Goðasteinn - 01.09.1966, Blaðsíða 30
áhyggjuminna að draga sig í hlé, standa álengdar, cn það gerir
engan að betri og dugmciri manni og veitir litla gleði. Heldur er
það þátttakan og baráttan á sérhverjum vettvangi og hvernig sem
allt veltur, sem mestu máli skiptir.
Barátta er hugtak, sem íslenzkri þjóð er síður en svo nokkuð
framandi, því að segja má, að gjörvöll tilvera hennar frá upphati
vega hafi verið sífelld barátta. Lega landsins er þannig á heims-
kringlunni, og náttúrufari þess er svo háttað, að það hefur aldrei
hæft kveifum og skræfum, ófúsum til baráttu, að hasla sér hér völl
og lifa menningarlífi. Lífsbaráttan hefur því oft verið hörð og það
jafnvel svo mjög, að stundum var það tvísýnt, hvort þjóðin héldi
velli. Þó skal skýrt tekið fram, að þar átti landið okkar ekki alla
sök, heldur miklu fremur aumt og bágborið erlent stjórnarfar og
samfara því aldalöng verzlunarkúgun þröngsýnna fjárplógsmanna,
er mergsugu þessa þjóð og eyddu viðnámsþreki hennar næstum
til óbóta.
En þrátt fyrir allar hörmungar liðinna alda, þá gáfust forfeður
okkar aldrei upp í hinni þungu, þrotlausu og fábreytilegu baráttu
fyrir tilverunni. Þeirri baráttu eigum við að þakka það, sem við
crum í dag. Meðal hinnar hrjáðu þjóðar voru alltaf uppi mcnn, sem
töldu kjark í samferðamenn sína, og aldrci glataði hin snauða og
kúgaða hjörð tilfinningunni fyrir því, að hún var sérstök þjóð með
eigin tungu, menningu, sögu, hefð og sérkennum. Þannig liðu aldir,
og í fyllingu tímans eignuðumst við forystumenn, sem horfðu hátt
og boðuðu ný viðhorf. Það voru þeir menn, sem hrundu af þjóðinni
doða og kyrrstöðu og skerptu skilning hennar á því dýrmætasta og
eftirsóknarverðasta af öllum gæðum, að fá að lifa mannsæmandi
lífi í óháðu og fullvalda íslenzku ríki. Baráttan að þessu marki var
löng og ströng, en sigur vannst um síðir, og nýr dagur rann bjart-
ari en allir hinir. Nú á tímum njótum við ávaxtanna af starfi hinna
framsýnu og stórhuga forystumanna, er bcztir voru af sonum lands-
ins. Þeir hlutu sjáifir lítil laun, enda voru hugsjónir þeirra langt yfir
öll laun hafnar.
Það kann að vekja furðu hjá þessari þjóð, er heyja þurfti svo
langa og fórnfreka baráttu fyrir tilverunni, að nú á þessum vel-
28
Goðasteinn