Morgunblaðið - 02.07.2005, Side 56
Engar
sendi-
nefndir
frá Kína
KÍNVERSK sendinefnd sem átti
fund í heilbrigðisráðuneytinu í
gærmorgun hætti óvænt við fund-
inn og gekk út eftir að símtal
barst frá kínverska sendiráðinu.
Sendinefndin var hér til þess að
kynna sér öldrunarmál, m.a.
skipulag endurhæfingar hérlend-
is. Kynning var um morguninn og
til stóð að heimsækja heilsu-
gæslustöðvar, hjúkrunarheimili
og að þeir myndu ræða við aldr-
aða seinna um daginn.
Að sögn heilbrigðisráðuneytis-
ins barst hringing frá kínverska
sendiráðinu þegar skammt var
liðið á dagskrána. í kjölfar sím-
hringingarinnar stóð sendinefnd-
in á fætur, kvaddi og fór og lauk
þar með heimsókninni. Kínverska
sendiráðið hafði síðar samband
við heilbrigðisráðuneytið þar sem
gerð var grein fyrir óvæntri
brottför sendinefndarinnar en
þar kom fram að í kjölfar heim-
sóknar varaforseta Taívans til Is-
lands yrðu allar heimsóknir kín-
verskra embættismanna til
Islands stöðvaðar.
----------------
Morgunblaðið/Júlíus
Fjórir slasaðir
FJÓRIR voru fluttir á slysadeild Landspítala -
háskólasjúkrahúss í Fossvogi eftir árekstur
fólksbifreiðar og jeppabifreiðar efst í Hvera-
dölum á Hellisheiði á sjötta tímanum í gær.
Þrír hlutu minni háttar meiðsl og voru útskrif-
aðir af slysadeild í gærkvöldi. Þá slasaðist
eftir árekstur
einn alvarlega og var hann fluttur á gjör-
gæslu.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Sel-
fossi varð að kalla til tækjabíl slökkviliðsins í
Hveragerði auk fimm sjúkrabifreiða en beita
þurfti klippum til þess að ná einum hinna slös-
á Hellisheiði
uðu úr bifreið sinni. Að sögn lögreglu eru til-
drög slyssins óljós en áreksturinn var harður
og eru báðar bifreiðarnar gerónýtar.
Hellisheiði var lokað um stund vegna slyss-
ins og var umferð veitt í báðar áttir um gaml-
an veg í nágrenninu.
Jón Gerald Sullenberger hyggst stefna Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
Samkomulag brotið sem
gert var að kröfu Baugs
Leikstýrir
Supergrass
BÖRKUR Sig-
þórsson, ljós-
myndari og leik-
stjóri, lauk
nýverið við tök-
ur á myndbandi
við nýjasta lag
bresku hljóm-
sveitarinnar
Supergrass.
Börkur hefur
áður getið sér
gott orð hér á landi sem erlendis
fyrir myndbönd sín en þau hefur
hann gert fyrir hljómsveitir á borð
við Mínus, Quarashi, Faultline,
Thirteen Senses og Maus. Börkur,
sem er á mála hjá framleiðslufyr-
irtækinu Factory Films í Bret-
landi, segir að fyrirtækið hafi
mælt með sér þegar Supergrass
leitaði eftir leikstjóra.
Næstu dagar fara í að litgreina
og klippa myndbandið en Börkur
þarf að skila af sér fullbúnu mynd-
bandifyrir8.júlí. | 53
JÓN Gerald Sullenberger, fram-
kvæmdastjóri Nordica, hyggst steína
Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra
Baugs Group hf., þar sem Jón Gerald
telur Jón Ásgeir hafa brotið samkomu-
lag sem gert var að kröfu Baugsmanna
um að málsaðilar tjáðu sig ekki um
málið í fjölmiðlum. Þetta kom íram í
Kastljósviðtali við Jón Gerald í Rík-
issjónvarpinu í gærkvöldi.
