rom-
antic Exorcism" fyrir Mínus, „Race City“
fyrir Quarashi og „Life in a Fishbowl" fyrir
hljómsveitina Maus. Börkur gerði einnig á
síðasta ári þrjú myndbönd fyrir bresku
hljómsveitirnar Faultline, The Boxer Rebell-
ion og Thirteen Senses, en sú síðastnefnda
lék með Leaves og Supergrass á tónleika-
ferðalegi fyrir stuttu.
Börkur sem er á rnála hjá framleiðslufyi'-
irtækinu Factory Films í Bretlandi, segir að
fyrirtækið hafi mælt með sér þegar Super-
grass leitaði eftir leikstjóra.
„Ég flaug út og hitti hljómsveitina á fundi
og svo fékk ég að vita daginn eftir að ég
hefði verið valinn til þess að gera mynd-
bandið.“
Hann segir að myndbandið sé það sem
kallast „performance“-myndband en þá spil-
ar hljómsveitin einfaldlega lagið fyrir fram-
an myndavélina. „Það þarf nokkra lagni til
að gera slík myndbönd áhugaverð og ég
vona að það hafi tekist. Ég naut líka hjálpar
tökumannsins Magna Agústssonar en hann
skaut líka mynbönd Thirteen Senses og
Faultline sem ég leikstýrði."
Tökum á myndbandinu lauk í fyrradag og
í næstu viku verður farið í að litgreina það
og klippa.
„Ég verð að skila þessu af mér fyrir 8.
júlí þannig að þetta er mun minni tíma-
rammi en gengur og gerist og þvi svolítið
strembið. Hins vegar er þetta mjög gaman,
sérstaklega þar sem þetta er myndband við
fyrstu smáskífu plötunnar. Þetta voi-u líka
mjög viðkunnanlegir strákar og maður fann
það strax að þeir taka sig ekki of alvarlega.“
Aðspurður segir Börkur að nokkur verk-
efni liggi fyiir eftir þetta. „En það er
kannski best að segja bara frá því þegar þar
að kemur."
Morgimbladið/.Jitn Smart
Börkur Sigþórsson getur tekið á sig mörg gervi en hann er ljós-
myndari, leiksljóri og kvikmyndagerðarmaður.
Rokktríóið Supergrass er ein stærsta hljómsveit Bretlandseyja.
folk@mbl.is
Söngkonan Jessica Simpson er
með fallegasta hárið. Það eru
lesendur bandaríska kvennablaðsins
In Toueh sammála um samkvæmt
skoðanakönnun sem þar var birt.
Hún þykir þar skara fram úr hvað
hárprýði varðar og var á undan kon-
um eins og Jenni-
fer Aniston, Jess-
icu Alba og
Angelinu Jolie,
sem komu næstar
á listanum.
Þær konur sem
á eftir komu vora
Eva Longoria,
Marcia Cross,
Nicole Richie, Mischa Barton, Oprah
Winfrey og Gwyneth Paltrow.
Stökktu til
Portúgals
6. júli
frá kr. 29-990
Síðustu sætin
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Portúgals 6. júlí. Njóttu
lífsins á þessum vinsæla sumarleyfisstað. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Verð kr.
29.990
í viku
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 böm,
2-11 ára, í íbúð í viku. Flug, skattar,
gisting og íslensk fararstjóm. Stökktu
tilboð 6. júlí.
Verð kr.
39.990
í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 böm,
2-11 ára, í íbúð í 2 vikur. Flug, skattar,
gisting og íslensk fararstjóm. Stökktu
tilboð 6. júlí.
iTHii, Munið Mastercard
■ ferðaávísunina
Heimsferðir
Skógarhlíð 18 • sími 5951000 • Akureyri
sími 461 1099* www.heimsferdir.is
Verð kr.
49.990
í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíóíbúð í
tvær vikur. Flug, skattar, gisting og
íslensk fararstjóm. Stökktu tilboð 6. júlí.
V i^, Fáðu úrslitin send í símann þinn ásAr, mbl.is