Goðasteinn - 01.09.1966, Blaðsíða 14
af timbri. Margir urðu til að annast þessa flutninga, svo aldrei
stóð á því. Efnið var allt flutt á tvíhjóla kerrugrindum. Bar mér
að sjá um móttöku þess, mæla timbrið og athuga þunga annars
efnis jafnóðum og að var flutt og borga fyrir flutninginn um leið
hverjum einstökum í hvert skipti, en flutningurinn dreifðist á marga
aðila. Allt gekk þetta vel og árekstralaust.
Stór timburskáli var reistur fyrir sementsgeymslu vestan árinnar,
en austan hennar minni skáli, þar sem Jón Þorláksson og frú hans
höfðu aðsetur meðan á brúargerðinni stóð. Aðrir bjuggu í tjöldum
og sáu sjálfir, hver í sínu tjaldi, um matargerð fyrir sig eins og þá
var venja. Enginn hörgull var að fá matvæli af ýmsu tagi. Sigurður
bóndi á Selalæk flutti eftir samningi mjólk til verkamanna annan
hvern dag, sem hann seldi á n aura pottinn. Ég, sem lengstum hafði
unnið við vegagerð á fjallvegum austanlands, fjarri mannabyggðum
við sult og seyru, fannst það sæluvist að búa við slíkan kost.
Engin vélknúin tæki voru þá komin til nota, allt var eingöngu
unnið af mannahöndum.
Ekki verður farið út í það að lýsa vinnutilhögun og framkvæmd
hennar, - aðeins geta þess, að við vestari miðstöpulinn í ánni, þar
sem dýpið var mest, varð mikil vinna. 1 rammbyggðum gálga yfir
stöplastæðinu var steypt járnbent kert með lögun stöpulsins, það
djúpt, að náði upp úr yfirborði vatnsins er því var sökkt. Vatns-
botninn var hreinsaður með frumlegum útbúnaði, síðan var kerinu
fullhörðnuðu sökkt þar niður með því að fylla það grjóti og sements-
hræru, upp af því var svo stöpullinn steyptur í fulla hæð.
Jón Þorláksson hafði mikinn áhuga fyrir verkinu og fylgdist með
því, broshýr og virðulegur, naut í fullum mæli trausts verkamanna,
var því sem hugir allra samstilltust í starfinu.
Næstur honum var yfirmaður við brúargerðina Einar Einarsson
húsasmíðameistari, nú 83 ára, á Mánagötu 25 í Reykjavík, hagsýnn
dugnaðarforkur, kallaður „Einar yfirmaður“, til aðgreiningar frá
samnefndum verkamönnum. Um steypuvinnuna sá Jónas Þorsteins-
son áður nefndur, samfylgdarmaður hingað austur. Járnsmiðir voru
þeir Einar Bjarnason og Einar Runólfsson, aðrir smiðir voru: Hall-
dór Arnórsson, síðar gervilimasmiður, Sigurður Björnsson, síðar
kunnur brúarsmiður, og Hornfirðingarnir Lárus Gíslason og Sig-
12
Goðasteinn