Úrval - 01.04.1976, Qupperneq 74

Úrval - 01.04.1976, Qupperneq 74
72 ÚRVAL bætti hún við hlæjandi. , Já, það má nú reyndar sjáþað!” , ,Ég flaug yfir Chicago. ,,Ég mundi nú ekki kæra mig um að fara þar í gegn, sko, vegna allrar þessara skothríða, drápa og rána.” ,,Eru margir asnar í Kaliforníu?” spurði Kevin, elsti sonurinn. Ég varð alveg mát. Ég hafði aldrei leitt hugann að fjölda asna í Kali- forníu. ,,Það eru miklu fleiri bílar þar,” svaraði ég vesældarlega. ,,Ertu kaþólsk?” spurði Kata og snéri sér nú að aðalatriðum málsins. ,,Ég er ekki kaþólsk,” svaraði ég. Kata kinkaði kolli. Svipur hennar sýndi, að þetta hafði hana alltaf grunað. Þegar við höfðum drukkið teið og ég hafði kvatt fjölskylduna, kom María hlaupandi niður stigann á eftir mér. „Mamma segir, að þú sért ,,al- mennilegasta” konan, sem hún hef- ur nokkru sinni hitt.” Ég var ekki alveg viss um, við hvað hún ætti nákvæmlega með þessari yfirlýsingu. En það vakti mér mesta ánægju að sjá, hversu hrifin María var yfir því að geta gefið þessa yfirlýsingu, sem virtist miklir gull- hamrar að hennar áliti. Heima i ,,Konunglega Georg” tók ég eftir auglýsingaspjaldi um sýn- ingu á „Glerdýrunum” eftir Tenn- essee Williams, sem leikflokkur í Limerick ætlaði að halda næsta kvöld. Ef ég yrði í Limerick einn sólarhring í viðbót til þess að sjá sýringuna, yrði ég að hringja til Achilleyjar og afturkalla herbergis- pöntun mína þar. Mig langaði til þess að sjá, hvernig írsku leikararnir mundu meðhöndla taugaveiklaðar leikpersónur frá Suðurríkjunum vestra. En ég hefði samt ekki hætt við margra ára áætlanir vegna þess arna, heldur varð ég um kyrrt í Lim- erick til þess að fá tækifæri til þess að kynnast Maríu betur, já, og einnig Kötu. Hið grænleita, norræna rökkur ríkti enn úti fyrir. í glugga mat- vöruverslunar einnar var stúlka að stafla niðursuðudósum 1 píramída, bogagöng og alls konar þrep. Þetta var eins þaulhugsað og súlnaraðirn- ar í Stonehenge. Hún kom einni dós fyrir í einu, og það virtist ekki mega muna miklu, að allt hryndi. Ég virti fyrir mér þessa sýningu ásamt hálfri tylft annarra vegfarenda. Nú hélt hún, að verkinu væri lokið. Það héldum við einnig. Svo gekk hún eitt skref aftur á bak og virri fyrir sér meistaraverkið. Svo bætti hún við einni dós. En það var nákvæm- lega einni dós of mikið. Þær hrundu allar í einn haug. Einn af áhorfendum sagði þá með hinni sérstæðu írsku kímnigáfu, sem á svo auðvelt með að skilja kald- hæðni tilverunnar. ,,Sko, þetta var orðið alveg prýðilegt hjá henni, en r-'O þurfti hún að eyðileggja það
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.