„Ég hef alltaf sagt að þetta mál á
heima í héraðsdómi. Þar verður þetta
mál tekið fyrir og þar geta menn út-
kljáð þetta. Enda gera menn það ekki
í fjölmiðlum. Það var gert samkomu-
lag um að þetta mál yrði ekki rætt í
fjölmiðlum," sagði Jón Gerald og tel-
ur Jón Ásgeir hafa brotið samkomu-
lagið þegar hann
dreifði til fjölmiðla
bréfum sem hann
sendi á síðasta ári
til Jóns Snorra-
sonar hjá efna-
hagsbrotadeild
ríkislögreglu-
stjóra, og ríkislög;
reglustjóra. „í
þessu bréfi er ver-
ið að fara ofan í
þessi mál og ofan í okkar samskipti og
ég tel hann hafa brotið samkomulagið
með því að gera það.“
í viðtalinu sagðist Jón hafa ákveðið
að tjá sig ekki um málið almennt op-
inberlega fyrr en búið væri að gefa út
ákærur. Um ástæðu þess að hann
væri nú að koma fram í sjónvarps-
viðtali sagðist hann vilja leiðrétta um-
mæh Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í
nýlegu viðtali við BBC, þar sem hann
hélt því fram að lögreglurannsóknin
væri runnin undan rifjum íslenskra
stjómvalda og að um pólitískt mál
væri að ræða. „Og þar sem ég byijaði
þetta mál, þ.e. kom því á framfæri, þá
er ég eini maðurinn sem get útskýrt
hvemig þetta byrjaði allt saman. Af
þeim sökum ákvað ég að koma hing-
að,“ sagði Jón og tók fram að af og frá
væri að tala um lögreglurannsóknina
á hendur Baugi sem pólitískar of-
sóknir. Minnti hann á að hann hefði
búið í Bandaríkjunum sl. tuttugu ár
og hefði aldrei kosið hérlendis. Hann
væri því á engan hátt pólitískur.
Um forsögu málsins sagðist Jón
Gerald hafa leitað til Baugsmanna
vegna annars vegar ógreiddra reikn-
inga og hins vegar vegna viðskipta-
samkomulags sem gert hafði verið.
„Ég leitaði til þeirra um það að við
myndum ganga frá þessum viðsMpta-
kröfum sem ég hafði en þeir höfnuðu
því og settu á móti fram ákveðna
kröfu sem ég yrði að framkvæma sem
sneri að bátnum New ViMng og neit-
aði ég því.“ Þegar Jón var spurður
hvers konar krafa það hefði verið
sagðist hann ekM reiðubúinn að fara
út í það. „Ég taldi þetta allavega ekM
vera löglegt.“
Börkur
Sigþórsson
Jón Gerald
Sullenberger
Lagt upp í póst-
ferð til Gimli
LAGT var upp í póstferð frá
Eyrarbakka til Gimli í Manitoba
í Kanada í gær, á þjóðhátíð-
ardegi Kanada, að viðstöddu
fjölmenni. Er ferðin farin í til-
efni þess að í ár eru liðin 130 ár
síðan Islendingar settust að í
Gimli. Ferðalangarnir lögðu af
stað frá Steinskoti og riðu rak-
leitt að póstafgreiðslunni þar
sem þeir tóku við bréfum og síð-
an var haldið að Húsinu, þar
sem fulltrúar Islandspósts
stimpluðu bréf er fara eiga vest-
ur um haf. Þar var viðstaddur
sendiherra Kanadamanna á ís-
landi og hélt hann þar ræðu,
kvaddi ferðalangana og óskaði
þeim góðrar ferðar. Lýður Páls-
son afhenti nokkur bréf til vel-
unnara Eyrarbakka þar vestra
og benti á í sinni tölu að segja
mætti að fyrstu vesturferðirnar
væru tengdar Húsinu. Síðan
mælti Declan O’Driscoll nokkur
orð og sagði frá tildrögum og
tilgangi ferðarinnar. Fjöldi
hestamanna fylgdi síðan póst-
lestinni úr hlaði, en við Oseyrar-
brú kvaddi Magnús Karel Hann-
esson ferðalangana með fáeinum
orðum.
Morgunblaðið/RAX
Vaskur hópur reiðmanna fylgdi Karli Ágústi Andréssyni (lengst til hægri) þegar hann lagði upp í ferðina.