Úrval - 01.04.1976, Blaðsíða 9
HVl LEITA KARLAR EKKIHJÁLPAR?
7
hans sjálfs, andlega eða tilfinninga-
lega, þá neita fjórir af hverjum fímm
að leita hjálpar sérfræðings. Þess-
vegna em margar milljónir manna
óhamingjusamir í starfí, sem þeim
fellur ekki, þúa í köldum, tilfinn-
ingasnauðum hjónaböndum, án
sambands við börnin sín — í stuttu
máli sagt, þeir lifa við kringum-
stæður, sem oft er hægt að koma í
veg fyrir með sérfræðilegri aðstoð.
Michael Peter, skólasálfræðingur
við New York Ríkisháskólann í Bing-
hamton segir: „Fimmtíu og fímm
prósent nemendanna em karlkyns,
en yfír sextíu prósent þeirra, sem
koma til okkar em konur. ’ ’
Mark Kane Goldstein, fíölskyldu-
ráðgjafí, segir: ,,Meira en tveir þriðju
umsókna okkar um meðferð koma frá
eiginkonum.” Sanford Sherman,
framkvæmdastjóri Fjölskylduhjálpar
Gyðinga í New York segir: ,,í fíór-
um tilfellum af hverjum fimm er það
eiginkonan, sem leitar fyrst til
okkar. ’ ’
,,Maður dagsins í dag”, segir
Sherman, ,,hefur á tilfinningunni,
að hann eigi að geta ráðið fram úr
hlutunum, og það sé viðurkenning
á ófullkomleika ef hann lendi í
vandræðum.” Sumir myndu fremur
kjósa að lifa í misheppnuðu hjóna-
bandi og sambandsleysi við börnin
sín en viðurkenna, að eitthvað væri
að og leita aðstoðar.
Eitt tilfellið var þannig, að það
var faðir, sem átti 16 ára gamlan
son, sem kom nokkrum sinnum til
hans og sagði: ,,Pabbi mér líður
yfírleitt afleitlega.” Sú staðreynd að
drengurinn gaf yfírlýsingu af þessu
tagi hefði átt að vara föðurinn við,
að eitthvað alvarlegt væri á ferðinni.
En hann vildi ekki viðurkenna, að
neitt væri að; það hefði verið játnig
þess, að hann hefði „brugðist” sem
faðir. Svo eina svar hans var: „Þetta
tilheyrir táningaaldrinum og þetta
líður hjá.”
Sex mánuðum síðar prófaði ungl-
ingurinn LSD, fékk hættulega slæma
reynslu og missti tvær vikur úr skól-
anum. Til allrar gæfu ákvað skóla-
sálfræðingurinn að drengurinn skyldi
fá meðferð og sagan fékk góðan endi:
ári síðar útskrifaðist hann úr skóla
með góðan vitnisburð. En hvílíkan
sársauka hefðu faðir og sonur ekki
getað sparað, ef faðirinn hefði leitað
þeirrar aðstoðar, sem drengurinn
þarfnaðist í tíma.
Annað atriði, sem djúpstætt er hjá
mörgum karlmanninum, er „karl-
mennskan”. Það þýðir, að maðurinn
á að vera virki karlmennskunnar og
hann má aldrei láta í ljósi kven-
legan „veikleika.”
Dæmigerðir erfiðleikar sem rætur
eiga að rekja til þessa, er tilfelli
Bills Dodge. Kynferðisleg vangeta
manna stafar yfírleitt af þreytu,
vínneyslu eða áhyggjum. En Bill
gerði sér ekki grein fyrir, að tíma-
bundin vangeta væri ekkert til að
gera veður út af. I fyrsta skipti,
sem það henti hann, varð hann ótta-
sleginn vegna þessa merkis „karl-