Goðasteinn - 01.09.1966, Blaðsíða 8
ekkert, sem hægt var að átta sig á nema kýrnar. Þær bauluðu á
sínum tíma eftir gjöfum og mjöltum og migu allar í senn í flórinn,
um leið og þær stóðu upp til að kalla eftir sínu.
Ég spurði nágranna minn, hvað hans klukka hefði kostað. „Níu
krónur“, sagði hann. Já, níu krónur, ég átti aðeins tvær krónur.
Fyrir upptíninginn minn og reyfið mitt gat ég fengið þrjár krónur.
„Ætli ég fái lánað til haustsins uppá fjórar krónur"? spurði ég einn
samferðamanninn. Hann kvaðst ekki vita það en ekki væri það
óhugsandi, ég skyldi færa það í tal við kaupmanninn. Það þótti
mér nú þyngri þrautin, ég hafði heyrt föður minn tala um, að
erfitt væri fyrir þá að fá lán, sem lítið ættu til.
Nú var röðin komin að mér að verzla. Þess skal getið, að þetta
var ekki aðalverzlunin, heldur verzlaði hér nýkominn kaupmaður,
Gunnlaugur að nafni, og gerðu margir sér vonir um, að samkeppni
við gömlu verzlunina mundi verða til þess að bæta verzlunina á
Höfn. Þessi verzlun lifði stutt og gerði ekkert gagn, verzlunarlega
séð. Hér átti ég lítið að verzla, enda var ég fljótur. I fyrstu var ég
feiminn við búðarmanninn, en það hvarf fljótt, er ég fór að kynn-
ast honum meir. „Ætlarðu sjálfur ekki að verzla neitt“? spurði
búðarmaður. 1 þessu bar verzlunarstjórann að. „Hann á hér engan
reikning“, sagði hann. Það kom hik á mig: „En heyri þér, ég ætla
að kaupa fyrir tvær krónur og svo“. „Og svo“? hafði hann eftir
með óþolinmæði, eins og hann hefði ekki tíma til að sinna fátæk-
um, óframfærnum dreng. „Og svo er upptíningurinn minn heima“.
En sú fíflahreinskilni að segja ekki ull í staðinn fyrir upptíning,
en til lukku talaði ég svo lágt, að kaupmaðurinn heyrði ekki eða
gaf því ekki gaum.
„Hvað ætlarðu að fá fyrir krónurnar"? spurði hann. „Klukku“,
sagði ég. „Klukku"? kváði kaupmaður hissa. „Ekki færðu hana
fyrir tvær krónur“. Ég þóttist vita það. „En svo er ullin mín
heima og svo“. „Og svo hvað“ sagði kaupmaður. „Og svo skal ég
láta lambið mitt í haust“. „Þú átt hér engan reikning“, sagði hann,
„og svo lána ég ekki svona unglingum“. Svona unglingum, hvað
þýddi þetta? Var ég nokkuð öðruvísi en aðrir unglingar? Ætli
kaupmanninum hafi mislíkað við mig, eða var ég of heimtufrekur.
Nú hélt ég, að mér hefði dottið það rétta í hug. Var ég fátækari
6
Goðasteinn