Úrval - 01.04.1976, Síða 48

Úrval - 01.04.1976, Síða 48
46 ÚRVAL sálfræðinga. En enginn þeirra gat hjálpað honum. Þau komu honum fyrir í endurhæfingarstöð í Texas. En að tveim vikum liðnum var hringt til þeirra og þeim var sagt að sækja hann. Þeim var sagt, að þetta væri aðeins tímaeyðsla, því að Gene vildi alls ekki hafa samstarf við sjúkraþjálf- arana. Tvisvar á ári fór frú Tipps með Gene í skoðun til Charles Randals, heimilislæknis fjölskyldunnar. Hvað eftir annað neyddist Randal til þess að segja við þau: ,,Mér getur ekki hugkvæmst neitt, sem hægt væri að gera Gene til hjálpar.” í apríl 1975 komst Randal læknir að því, að það var sýking í gallblöðru Gene. ,,Ég ætti að taka hana burt, en ég veit bara ekki, hver viðbrögð Gene yrðu við svæfingu. Sá möguleiki er fyrir hendi, að hann dæi eða félli aftur í algert dá.” Þrem vikum slðar var uppskurð- urinn gerður, enda var ekki hægt að fresta honum lengur. Frú Tipps var hjá Gene allt frá því augnabliki er hann kom í sjúkrahúsið. Hann svaf í rúmlega 30 klukkustundir að upp- skurðinum loknum. Þegar hann vaknaði, virtist hann vera eins og áður, innilokaður, tjáningarlaus og skeytingarlaus. Svo gerðist undrið, um 65 klukku- stundum eftir uppskurðinn. Gene slapp loks út úr þeirri dimmu og hroðalegu dýflissu, sem hann var í, án þess að gera sér grein fyrir þeirri breytingu, sem var að verða á honum. Á einu augnabliki breyttist hann úr sljórri og viljalausri mann- veru í háskólastúdentinn, sem hann hafði verið fram til 21. maí árið 1967. Þetta undur gerðist klukkan 1.30 aðfararnótt Þ. 16. maí árið 1975. Hann starði á móður sína, sem hafði litið sem snöggvast af honum þessa stundina. Hann gat ekki skilið, hvers vegna hún var svo miklu ellilegri en hún hafði verið. ,,Hve lengi hef ég verið í sjúkrahúsinu?” spurði hann. Þetta var fyrsta spurningin, sem hann hafði spurt í samfleytt 8 ár. Móðir hans sneri höfðinu til og leit á hann. Nú var komið að henni að stara með undrunarsvip. ,,í þrjá daga,” svaraði hún af mikilli var- kárni. ,,Þrjá daga? Það er þá best, að ég komi mér héðan út og drattist aftur í skólann. Ef mig vantar í skólann í meira en 5 daga, verð ég rekinn. Hve lengi hef ég verið fjarverandi frá skólanum?” Frú Tipps vissi ekki, hverju hún ætti að svara honum. I öll þessi löngu ár hafði hún stöðugt leitað að einhverri vísbendingu 1 fari hans um það, að hann væri að losna úr þessari prísund myrkursins. Stundum hafði henni fundist sem hún greindi slíka vísbendingu, en hún var aldrei á rökum reist, heldur var þar ætíð um óskhyggju hennar að ræða. Nú varð hún gripin meiri fagnaðarkennd, en nokkru sinni fyrr. Hún fann til örvæntingarfuilrar þarfar á að trúa
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.