Úrval - 01.12.1974, Page 48

Úrval - 01.12.1974, Page 48
46 ÚRVAL Skipstjórinn vissi um leið, að eitthvað af farminum hafði losnað. Hann sendi um leið alla tiltæka menn undir þiljur. Þeir komust að því, að tveir burðarvagnar eim- reiða höfðu losnað og runnu nú fram og aftur í lest nr. 2. Mennirn- ir reyndu hvað eftir annað að koma böndum á vagnana, sem runnu til eftir því hvernig skipið hallaði, en það gekk erfiðlega og þeir urðu hvað eftir annað að taka til fót- anna til að bjarga lífum sínum. Eftir tíma, sem þeim virtist heil eilífð, tókst þeim að festa burðar- vagnana aftur á sína staði með stál- vírum. Rumba hélt áfram. En þegar kom fram á kvöldið, varð sjórinn krapp- ari. Öldurnar skullu á skipinu eins og fallhamrar. Aftur náði brotsjór í Rumba og skipið hallaðist ískyggi- lega á stjórnborða. Það skalf ofsa- lega og uggvænleg, hvell brothljóð yfirgnæfðu skruðningana í farmin- um, sem skall til. Mennirnir þutu undir þiljur, og það, sem við þeim blasti, var skelfi- legt. Burðarvagnarnir höfðu rifið sig lausa í lest nr. 2 og brotið hlekk- ina, sem eimreiðunum var haldið með. Nú skullu þær á víxl á innan- verðum súðum skipsins af ógnar- afli, og hætta var á að þær brytust út um síðurnar og skipið sykki. Það var útilokað.að láta sig dreyma um að festa þær. Vaagnes skipstjóri kallaði alla VIÐBÚNIR AÐ YFIRGEFA SKIPIÐ 47 skipsmenn á neyðarvakt og sendi út neyðarkall. Neyðarkallinu var þegar í stað svarað frá skipum og strandstöðvum, og þessar stöðvar létu það ganga áfram til slysa- varnamiðstöðvanna í Halifax og New York. Halifax sendi fjögurra hreyfla Argus flugvél frá kanadiska herflugvellinum á Prins Edwards eyju, 600 mílum vestar en Rumba var stödd, til þess að tryggja fjar- skiptasamband við staðinn, þar sem skipið var statt í erfiðleikunum. Hjálparsveit 413 á flugvellinum var kölluð út. Veðrið kom í veg fyrir, að hugsanlegt væri að nota þyrlu, svo fjögurra hreyfla Buffalo skrúfu þota, traust og gott tæki í óveðr- um, fór í loftið kl. 6.56 og hélt á eftir Argusvélinni, sem hafði farið tveimur klst. fyrr. Þótt þessar tvær vélar gætu ekki bjargað áhöfn Rumba, gátu þær varpað niður björgunarbúnaði og séð fyrir lýs- ingu, ef áhöfnin þyrfti þess með. Þegar Buffalo vélin kom á staðinn, tveimur og hálfri stund síðar, stað- festi áhöfnin, að snjókoman og veð- urofsinn gerðu óhugsandi að bjarga úr þyrlu. En önnur hjálp var á leiðinni. 800 tonna birgðaskip, Smith-Lloyd 103, sem var við þjónustu við olíu- borun á þessum slóðum, hafði ný- lega iagt af stað frá Sedco I, olíu- borunarstöð um 40 mílur þaðan, sem Rumba var. Skipstjóri Smith- Lloyd 103, Tjerk Straatman, og fyrsti stýrimaður, Tonnie Bakker, báðir 29 ára gamlir hollendingar, voru vanir sjómenn, en höfðu enga reynslu í björgun á rúmsjó. En þeir buðu öldunum byrginn og náðu til Rumba um kl. 8 um morguninn. Á RÚMSJÓ. Flutningaskipið var nú í nauðum statt. Það nötraði stafna á milli. Gauragangurinn neð- an þilja hélt áfram án afláts. „Við- búnir að yfirgefa skipið!" kallaði Vaagnes. Það var ekki viðlit að koma björg- unarbát á sjó í þessu veðri — hann hefði þegar í stað mölbrotnað við skipssíðuna. En Rumba átti sex manna gúmmíbjörgunarbát, sem áhöfnin lét nú í sjó og batt við skip- ið. Sex menn bjuggu sig undir að stökkva um borð í gúmmíbjörgun- arbátinn, í þeirri von að þeir gætu fleytt honum undan vindi til Smith- Lloyd. Gúmmíbáturinn reis og féll með öldunni, í einnni andrá í sömu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.