Goðasteinn - 01.09.1966, Blaðsíða 16
Ráðherra H. Hafstein vígir Rangárbrúna.
rigningu, sem fór vaxandi, er á daginn leið. Um 2-3 þúsund manns
var komið á staðinn, er ráðherra, Hannes Hafstein, steig í ræðu-
stólinn í húðarrigningu. Ég hafði ekki séð hann áður, varð star-
sýnt á hann, sem talaði af eldmóði og hristi af og til regnvatnið úr
hárinu. „Kempa á velli, knálegur, konunglegur var hann,“ fannst
mér réttilega sagt. Ekki man ég, hvort fleiri ræður voru fluttar, en
ég held það hafi ekki verið. Nokkrir reyndu að stíga dansspor í
hríðarverjum á paliinum, sér til hita. Reyndi lúðrasveitin að lífga
það með leik sínum, þó skammvinnt yrði veðurs vegna. Undir kvöld
höfðu allir aðkomumenn yfirgefið staðinn.
Þennan morgun, áður en samkoman byrjaði, bauð Jón Þorláks-
son öllum verkamönnum til kaffidrykkju í skála sínum, kvaddi
hann þá með ræðu, þakkaði gott samstarf og óskaði þess, að hann
mætti hitta þá aftur í slíku starfi. Mér sagðist hann ætla samskonar
starf og ég hefði haft hér, við Hverfisfljót og Brunná, næsta sumar,
1913. Þegar til þess kom, var því breytt eftir minni ósk, svo þangað
lenti ég ekki. Þó ég ætti þá eftir að starfa 37 ár við vegagerð, kom
ég aldrei að brúargerð eftir þetta sumar.
Um kvöldið, er allir samkomugestir voru farnir, bauð Jón bóndi
14
Goðasteinn