Goðasteinn - 01.09.1966, Blaðsíða 23
Dr. Richard Beck, prófessor:
Snillingurinn
og
fróðleiks-
maðurinn
Árni S. Mýrdal (1872 — 1966)
Það fer að vonum, að óðum þynnist fylking hinna elztu Islend-
inga vestan hafs, þeirra, er tóku þátt í stríði og striti erfiðra og
örlagaríkra landnámsáranna. I þeim hópi var Árni S. Mýrdal, að
Point Roberts, Washington, sem lézt á Elliheimilinu „Stafholti“ í
Blaine, Washington, 25. marz 1966, á nítugasta og fjórða aldursári.
Jarðarför hans fór fram frá Lútersku kirkjunni á Point Roberts
2. apríl 1966. Lúterski presturinn í Blaine, séra Philip Ramstad, jarð-
söng. Fjöldi ættingja, sveitunga og vina var viðstaddur virðulega
kveðjuathöfnina í kirkjunni, enda naut Árni víðtækrar virðingar og
vinsælda innan sveitar sinnar og utan, bæði landa sinna og annarra
þjóða fólks, sem einnig kunni vel að meta sjaldgæft atgervi þessa
sjálfmenntaða Islendings til anda og handar. Árni var lagður til
hinztu hvíldar nálægt legstað Sigríðar konu sinnar og Gústafs fóst-
ursonar þeirra í grafreitnum við Lútersku kirkjuna á Point Roberts,
þar sem fjöldi annarra íslenzkra frumherja á þeim slóðum hvíla
í mold.
Goðasteinn
21