Úrval - 01.04.1976, Page 21

Úrval - 01.04.1976, Page 21
XYY MAÐURINN 19 hvaða áhrif hormón yfirleitt hafa á hegðun XY manna. Ef hægt er að segja, að tilraunir til að kanna líkamleg einkenni, sem sérkenna XYY menn hafi ekki borið ýkja mikinn árangur, er óhætt að full- yrða, að ástandið er enn bágbornara hvað snertir sálfræði þeirra eða hegðunareinkenni. Gleggsta dæmið eru rannsóknir á gáfnavísitölunni. Til dæmis er enn mikill vafi á ágæti kanna greindarvísitölu hjá fólki almennt. Enginn er fullviss um nákvæmlega hvað gáfnavísitala mæl- ir, svo það er erfitt að gera sér grein fyrir hvert gildi mæling gáfnavísi- tölu yfirleitt hefur. Engu að slður lagði einn rannsóknarhópur saman gáfnavísitölu 129 XYY manna, sem til var í læknaskýrslum, og fékk út meðaltal rétt undir 88. Meðaltal almennings er talið vera 100. Ennfremur reyndust nærri 14% þessara XYY manna vera undir 69, sem flokkast undir „vangefið” (bor- ið saman við minna en 2% almenn- ings) og ríflega 16% voru á mörkun- um (samanborið við tæplega 8% almennings). Ef af þessu væri dregin ályktun, að þetta sýni rvo ekki verði um villst að XYY menn séu oftast treggáfaðir, væri enn verið að vaða reyk. Næstum allar þessat mælingar gáfnavísitölu voru gerðar á mönnum, sem eru á hælum af einhverri tegund, og þeir sem eru á hælum hafa almennt lægri gáfnavísitölu en þeir, sem ekki eru á hælum, án tillits tii litninga þeirra. í þeim fáu tilfellum, þar sem gáfna- vísitala XYY manna hefur verið borin saman við gáfnavísitölu XY manna á sömu stofnunum, hefur hún yfirleitt ekki reynst verulega lægri. Rétt er það, að margar rannsóknir á XYY mönnum á hælum leiða í ljós áhugaverðan mismun á þeim og almenningi, en þessi mismunur verð- ur harla lítill, þegar gerður er samanburður á XYY og XY innan sömu stofnunar. í skýrslu einni á persónuleika segir meðal annars: ,,Þegar XYY menn eru bornir saman við samanburðarhóp úr sama um- hverfi, verður ekki fundinn neinn meiriháttar mismunur á persónu- leika.” Ennfremur er það víst, að þótt XYY menn í fangelsum komi oft úr fátækum lágstéttum og frá bágbornum heimilum, á þetta engu síður við um þá XY menn, sem hafna á sömu stofnunum. Það leið ekki á löngu, þar til ljóst varð að ekki er unnt að bera saman XYY menn á hælum og það sem vitað er um fólk almennt, og ætlast til að fá raunhæfa niðurstöðu. Þegar féll grunur á, að fjöldi XYY manna væru í umferð án þess að nokkuð bæri á þeim, rétt eins ogjohn Doe. Hvað sem segja mátti um skapgerð XYY manna, sem sátu í fangelsum, var það fullvíst að XYY fylgdi ekki óhjákvæmilega afbrotahneigð, eins og til dæmis mongólismi fylgir sínum aukalitningi. Ennfremur höfðu þeir, sem rann-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.